Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2007, Blaðsíða 51
ÁGRIP ERINDA / XIII. VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ
slímhúðar, munnbaktería og munnvatnsframleiðslu. Spurningar
voru lagðar fyrir þátttakendur meðal annars til að meta heilsufar,
munnhirðu og mataræði.
Niðurstöður: Miðað við samanburðarhópinn höfðu Parkinsons
sjúklingar tapað marktækt fleiri tönnum (P<0,05). Þeir
höfðu hærra DMFT (P<0,05) og DMFS (p<0,01), dýpri
meðaltalspokadýpt á mældum tönnum (p<0,05), hærri gingival
index (p<0,01) og meiri tannsýklu (p<0,001). Ekki mældist
marktækur munur á sykurneyslu, sælgætisneyslu, tannburstun
eða munnvatnsframleiðslu meðal Parkinsons sjúklinga og
samanburðarhóps.
Alyktanir: Vitað er að vegna hreyfi-og farlömunar eiga
Parkinsons sjúklingar erfitt með eigin munnhirðu og að sækja
tannlæknaþjónustu. Hugsanlegt er að þetta valdi lakari útkomu
Parkinssons sjúklinga í flestum mælingum á munnheilsu í rannsókn
þessari. Niðurstöðurnar gætu komið heilbrigðisyfirvöldum að
gagni við að móta forvarnir og skipuleggja aðstoð við þennan
hóp.
E 76 Að innleiða nýja tækni í meðgönguvernd: Orðræða í
íslenskum fjölmiðlum um hnakkaþykktarmælingu
Hclga Gottfreðsdóttir, Kristín Björnsdóttir
Hjúkrunarfræðideild HÍ
helgagot@hi.is
Inngungur: í nútímasamfélögum eru fjölmiðlar áhrifamikill
þáttur í að móta viðhorf fólks varðandi heilbrigði og
heilbrigðisþjónustu. í þessari rannsókn er leitast við að skoða
umræðu um hnakkaþykktarmælingu í fjölmiðlum á íslandi,
áður en tekin var ákvörðun um að bjóða hana öllum verðandi
foreldrum. Rannsóknin er hluti af stærra verkefni sem felst í að
skoða hvernig ákvörðun verðandi foreldra um að þiggja skimun
fyrir fósturgöllum á fyrsta þriðjungi meðgöngu verður til.
Efniviður og aðferðir: Þau gögn sem byggt er á í þessum hluta
eru greinar og viðtöl sem birtust í dagblöðum frá ársbyrjun 2000
til loka árs 2005. Jafnframt voru skoðuð viðtöl og fréttaskýringar
1 Ijósvakamiðlum á sama tímabili, auk fræðsluefnis um
hnakkaþykktarmælingu sem ætlað var verðandi foreldrum.
Úrvinnsla gagna byggir á orðræðugreiningu þar sem lögð er
áhersla á að tungumálið sé mikilvægasti þátturinn í að móta
reynslu og vinnlag.
Niðurstöður: Áberandi í textum og viðtölum er það sem hægt
er að kalla gagnrýnislausa virðingu fyrir tækniframförum. Rík
áhersla er lögð á lykilhugtök svo sem upplýst val og áhættu. Inn
1 umræðuna fléttast hins vegar sjaldan umfjöllun um siðfræði,
félagslegar hliðar fósturskimunar eða fjárhagslegan ávinning.
Akvörðun um að skima fyrir Downs heilkenni á meðgöngu er
véfengd af örfáum aðilum.
Alyktanir: Samfélagslegir þættir eiga án efa stóran þátt í þeirri
þróun sem á sér stað hér á landi varðandi innleiðingu nýrra
aðferða til skimunar fyrir fósturgöllum. íslenska þjóðin er fremur
einsleit og rík áhersla er á neyslu og óheft val almennings varðandi
hvers kyns þjónustu. Mikilvægt er að þeir sem koma að ráðgjöf og
þjónustu við verðandi foreldra hafi þekkingu á samspili þeirra
fjölmörgu þátta sem móta viðhorf og reynslu þess hóps, og skilji
jafnframt mögulegar afleiðingar fósturskimunar.
E 77 Þekking og viðhorf varðandi fósturskimun og
fósturgreiningu á íslandi
Vigdís Stcfánsdóttir'. Heather Skirton2, Jón Jóhannes Jónssonu, Hildur
Harðardóttir4
'Erfða- og sameindalæknisfræðideild Landspítala, 2Plymouth University,
’Lífefna- og sameindalíffræðistofa læknadeildar HÍ,4fósturgreiningadeild
Landspítala
vigdisst@lan dspitali. is
Inngangur: Öllum þunguðum konum á íslandi er boðin
fósturskimun á fyrsta þriðjungi meðgöngu. Ef líkur á fósturgalla/
fráviki eru auknar, er boðið upp á fósturgreiningu með
legástungu og litningarannsókn. Mikilvægt er að ákvörðun um
þátttöku í fósturskimun sé tekin með réttar og nægar upplýsingar.
Markmið rannsóknarinnar var að kanna þekkingu og skilning
barnshafandi kvenna á skimun og fósturgreiningu á fyrsta
þriðjungi meðgöngu.
Efniviður og aðfcrðir: Rannsóknin var í tveim hlutum hjá
tveimur hópum kvenna á fyrsta þriðjungi meðgöngu, í hvorum
hópi 200 konur. Fyrri hópurinn fékk hefðbundnar upplýsingar
en seinni fékk að auki upplýsingabækling um fósturskimun og
fósturgreiningu. Ljósmæður afhentu konum spurningalista með
21 spurningu. Spurt var um fósturskimun og fósturgreiningu,
upplýsingagjöf og rannsóknir. Einnig hverju væri skimað fyrir
og hvernig niðurstaða skimunar væri túlkuð með tilliti til hugs-
anlegra fósturgalla. Gefinn var kostur á því að svara með frjálsum
texta á nokkrum stöðum.
Niðurstöður: Yfir 50% þátttakenda sögðust myndu þiggja boð
um fósturskimun. Af þátttakendum í fyrri hluta sögðu 63%
upplýsingar í mæðravernd vera mjög gagnlegar en 37% í seinni
hluta. Úr fyrri hópnun sögðu rúmlega 40% að skimað væri fyrir
þrístæðu 13 og 18 en yfir 60% í seinni hópnum.
Úr fyrri hluta rannsóknarinnar eru niðurstöður þær að 34%
þátttakenda svara því að ólíklegt sé að barn sé með Downs
heilkenni ef niðurstaða úr skimprófi sýnir litlar líkur en 78%
úr seinni hópnum. Af heildarfjölda vissu 83% að fósturskimun
er gerð með ómskoðun, 72% blóðrannsókn, 85% hnakkaþykkt.
Þrjátíu og átta af hundraði höfðu fengið upplýsingar um
rannsóknir á meðgöngu hjá ljósmóður. Um 60% vildu helst fá
upplýsingar frá ljósmóður en 30% frá lækni. Greining á frjálsum
texta, þar sem þátttakendur útskýra í eigin orðum fósturskimun
og fósturgreiningu, sýndi að talsverð þörf er á aukinni fræðslu til
verðandi foreldra varðandi fósturskimun og fósturgreiningu.
Ályktanir: Niðurstöður úr valspurningum og innihaldsgreining á
frjálsum texta sýna að þekking verðandi mæðra á fósturskimun
og fósturgreiningu er takmörkuð. Brýn þörf er að bæta úr upplýs-
ingagjöf til verðandi foreldra.
E 78 Hlutverk hjúkrunarfræðinga og Ijósmæðra við skimun
vanlíðunar eftir fæðingu og við meðferð hennar. Fræðileg
úttekt
Marga Tliome,Anna ísabela Górska, Hrafnhildur Björk Brynjarsdóttir
Hjúkrunarfræðideild HÍ
marga@hi.is
Læknablaðið/fylgirit 53 2006/93 51