Þjóðlíf - 01.07.1990, Page 87

Þjóðlíf - 01.07.1990, Page 87
Einum kennt — öðrum bent. maður flokksins höndlar þó í klassískri hefð jafnaðarmanna þegar hann vinnur að sameiningu jafnaðarmanna og frjálslyndra og meiri líkur eru á að hann hafi til þess traust innan síns flokks. Flestir telja ljóst eftir viðburði síðustu mánaða og reyndar ára, að fylgjendur hreinlínuflokks hafi tögl og hagldir innan Alþýðubandalagsins þó Ólafur Ragnar Grímsson geti hins vegar treyst á marga flokksfélaga af lands- byggðinni í baráttu sinni fyrir sameiningu jafnaðarmanna. Jón Baldvin á við sams konar tregðulögmál að etja innan síns flokks, þó flestir telji það mun veikara en flokkseigendafélagið í Alþýðubandalag- inu. Kenningin um millileiðina Smám saman hefur bilið breikkað milli tveggja meginfylkinga í Alþýðubandalag- inu. Ágreiningurinn varð áþreifanlegur þegar Alþýðubandalagið í Reykjavík klofnaði fyrir rúmu ári og Birting varð til. Á landsfundi á sl. ári urðu sömuleiðis slík vatnaskil að vandséð er hvernig þessar tvær meginfylkingar geti átt einhverja samleið í framtíðinni. Eftir að margir fé- lagar í Birtingu tóku svo þátt í að mynda Nýjan vettvang með öðrum jafnaðar- mönnum og frjálslyndum í Reykjavík er auðsætt að bilið breikkaði enn. Ýmsar hugmyndir hafa verið uppi um hugsanlega stofnun nýrra stjórnmálasam- taka — í ætt við Samtök frjálslyndra og vinstri manna — sem millileið fyrir sam- einingu jafnaðarmanna í stórum flokki. Um þetta er deilt og telja margir að einmitt sú leið SFV hafi ekki reynst nógu vel, —og því sé flekakenningin líklegri til árangurs. Það er þegar komin hreyfing á fólk frá Alþýðubandalagi og í áttina að Alþýðuflokki. Andstæðingar Ólafs Ragnars í Alþýðu- bandalaginu, hóparnir sem kallaðir hafa verið flokkseigendafélagið, Fylkingarfé- lagarnir og verkalýðsforystan af ASÍ skrif- stofunum, hafa haft í hótunum við for- manninn og boðað „aftöku“ hans á næsta landsfundi. Mörgum landsbyggðarmönn- um hefur ofboðið gassagangurinn og harkan í þessari aðför og líkur eru til að mynduð verði skjaldborg um hann fyrir hugsanleg átök. En í kjölfar ályktana og herferðar gegn Ólafi Ragnari hafa komið fram hugmyndir um að komast hjá því að taka „einn slag enn“. Kenningin um friðsamlegan skilnað í Alþýðubandalaginu Kenningin gengur út á, að líkja megi sambýlinu innan Alþýðubandalagsins við hjónaband. í því hafa verið heiftarlegir árekstrar og ágreiningur um smátt og stórt. Varla sé til það atriði í pólitík sem aðilar séu sammála um. Þessi átök hafi síðan leitt til þess að hjónin talist ekki við og hafa ekki gert lengi. Slíkum hjóna- böndum verði ekki bjargað. Hjónaskiln- aðir verða með ýmsum hætti — spreng- ingu — eða í skástu tilfellum með friðsam- legum hætti. Þar sem þessar tvær meginfylkingar eru báðar orðnar lang- þreyttar á vonlausu ástandi sé eðlilegt að semja um skilnaðinn. Átök geti hér eftir ekki orðið annað en staðfesting á klofn- ingnum sem er fyrir hendi. Því gæti verið skárra fyrir báða aðila að semja friðsam- lega um aðskilnað. Gárungarnir segja að þá þurfi að skipta búinu. Og í því sambandi er ljóst að önnur fylkingin hefur þegar slegið eign sinni á arfleifðina, foru'ðina. Ætli hin meginfylk- ingin verði ekki ánægð með að fá framtíð- ina í sinn hlut? 0 ÞJÓÐLÍF 87
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.