Þjóðlíf - 01.07.1990, Page 35

Þjóðlíf - 01.07.1990, Page 35
Ekkja Hoxa handtekin Til að koma í veg fyrir and- spyrnu við lítils háttar betrum- bætur á kommúnismanum í Albaníu lét ríkis- og flokks- leiðtoginn Ramiz Alia hand- taka ekkju forvera síns, Enver Hoxa. Samkvæmt heimildum frá Grikklandi hafði ekkjan verið í forsvari fyrir stjórn- málasamtök sem barist hafa gegn öllum tilhneigingum í átt til breytinga og er hún sögð hafa reynt að hrifsa til sín öll völd að manni sínum látnum. Miðstýrt og þunglamalegt efnahagskerfi Albana á að opnast örlítið, en stalinisminn er hvergi á enda og mannrétt- indabrot alræmd. Til að ræða þau fór Pérez de Cuellar að- alritari SÞ nýverið til Tirana í Albaníu og ræddi við Ramiz Alia ríkisleiðtoga... Virtur bandarískur listamaður Jeff Koons 35 ára gamall og ítalski þingmaðurinn og kynbomban Ilona „Ciccolina“ Staller 38 ára vilja koma mannkyninu til frjálsari tjáskipta með kvikmynd sem þau hafa gert. Koons mærir hina frxgu þingkonu í myndinni sem„ hina eilífu jómfrú“ og „einn mesta mannkynsfrelsara heimsins“. Hann er handritshöfundur, framleiðandi, leikstjóri og aðalkarlleikari á móti Staller. Með mynd- inni sem heitir „Made in Heaven“ segist hann vera að skapa „mesta listaverk“ sitt. AUs konar mótmæli við þessari mynd hafa borist frá siðgæðisvörðum í Bandartkjunum, en leikstjórinn lætur sér fátt um frnnast og kveðst hvorki geta né ætla að breyta myndinni einungis til þess að halda sér innan einhverra gildandi siðferðismarka. Rotary-klúbbar austur Rotary er að hertaka austrið. Innan fárra vikna hefur Rot- ary International komið sér fyrirí Ungverjalandi, Póllandi, Sovétríkjunum og Tékkós- lóvakíu. Til að létta fyrir hafa aðalstöðvar Rotary í Banda- ríkjunum rýmkað reglurnarog leyfa konum og afturbata- kommúnistum inngöngu. Enn sem komið er hafa Pek- ing og Belgrad getað varist Rotary, en kunnugir telja að sú komi tíð... Gömul stjarna látin Nýverið lést Paulette Godd- ard 84 ára gömul, en hún var á sínum tíma þekkt kvik- myndastjarna og var í fræg- um hjónaböndum. Hún þótti afskaplega falleg og heillandi leikkona og hóf feril sinn á fjölunum í New York. Charlie Chaplin uppgötvaði hana, þegar hún hafði þegar eitt hjónaband að baki, og fól henni aðalhlutverk í meist- araverki sínu Nútíminn (1936, sjá mynd). Þar lék hún á móti eiginmanni sínum Chaplin. Hún var metnaðarfull leik- kona en fékk þó ekki þann draum uppfylltan að leika í hinni frægu mynd Á hverf- anda hveli, en hlutverkið féll í skaut Vivian Leigh. Hún gerði myndir eins og Einræðisherr- ann 1940 með Chaplin. Tveimur árum síðar skildu þau hjón. Árið 1946 lék hún í mynd Jean Renoirs, Dagbók þernu en síðari myndir henn- ar féllu. Árið 1958 giftist hún rithöfundinum Erich Maria Remarque (Tíðindalaust á vesturvígstöðvunum) og bjuggu þau saman til dánar- dægurs hans 1970 . . . (Spiegel/óg) Fyrirsætan Caroline Cossey 35 ára frá Englandi hefur kært bresku ríkisstjórnina til Mann- réttindadómstóls Evrópu. Síðan hún fór í kynskiptingaraðgerð 1974 neita yfirvöld þessum fyrr- verandi slátrarasveini um viður- kenningu sem konu. Hún getur ekki gifst með formlegum hætti nema að kyni á fæðingarvottorði hennar verði breytt. Tvö sam- bönd hennar hafa runnið út í sandinn af þessum ástæðum. Þessi fagra kona erl.83 cm á hæð oghefurm.a. sést við hlið Rogeer Moore sem leikfang James Bonds í kvikmyndinni In tödlicher Mis- sion. ÞJÓÐLÍF 35
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.