Þjóðlíf - 01.08.1991, Qupperneq 32

Þjóðlíf - 01.08.1991, Qupperneq 32
Ferðamenn eru í miklum meiríhluta mannfjöldans í miðborg Prag. brúðuleikhús. Það sem íslendingar þekkja ekki síst eru tékknesku teikni- myndirnar. Það væri synd að segja að menningin hafi blómstrað og dafnað undir kommúnismanum en þó dó hún ekki alveg. Nú er mjög litlum styrkjum veitt til kvikmyndagerðar t.d. enda engir pening- ar til og þegar ég bað kunningja mína að benda mér á einhverja nýja tékkneska kvikmynd þá var mér sagt að lítið væri gert af kvikmyndum núna og það litla sem væri framleitt væri lélegt. Það gildir um Tékka eins og fleiri að þeir verða að rækta það sem tékkneskt er, eigi þeir að halda og styrkja stöðu sína sem þjóð meðal þjóða en það er hins vegar ekki skrýtið að litlu fé sé varið til menningar- mála þegar nógu og erfitt er að sjá fólki fyrir lífsnauðsynjum. Jitka Sonkova er listmálari. Hún er vin- kona mín og ég bjó hjá henni í viku af dvöl minni í Tékkóslóvakíu. Hún segir að ástandið í landinu sé miklu betra núna en fyrir byltingu en henni finnst landar sínir lítið kunna sér hóf. „Það eru allir að reyna að græða og miðbærinn í Prag er varla tékkneskur lengur. Ég er ávörpuð á þýsku og ensku í búðum!. Byltingin var kölluð flauelsbylting af því að hún fór svo frið- samlega fram en andrúmsloftið hér minnir lítið á flauel núna.“ g spyr um ástandið í menntunarmál- um. Bæði Lidmila Nemcova og Jan Klener segja að það sé ekki svo slæmt. Jan: „Ég hef farið í námsferðir til Ameríku og Svíþjóðar í mínu fagi, læknisfræði. Auðvitað er aðstaðan allt öðruvísi í þess- um löndum en hún er hér en samt held ég að við stöndum læknum í Vestur Evrópu ekkert að baki menntunarlega séð.“ Lid- mila segir að það sé útbreiddur misskiln- ingur á Vesturlöndum að ekkert hafi verið kennt í viðskipta og hagfræði í Tékkós- lóvakíu nema fræði byggð á marxisma. Þetta sé hins vegar ekki rétt og tékkneskir viðskipta- og hagfræðingar hafi á flestan hátt sambærilega menntun og gerist á Vesturlöndum. Látum Jan Klener eiga síðasta orðið: „Það sem skiptir máli er að núna eigum við von. Tökum sem dæmi ástandið í hús- næðismálum. Það er hræðilegt, svotil ómögulegt að fá húsnæði eftir opinberum leiðum. Fólk neyðist til að búa heima hjá foreldrum sínum löngu eftir að það er sjálft gift og komið með fjölskyldu. Þann- ig var það fyrir byltingu, þannig er það enn og er sennilega ein ástæðan fyrir hárri tíðni hjónaskilnaða (50%). En fyrir bylt- ingu virtist þetta vera óumbreytanlegt ástand. Núna eigum við a.m.k. von um að tímarnir verði öðruvísi og betri.“ 0 Klámbúðir eru meðal þess sem hefur blómstrað með hinu nýfengna frelsi. 32 ÞJÓÐLÍF
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.