Þjóðlíf - 01.08.1991, Qupperneq 43

Þjóðlíf - 01.08.1991, Qupperneq 43
fyrir Islam og tíðkast í mörgum íslömsk- um ríkjum í Austurlöndum nær, sérstak- lega í Svörtu Afríku. Það eru einkum þrjár tegundir af um- skurði sem tíðkast á þessum svæðum. Mildasta formið er svokallaður „Sunníta" umskurðurinn þar sem einungis hluti snípsins (clitoris) er skorinn burtu, svo- kölluð snípshúfa. Sú aðgerð er talin sam- bærileg við umskurð drengja þar sem for- húð kynfæranna er skorin burt. Önnur aðferð sem stunduð er aðallega í Egyptalandi er að fjarlægja snípinn í heilu lagi, og á sumum svæðum eru innri skapa- barmar (labia minora) skornir burtu. Þriðja umskurðaraðferðin er tíðkuð í Súdan, Erítreu og Sómalíu. Þá er snípur- inn tekinn burtu. Innri skapabarmar og meginhluti ytri skapabarma eru fjarlægð- ir. Síðan er opið saumað saman að hluta en stuttur sívalur trébútur settur í það litla op urinn með þessu er sagður vera að kæla ástríður kvennanna og koma í veg fyrir ósiðlega hegðun sem fylgt getur slíkum ástríðum. Ástríðufull kona er talin mikil ógnun fyrir samfélagsskipanina. Fólkið trúir því að ef það lætur ekki umskera dætur sínar þá muni mikil ógæfa dynja yfir fjölskylduna. Sá ótti er mjög út- breiddur að enginn karlmaður vilji konur sem ekki eru umskornar. Þetta er talið vera skylda sem enginn getur skorist und- an. Eins og gefur að skilja geta fylgt þessum aðgerðum ýmsir kvillar þar sem hreinlæt- isaðstaðan er oft ekki upp á marga fiska. Margar kvennanna þjást af þvagfæra- og móðurlífssýkingum með tilheyrandi bólg- um og sársauka. Bannhelgi hvílir yfir umræðu um um- skurð þegar rætt er um kjör kvenna í ís- lömskum ríkjum og eru innfæddar konur Sá ótti er útbreiddur að cnginn karlmaður vilji konur sem ekki eru umskomar. sem eftir er til að það grói ekki saman. Á brúðkaupsnóttina er opið víkkað á stúlku með beittum hníf eða rakblaði. Þegar hún eignast barn eru saumarnir teknir og opið síðan saumað aftur eftir barnsburðinn. Lögmæti þessara aðgerða hvílir einkum á hefðinni sem talin er trúarleg. Þetta er guðs vilji og vilji stúlka verða sönn kona, er umskurðurinn aðeins einn liður í því sem hún þarf að ganga í gegnum. Tilgang- tilbúnar að ræða hvað sem er, barnaupp- eldi, erfðamál, hjónaband, allt nema um- skurð. Blygðunartilfinningin virðist það mikil, sem sennilega er rökleg afleiðing og tilgangur með umskurðinum, að þær virð- ast ófáanlegar til að tjá sig um þetta mál, hvað þá að véfengja réttmæti þessa siðar. Það eru helst konur með læknismenntun eða þær sem búið hafa á Vesturlöndum sem tilbúnar eru að tjá sig um þetta efni. Fyrsta kynslóð innflytjenda í Bretlandi lætur umskera dætur sínar og það skapar bæði fé- lagsleg og líkamleg vandamál. I' Egyptalandi hefur verið bannað að umskera stúlkubörn frá 1959 en þrátt fyrir það er þessi siður ótrúlega lífseigur, jafnvel meðal fjölskyldna sem senda dætur sínar í háskóla. Margir hafa ekki hug- mynd um þessa löggjöf, því ólæsi er mikið og lítið gert til að kynna fólki slíkar lög- gjafir. Umskornar konur má því finna í öllum stéttum sem segjast jafnvel munu láta um- skera sínar eigin dætur. Þó eru nokkrar konur sem segjast ekki ætla að láta dætur sínar ganga í gegnum umskurð. Það eru einkum kvenlæknar eða þær sem þjáðst hafa mjög af slíkum aðgerðum. I Bretlandi hefur skapast mikil tog- streita milli yfirvalda og sómalskra inn- flytjenda sem halda fast í þessa hefð. Fyrsta kynslóð innflytjenda lætur a.m.k. umskera dætur sínar, sem aðlagast síðar vestrænum lifnaðarháttum og hefur þetta skapað mörg félagsleg og líkamleg vanda- mál fyrir stúlkurnar. Margar þeirra hafa farið í aðgerðir til að gera þeim mögulegt að lifa eðlilegu kynlífi. Þá eiga þær hins vegar á hættu að verða útskúfaðar úr því samfélagi sem þær tilheyra. Islamskar konur sem búsettar eru á Vesturlöndum hafa því yfirleitt þurft að velja milli síns íslamska samfélags og hins vestræna ef þær vildu hafna þessari hefð. Heimild: Juliette Minces:„Women in the Arab Society“ ÞJÓÐLÍF 43
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.