Þjóðlíf - 01.08.1991, Qupperneq 81
Flestir þeirra sem sálfræðingarnir lögðu
þessa spurningu fyrir töldu (b) mun lík-
legri fullyrðingu, og bentu á að fortíð
Lindu benti til þess. I raun er (a) líklegri
en (b). Það er líklegra að einn atburður
gerist en að sami atburður auk annars eigi
sér stað; sé teningi kastað er t.d. líklegra
að sexa komi upp en að bæði sexa og tvist-
ur komi upp sé tveimur teningum kastað.
Ástæðuna fyrir því að flestir velja ranga
fullyrðingu í dæminu um Lindu telur
bandaríski vísindafréttamaðurinn Jeremy
Campbell vera að við byggjum ekki okkar
mat á reglum rökfræðinnar. Til að geta
þrifist í þeim raunveruleika sem sífellt
herjar á skynjanir okkar hefur heilinn
skipulagt þá þekkingu sem við búum yfir,
þannig að fyrirbæri og eiginleikar sem
yfirleitt heyra saman mynda hópa af þekk-
ingarmolum. Þegar við skynjum ný fyrir-
bæri reynum við að fá þau til að falla inn í
það kerfi sem heilinn hefur komið sér
upp. Það er útbreidd skoðun, ekki síst
meðal karlmanna, að kvenréttindakonur
séu uppteknar af ýmsum félagslegum
vandamálum og séu óhræddar við að tjá
skoðanir sínar. Þar sem lýsingin á Lindu
fellur mjög vel að þeirri mynd ákveða
flestir að fullyrðing (b) sé líklegri en full-
yrðing (a). Það er því ekki yfirveguð rök-
hugsun sem stjórnar ákvörðuninni heldur
einfaldlega fordómar.
Fordómafull hugsun þykir ekki göfug-
ur eiginleiki. En það gæti reynst erfitt að
finna einstakling sem laus er við fordóma.
Þeir eru okkur nauðsynlegir og án þeirra
gætum við einfaldlega ekki hugsað og tek-
ið afstöðu til umhverfisins. Þeir fordómar
sem sérhver einstaklingur býr yfir er sam-
ansafn af allri þeirri reynslu og þekkingu
sem hann hefur viðað að sér. Auk þess að
vera nauðsynlegir eru fordómar mjög hag-
kvæmt fyrirbæri. Þegar við skynjum ný
fyrirbæri eða nýja atburði berum við það
saman við fordómakerfi okkar og losnum
þannig við að sundurgreina og skynja
fyrirbærið frá grunni. Fordómar spara
okkur m.ö.o. tíma og orku.
En hvað hefur gervigreind og tauganet
að gera með fordóma? Svarið er einfalt:
tauganet eru full af fordómum. Og á sama
hátt og illa upplýstum einstaklingi er hætt
við að komast að röngum niðurstöðum á
þeim sviðum þar sem þekkingin er hvað
mest götótt gefa illa þjálfuð tauganet röng
svör.
f tauganet eru ekki nægilega vel þjálf-
uð fyrir ákveðin verkefni gefa þau
röng svör sem byggjast á þeim fordómum
sem tauganetið hefur skapað sér. Ef tauga-
net sem t.d. hefur verið þjálfað til að
þekkja ýmis form og aðallega verið fóðrað
með hyrndum formum, t.d. frá þríhyrn-
ingi til átthyrnings, er kynnt fyrir tíhyrn-
ingi myndi það skilgreina tíhyrninginn
sem átthyrning.
Á sama hátt myndi tauganet sem aðal-
lega hefur verið fóðrað með mjúkum for-
mum skilgreina tíhyrninginn sem hring.
Tauganetið virðist horfa framhjá þeim
litla mun sem annars vegar er á átthyrn-
ingi og tíhyrningi og hins vegar á tíhyrn-
ingi og hring.
f litið er aftur til dæmisins um Lindu
virðist í grundvallaratriðum margt
líkjast í fordómum þeirra sem völdu ranga
fullyrðingu sem líklegri um Lindu og for-
dómum tauganetsins sem telur tíhyrning
hring; í báðum tilfellum byggjast lausn-
irnar á fyrirfram skapaðri mynd sem við-
fangsefnið er borið saman við. Það er því
ekki nóg með að okkar fullkomnu heilar
séu fullir af fordómum, heldur sköpum
við okkur einnig verkfæri sem við fyllum
af fordómum til að það skili sem bestum
árangri. En þegar allt kemur til alls er
kannski hin órökrétta hugsun sem á sér
stað í mannsheilanum ekki tákn um neins
konar rökleysu heldur æðri tegund af
hugsun, þar sem hinn óútreiknanlegi
mannsheili notar ógrynni af upplýsingum
frá hinum flókna og margbreytilega veru-
leika.
0
GAGNASÖFN Á GEISLADISKUM
PÉTUR BJÖRNSSON
Nýverið hóf Tölvuþjónusta Kópa-
vogs innflutning og sölu á geis-
ladrifum og efni á geisladiskum fyrir
tölvur. Greinarhöfundur brá sér á stað-
inn og fékk Steinþór Grímsson tækni-
mann til að sýna sér möguleika drifsins
og kynna efnið sem til er á diskum hjá
TÖK.
Meðal þess sem Steinþór var með á
diskum var álitlegt bókasafn þar sem
mátti m.a. finna öll ritverk Shakespear-
es. Annað sem vakti athygli mína var
nokkurs konar Atlas þar sem hægt var að
skoða öll lönd jarðar og fá um þau upp-
lýsingar er varða t.d. stjórnarfar, auð-
lindir í landinu, mannfjölda og jafnvel
nöfn þjóðhöfðingja og þekktra stjórn-
málamanna.
Eins og gefur að skilja var byrjað á
íslandi. Þá kom á skjáinn kort af íslandi
þar sem merktar voru inn helstu ár og
vötn og einnig nokkur fjöldi kaupstaða.
Kortið er að vísu ekki nákvæmt en í
umsögn um landið er farið yfir sýslusk-
iptingu, helstu kaupstaði o.þ.h. Stjórn-
arfarið er einnig tíundað en upplýsing-
arnar sem byggt er á eru frá árinu 1989
svo ekki er allt rétt miðað við daginn í
dag. Annar Atlas var yfir Bandaríkin
sérstaklega og var hann mun nákvæm-
ari.
Alfræðiorðabók á geisladiski er mjög
hentug. Fyrir utan það hversu miklu
plássminni geisladiskurinn er miðað við
bækurnar býður tölvusafnið upp á
margt sem ekki er möguleiki að gera
með bækurnar. Fyrir það fyrsta er marg-
falt fljótlegra að fletta upp í tölvu en
bókum og tölvan býður upp á ýmis kon-
ar sérhæfðar flettur.
Það má fletta upp einhverju efnisatr-
iði og fá fram allar upplýsingar sem disk-
urinn hefur að geyma um það eða láta
tölvuna leita að tveimur eða fleiri atrið-
um sem skarast á einhvern hátt. Stein-
þór sýndi þetta með því að fletta upp
Adolf Hitler og öllu því sem tengdi hann
við Munchen. Þetta býður upp á alls
kyns flettur sem tæki marga daga að
vinna úr í venjulegu safni.
Einn af aðalkostum gagnasafna á
geisladiskum er hversu mjög leitartími
styttist. Flettur taka aðeins örstutta
stund og nýtist það mjög vel í sérhæfð-
um söfnum eins og t.d. um læknisfræði,
lögfræði o.s.frv. Geisladiskur fyrir
tölvugeisladrif getur innihaldið gífurlegt
magn gagna, eða um 680 mb; gögn sem
samsvara vélrituðum A4 blöðum í
bunka á hæð við þriggja hæða hús.
eisladiskarnir og drifin eru nú flest
sniðin eftir sama staðli, ISO 9660,
sem gerir það að verkum að diskar ganga
auðveldlega á milli drifa og ekki er um
neinar hömlur að ræða þar. Einnig er
hægt að nota venjulega geisladiska í drif-
unum. Tölvugeisladrif hafa að vísu ekki
neinn stýribúnað eins og er á venjuleg-
um geislaspilara og verður því að stýra
drifunum í gegnum sérstakt forrit í tölvu
þegar á að spila venjulega tónlistardiska í því.
0
ÞJÓÐLÍF 81