Þjóðlíf - 01.07.1990, Page 111

Þjóðlíf - 01.07.1990, Page 111
Er magasár og jafnvel krabbamein smitandi? HÁLFDAN ÓMAR OG ÞURÍÐUR ÞORBJARNARD. Gerill sem lifir í maga manna veldur ef til vill maga- og skeifugarnarsári. Þetta hefur komið í ljós við rannsóknir í Skotlandi. erillinn tilheyrir ættkvísl sem mætti nefna vafgerla (Holicobaotor) og þrífst í súru umhverfi magans þar eð hann er fær um að mynda sinn eigin lút sem hlutleysir magasýrurn- ar. Skeifugarnarsár eru býsna algeng hjá fólki. Unnt er að ráða bót á þeim um tíma en þau koma nær alltaf aftur. Læknar telja að sár í skeifu- görn stafi af of mikilli myndun magasýra. Sumir telja að streita og mataræði eigi þátt í að auka myndun sýranna en engar sönnur hafa verið færðar á það. Á síðustu árum hafa víðtæk- ar rannsóknir um heim allan beint sjónum manna að gerlin- um portvafa (Helicobacter pylori). Hann tekur sér ból- festu í neðri hluta magans, svonefndum porthelli. Hann lifir þar góðu lífi þrátt fyrir magasýrurnar sem eyða lang- flestum öðrum tegundum gerla og örvera. Lífsseigla hans byggist á því að hann er fær um að breyta þvagefni sem er í magasafa í basískt ammón- íak og það hlutleysir sýrurnar. Rannsóknir hafa leitt í ljós að portvafi drepst ef hann er settur í lausn sem hefur sýru- stigið 3 (pH 3) en ef þvagefni er bætt í sömu lausn þrífst hann. Porthellir magans myndar hormónið gastrín sem örvar sýrumyndun magans. Þegar nóg er komið af sýrum slokknar sjálfkrafa á þeim frumum er framleiða gastrín- ið. Sú tilgáta hefur komið fram að ammóníakframleiðsla ger- ilsins í porthellinum rugli gastrínmyndandi frumur svo í ríminu að þær vanmeti sýru- magnið og haldi framleiðsl- unni ótrauðar áfram. Fólk með portvafa í maga sér hlaut sérstaka meðferð sem fólst í því að gefa því blöndu af sýklalyfi og bismúti, en bism- út var notað til magalækninga í upphafi aldarinnar. Þetta upp- rætti gerilinn og að honum burtgengnum myndaðist minna af gastríni og magasýr- um eftir máltíðir. Rannsóknir hafa jafnframt leitt í ljós að skeifugarnarsjúklingar voru lausir við sár langtímum sam- an eftir að portvafa hafði verið eytt úr maga þeirra og að að- ferðin gaf mun betri raun en að gefa lyf sem drógu eingöngu úr myndun magasýranna. Rannsóknir sem voru gerð- ar í Tórontó í Kanada sýna að portvafinn berst greiðlega milli fólks. Systkini barna sem voru haldin magabólgum voru mun líklegri til að hýsa port- vafann en óskyld börn. Hið sama gilti um mæður barn- anna en af einhverjum óskýr- anlegum orsökum átti það ekki við um feðurna. annsóknir á portvafa beinast einnig að því að kanna hvort hann geti stuðlað að myndun krabbameins í maga. Þær hafa meðal annars leitt í ljós að á vissum svæðum í Kína þar sem tíðni maga- krabba er há er portvafinn al- gengari en þar sem tíðni krabbans er lægri. Tíðni magakrabba er óvenjuhá í Ca- erphilly í Suður-Wales og ger- illinn fannst einnig hjá mjög mörgum íbúanna, en margir þeirra voru þó án nokkurra einkenna sem bentu til sjúk- dóms. Vitað er að vafgerlar orsaka stundum bráða magabólgu. Þeir geta valdið dauða kirtil- fruma í hluta af magaveggnum þannig að sýra myndast ekki í þeim hluta magans og þar þríf- ast þá ýmsar tegundir gerla sem sýrur eyða að öllu jöfnu. Talið er að vissar tegundir gerla sem þetta á við um breyti nítrötum í nítröt, efni sem eru þekktir krabbavaldar. Ef gerl- ar ná að rjúfa slímlag sem verndar magavegginn verður greið leið í vefi hans fyrir hvers kyns krabbavalda. Svo virðist sem portvafi geti orsakað fleiri sjúkdóma en nokkurn grunaði. Það eru slæmar fréttir fyrir þá sem hafa staðið í þeirri trú að magasár stafi af streitu, þeir geta smit- ast af því. 0 Flengingar i skólum og ó heimilum HÁLFDAN ÓMAR OG ÞURÍÐUR ÞORBJARNARD. Roskið fólk minnist eflaust óttans við líkamlega refs- ingu í skólum. Fæst okkar telja þann ótta eftirsóknar- verðan og viljum alls ekki að börnin okkar kynnist honum af eigin reynslu. Svo virðist hins vegar sem flestir telji líkamlega refs- ingu á heimilum ekki ámæl- isverða. Þetta á a.m.k. við um Bandaríkjamenn sam- kvæmt ýmsum könnunum. Árið 1988 leiddi svokölluð Haris könnun í ljós að 86% fullorðinna telja í lagi fyrir foreldra að slá, flengja eða aga börnin sín á annan líka- mlegan hátt. Færri en 44% töldu að kennarar hefðu þennan rétt. Aftur á móti fannst ríflega helmingi (56%) grunnskólakennara í lagi að flengja nemendur sína samkvæmt könnun sem var gerð á vegum Gallup- stofnunarinnar 1989. Svo virðist sem kennarar gleymi því sem þeir hafa lært um skaðsemi líkamlegrar refs- ingar þegar til agavanda- mála í bekkjum þeirra kem- ur, enda skortir hnitmiðaða fræðslu í kennaranáminu um hvernig bregðast eigi við slíkum kringumstæðum. Beiting líkamlegrar refs- ingar er mismikil eftir svæð- um, fjárhag, kynþætti og kyni. Fátæk börn, svört börn og þau sem búa í suður- ríkjum Bandaríkjanna eru oftast beitt líkamlegri refs- ingu bæði heima og í skóla. Almennt gildir einnig að for- eldrar sem urðu lítið fyrir slíkri refsingu beita henni í minna mæli en aðrir og eru andvígir því að aðrir foreldr- ar eða kennarar beiti henni. Þegar kynjamunur er skoðaður eru niðurstöður ós- kýrari. Þó virðist svo sem karlmenn hafi ívið oftar verið beittir líkamlegri refs- ingu heima eða í skólum en konur eru. Það er hins vegar kaldhæðnislegt að konur grípa oftar til refsivandarins en karlmenn. ÞJÓÐLÍF ÍU
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.