Frjáls verslun - 01.02.2009, Side 21
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9 21
Forsíðugrein Ljósið í myrkrinu
Margrét Guðmundsdóttir,
forstjóri Icepharma og formaður FÍS:
Viljinn er okkar
samkeppnisforskot
Bara sú staðreynd að dagurinn er nú orðinn lengri en
nóttin hjálpar strax. Það er trú mín að ef ný gildi verða
ofan á í þjóðfélaginu, þar sem traust og gagnkvæm virð-
ing ríkir, þá vinnum við okkur út úr þessu erfiða ástandi.
Við þurfum hins vegar á leiðtogum að halda sem skapa
þannig umgjörð að einstaklingarnir í landinu geti unnið
að sínum málum án þess að hafa of miklar áhyggjur af
utanaðkomandi aðstæðum. Það er styrkur fyrir Íslendinga
að atvinnuleysi hefur aldrei náð að festa rætur og fólk er
tilbúið til að taka þá vinnu sem gefst. Þetta er kannski
mesta samkeppnisforskot okkar Íslendinga í samanburði
við aðrar þjóðir þar sem einstaklingarnir treysta á að
stjórnvöld leysi öll þeirra mál.
Finnur Árnason, forstjóri Haga:
Viðfangsefnið er
hugarfarsbreyting
Þessa dagana getur verið erfitt að sjá ljósið í myrkrinu. Efnahagslegt áfall
þjóðarinnar er slíkt að við fyrstu sýn virðumst við vera í myrkrinu með
blautar eldspýtur. Það er hinsvegar ekki allskostar rétt. Áfallið er jú mikið,
en við stöndum ekki frammi fyrir heimsendi.
Ég hef undanfarið hitt á nokkrum fundum jákvætt fólk úr ýmsum áttum,
sem hefur komið saman til þess eins að horfa jákvætt fram á veginn. Þar
hafa komið fram margar skemmtilegar hugmyndir að verkefnum til fram-
fara.
Hvað þjóðina varðar, þá eru auðlindirnar enn til staðar, fiskurinn í
sjónum, orkan og fólkið með sína þekkingu, menntun og reynsla. Fjölmargir
eru þegar farnir að finna lausnir á eigin vanda og sjá tækifæri í núverandi
stöðu.
Mitt mat er að meginviðfangsefni þjóðarinnar sé hugarfarsbreyting. Þar
þurfum við öfluga forystu á hinum ýmsu sviðum. Atvinnulífið er ekki undan-
skilið. Mikilvægasta verkefni stjórnenda nú er að taka forystu, finna lausnir
og leiða fyrirtækin út úr þeim vanda sem þau eru í. Þar reynir á stjórnendur
að vinna náið með samstarfsfólki sínu við mjög erfiðar aðstæður. Starf
með öflugu fólki að krefjandi verkefnum er hinsvegar mjög gefandi.
Ég hef sagt sem svo að það hafi aldrei verið meiri þörf fyrir öfluga
þjálfara og fyrirliða, sem geta stillt upp liði með skýr markmið, leikgleði og
sigurvilja. Finnur Árnason.
Margrét Guðmundsdóttir.