Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2007, Page 69

Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2007, Page 69
AGRIP ERINDA / XIII. VÍS NDARÁÐSTEFNA H í ■ forvísbenda (pre-cueing) og síðvísbenda (post-cueing). Pessi rannsókn sýnir að undanfarin 40 til 50 ár hefur aðferðafræðileg skipting milli athyglisáhrifa og táknunarminni hulið tauga- og Iífeðlisfræðileg líkindi milli þeirra. Áhrif forvísbendinga og síðvísbenda eru einfaldlega tvær birtingarmyndir tveggja mismunandi heilaferla. Fjallað verður um mögulegar ástæður þessa og ekki síður hvernig starfræn segulómmyndun og skyldar aðferðir geta varpað nýju ljósi á langvinn álitamál inna taugavísinda og vísinda hugarstarfsins. E 126 Tilfinningaleg líðan og lífsgæði sjúklinga með ristil- og endaþarmskrabbamein eftir skurðaðgerð Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir', Hjördís Hjörvarsdóttir2, Herdís Sveins- dóttir1-2 'Hjúkrunarfræðideild HÍ, 2skurðlækningasvið Landspítala herdis@hi.is Inngangur: Á íslandi greinast um 115 einstaklingar árlega með ristil- eða endaþarmskrabbamein. Erlendar rannsóknir benda til að sjúklingum Iíði verr tilfinningalega og meti lífsgæði lakar stuttu eftir skurðaðgerð heldur en fyrir, eða að lengri tíma liðnum. Rannsóknin kannar og lýsir tilfinningalegri líðan og Iífsgæðum sjúklinga með ristil- og endaþarmskrabbamein eftir skurðaðgerð. Efniviður og aðferðir: Á hálfu áru tóku þátt 19 sjúklingar sem fóru í skurðaðgerð á Landspítala vegna ristil- og endaþarmskrabbameins án stóma. Spurningalisti (EQ-5D, HADS og sérhannaðar spurningar) var lagður fyrir á skurðdeild og aftur heima eftir sex til átta vikur. Niðurstöður: Meðalaldur var 66,6 ár, 11 karlar og átta konur. Flestir töldu heilsu fyrir greiningu krabbameins góða og voru jákvæðir gagnvart umönnun. Lífsgæði táknuðu oftast heilbrigði, fjölskylduna og efnahagslega þætti. Á sjúkrahúsi voru lífsgæði skert en bötnuðu marktækt varðandi hreyfigetu, sjálfsumönnun, venjubundin störf og athafnir. Vandamál tengd verkjum voru lítil. Tilfinningaleg líðan var almennt góð. Kvíðaeinkenni og óvissa voru marktækt meiri, en stjórn á aðstæðum marktækt minni í sjúkrahúslegu. Nokkrir þátttakendur höfðu töluvert skert lífsgæði °g mikla vanlíðan í kjölfar aðgerðar. Ályktanir: Lífsgæði eru að mestu leyti háð líkamlegum þáttum en tilfinningaleg líðan hefur minni áhrif. Líkamlegum þáttum og fræðslu er vel sinnt en heilbrigði er mikilvægt viðfangsefni í hjúkr- un skurðsjúklinga. Mælitæki rannsóknarinnar geta nýst hjúkrunar- fræðingum við að meta vanlíðunareinkenni. Sífellt styttri legutími ú sjúkrahúsum gerir það að verkum að hjúkrun þarf að verða markvissari til að besta mögulega heilbrigðisþjónusta sé veitt og líkur á mikilli vanlíðan eða alvarlegum sálrænum og líkamlegum fylgikvillum minnki. E127 Lífsgæði, einkenni kvíða og þunglyndis og endurhæfingarþarfir einstaklinga sem fá lyfjameðferð við krabbameini Þórunn Sævarsdóttir', Nanna Friðriksdóttir ‘-2, Sigríður Gunnarsdóttir1-2 'Landspítali, 2Háskóli Islands torunnsa@lnndspitali. is Inngangur: Ár hvert greinast 1.100 einstaklingar með krabbamein hér á landi. Það að greinast og fá meðferð við krabbameini hefur áhrif á lífsgæði, lífsgæði hafa því verið mikilvægur þáttur í hjúkrun einstaklinga með krabbamein. Markmið rannsóknarinnar er að lýsa lífsgæðum, einkennum kvíða og þunglyndis og endurhæfingarþörfum, yfir tíma hjá einstaklingum sem fá lyfjameðferð við krabbameini. Efniviður og aðferðir: Þátttakendur svöruðu spurningalista við upphaf lyfjameðferðar (Tl) og eftir þrjá mánuði (T2). Mælitækið CARES-SF (CAncer Rehabilitation Evaluation System, Short Form) var notað til að meta lífsgæði og endurhæfingarþarfir. Einkenni kvíða og þunglyndis voru metin með HADS (Hospital Anxiety and Depression Scale) spurningalistanum. Niðurstöður: Eitt hundrað fjörutíu og fjórir einstaklingar svöruðu spurningalistanum við upphaf lyfjameðferðar, 90 konur og 54 karlar. Meðalaldur var 55 (12,1) ár, 109 einstaklingar svöruðu spurningalistanum eftir þrjá mánuði. Lífsgæði mældust marktækt verri eftir þrjá mánuði borið saman við upphaf Iyfjameðferðar. Á báðum tímapunktum voru hæstu skorin á kynlífs- og líkamlega þætti CARES-SF spurningalistans, sem bendir til þess að lífsgæði séu verst á þeim þáttum. Lægsta skor, sem bendir til betri lífsgæða, var á báðum tímapunktum á þættinum samskipti við heilbrigðisstarfsfólk. Lýðfræðilegar breytur og sjúkdómsbreytur höfðu ekki marktæk áhrif á lífsgæði, fyrir utan aldur. Lífsgæði voru marktækt betri hjá þeim sem voru eldri. Marktækt fleiri þátttakendur skoruðu yfir 11 á þunglyndishluta HADS spurningalistans eftir þrjá mánuði sem gefur til kynna einkenni þunglyndis. Lífsgæði voru marktækt verri hjá þeim einstaklingum sem upplifðu möguleg einkenni, eða einkenni kvíða og þunglyndis, borið saman við þá sem ekki upplifðu einkenni kvíða eða þunglyndis. Þátttakendur höfðu 1-25 (meðaltal 3,3) endurhæfingarþarfir við upphaf lyfjameðferðarinnar og 1-29 (meðaltal 2,97) eftir þrjá mánuði. Ályktanir: Marktækt verri lífsgæði mældust eftir þrjá mánuði, borið saman við upphaf lyfjameðferðar. Lífsgæði mældust mark- tækt verri hjá þeim sem upplifðu einkenni kvíða eða þunglyndis. E 128 Forprófun á PDQ-39 IS, lífsgæðalisti fyrir fólk með Parkinsons veiki. Pilot-study Hal'dís Gunnbjörnsdóttir, Ólöf H. Bjarnadóttir Reykjalundur endurhæfing OlofB@REYKJA LUND UR.is Inngangur: Fólk með Parkinsons veiki hefur auk skerðingar á hreyfigetu ýmis önnur einkenni, sem hafa áhrif á þeirra daglega líf. PDQ-39 (Parkinson's Disease Questionnaire) er sértækur Læknablaðið/fylgirit 53 2006/93 69
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.