Þjóðlíf - 01.07.1990, Page 48

Þjóðlíf - 01.07.1990, Page 48
KARLAR, VIN 00 B&LDAR KONUR GUÐMUNDURJÓNSSON Kona nokkur vann sérstakt mál gegn kráareiganda í Bret- landi eftir að hafa verið mein- að að drekka bjór úr stóru og karlmannlegu fláti. Viðhorf í Bretlandi til vín- drykkju kvenna eru mjög mót- uð af sjónarmiðum karla. Áður fyrr var því haldið fram fullum fetum og viðurkennt af mátt- arstólpum hins siðaða samfé- lags að áfengisneysla kvenna væri beinlínis þjóðfélaginu hættuleg, því hún hefði í för með sér að þær vanræktu móð- ur- og eiginkonuskyldur sínar. Kona sem sást drukkin á al- mannafæri fyrirgerði mann- orði sínu. Sums staðar var konum ekki heimilað að fara inn á krár, og ef þeim var leyft það, þá aðeins í fylgd með eig- inmönnum. Það eru aðeins fá- einir áratugir síðan krár ein- göngu ætlaðar karlmönnum opnuðu dyrnar fyrir konum. Karlar sem eru fastir í aðskiln- aðarstefnu kynjanna geta samt áfram fengið henni fullnægt í aragrúa af alls konar karla- klúbbum. Viðhorfin hafa auðvitað breyst mikið síðan konum var bannað að koma inn á krár. Áfengisdrykkja þeirra á opin- berum stöðum er orðin viður- kennd og sjálfsögð. Og nú er svo komið að konur eru jafnvel hvattar til drykkju eins og hverjir aðrir (karl)neytendur. Brugghúsin hafa ýtt undir þessa þróun og árið 1988 var auglýstur fyrsti sérstaki „kvennabjórinn“, Bleu de Brasserie. Að sama skapi hefur áfengisdrykkja kvenna aukist og vandamál henni samfara. Ennþá er samt ætlast til þess að konur sýni tilhlýðilega kvenlega umgengni við áfenga drykki. Það þykir til dæmis ókvenlegt að konur panti sér heila pintu (u.þ.b. hálfan lítra) af bjór í einu, þær eiga heldur að fá sér hálfa pintu eða gin- lögg eða léttvín. Fyrir skömmu fór hópur kvenna á krá eina í Birmingham til að lyfta sér upp eftir að hafa lokið námsskeiði fyrir konur í efl- ingu sjálfstrausts. Ein þeirra pantaði sér heila pintu af bjór, en kráareigandinn neitaði að afgreiða hana og sagði að því- líkt og annað eins væri ekki gert á þessum stað. Konan ítrekaði pöntunina, en kráar- eigandinn sat við sinn keip. Fór konan við svo búið af kránni með félögum sinum. Hún var hins vegar ekki á því að láta kráareigandann komast upp með svona lagað, enda nýkomin af námskeiði í því hvernig á að standa upp í hárinu á fólki — sjálfsagt eink- um karlmönnum. Hún höfð- aði mál á hendur kráareigand- anum fyrir að hafa mismunað viðskiptavinum á grundvelli kynferðis. Og viti menn, kon- an vann málið og varð kráar- eigandinn að biðjast formlega afsökunar. Þetta er vitanlega áfangasigur í kvennabarátt- unni í Bretlandi, en ef konur þurfa fyrst að fara á námskeið í eflingu sjálfstrausts til að geta krafist heillar pintu af bjór, þá er enn löng leið fyrir höndum í réttindabaráttu þeirra. ÞJÓÐLÍF Tímarit fyrir þig! Áskriftarsími (91) 621880 48 ÞJÓÐLÍF
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.