Frjáls verslun - 01.02.2009, Page 32
32 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9
N æ r m y N d
L
ára V. Júlíusdóttir, formaður bankaráðs Seðlabankans, er
löngu kunn í íslensku samfélagi. Hún var framkvæmda-
stjóri ASÍ á árunum 1988 til 1994 þegar hún söðlaði um
og hóf rekstur eigin lögfræðistofu; Borgarlögmenn. Hún
hefur unnið náið með Jóhönnu Sigurðardóttur og var
aðstoðarmaður hennar í eitt ár þegar Jóhanna varð félagsmálaráðherra
eftir alþingiskosningarnar 1987 en Lára var einmitt í framboði fyrir
Alþýðuflokkinn í þeim kosningum. Lára segist vera mikil Jóhönnu-
konu í pólitíkinni.
Lára fæddist þann 13. apríl 1951 í Reykjavík þar sem hún ólst upp
en hún hefur aðeins einu sinni flutt á ævinni, úr húsi móður sinnar
í hús ömmu sinnar, eins og hún segir sjálf. Hún var þriðja barnið í
hópi fjögurra systkina en móðir þeirra var einstæð og Lára vandist því
fljótt að gera flesta hluti sjálf. Hún hóf að bera út blöð átta ára gömul
og segist ekki muna eftir sér öðruvísi en í vinnu með skóla um sumur
og jól. Sem krakki var hún í sveit á sumrin en fór 14 ára gömul að
vinna í prentsmiðju og var þar til 17 ára aldurs þegar hún fór að vinna
á skrifstofu, þá hafði hún verið í Verslunarskólanum nokkra vetur og
kunni að vélrita, sem nýttist vel til slíkra starfa.
Á unglingsárunum fór Lára sem skiptinemi til Ameríku í eitt ár en
bróðir hennar og frændi höfðu verið skiptinemar og síðar fóru börn
Láru líka sem skiptinemar. Varð hún upp úr því formaður AFS-sam-
takanna í ein átta eða níu ár og því lengi vel viðloðandi slík nem-
endaskipti.
ákveðin að fara í viðskiptafræði
Aðspurð hvort Lára hafi snemma heillast af lögfræðinni segist hún
fyrst muna eftir að hafa fundið fyrirmynd tíu ára gömul í Guðrúnu
Erlendsdóttur sem var vinkona systur vinkonu Láru. Hún hafi ætíð
litið upp til Guðrúnar og fylgst með hvernig henni vegnaði. Við
útskrift úr Verslunarskólanum, þar sem Lára fékk verðlaun í við-
skiptagreinum og tekið var við hana viðtal í Tímanum, þar sem hún
var spurð hvað hún ætlaði sér næst, svaraði hún hins vegar ákveðin
að hún ætlaði í viðskiptafræði en var mánuði seinna búin að skrá sig
í lögfræði. Hún segir bróður sinn hafa lagt hart að sér að fara í lög-
fræðina því það væri miklu betra að vera lögfræðingur en viðskipta-
fræðingur án þess að hann rökstyddi það frekar. Hún hafi ekki séð
eftir þeirri ákvörðun þó svo að sér hafi ekki fundist námið sérlega
skemmtilegt, lesefnið fremur þurrt og mikill utanbókarlærdómur.
Á háskólaárunum naut hún sín þó vel og tók þátt í félagslífi deild-
arinnar og í stúdentapólitíkinni og var gjaldkeri stúdentaráðs, svo
nokkuð sé nefnt.
Genetískir kratar og miklir naglar
Lára hefur lengi vel verið öflug í ýmiss konar félagsmálum og var
strax sem barn komin í skátastarf. Hún segir að þennan áhuga megi
vafalaust að einhverju leyti rekja aftur til ömmu hennar og móður
sem báðar voru á sínum tíma í stjórn verkakvennafélagsins Fram-
sóknar, báðar genetískir kratar og miklir naglar. Þetta segir Lára hafa
smitað út frá sér þannig að hún hafi sterka réttlætiskennd og láti ekki
allt yfir sig ganga.
Árið 1975 á kvennafrídeginum, þegar Lára var á kafi í háskóla-
pólitíkinni, var starfandi mjög öflug jafnréttisnefnd á vegum stúd-
entaráðs háskólans og upp úr því kom til mikill jafnréttisáhugi hjá
Láru. Hún tók þátt í starfsemi Kvennaframboðsins og vann heil-
mikið í ýmsum kvennamálum árin 1984 og 1985. Meðal annars sat
hún í framkvæmdanefnd um launamál kvenna en árið 1985 var aftur
haldið kvennaár og þá var Lára í nefnd með Jóhönnu Sigurðardóttur
sem varð til þess að hún fór að vinna með Alþýðuflokknum og fór í
framboð 1987.
Upp frá því segist hún hafa orðið mikil Jóhönnukona og þegar
Jóhanna varð félagsmálaráðherra eftir alþingiskosningarnar árið 1987
gerðist Lára aðstoðarmaður hennar í eitt ár. Það ár tók hún sér hlé frá
störfum hjá Alþýðusambandinu þar sem hún hafði hafið störf sem
lögfræðingur árið 1982 og farin að starfa í félagsmálum, sem hún
segir hafa verið mjög skemmtileg. Frá árinu 1988 til 1994 var Lára
framkvæmdastjóri ASÍ, en þá hóf hún rekstur lögfræðistofu og rekur
nú lögfræðistofuna Borgarlögmenn ásamt þremur öðrum konum.
Lára hefur einnig unnið í hlutastarfi sem lektor við Háskóla Íslands
frá árinu 1996. Hún kenndi fyrst í Verslunarskólanum þegar hún var
nýútskrifaður lögfræðingur og féll þá fyrir kennslustarfinu. Á þeim
tíma skrifaði hún einnig kennslubók í verslunarrétti í lögfræði.
Þyngra en tárum taki
Bankahrunið og allt sem því fylgdi segir Lára að sér hafi fundist
skelfilegt og hún hafi nánast verið í losti í vetur yfir öllum þeim nei-
kvæðu fréttum um spillingu og græðgi sem hafi smám saman verið
að koma upp. Afar sorglegt sé hvernig ákveðnir einstaklingar hafi ger-
samlega misst öll raunveruleikatengsl og það að verið sé að setja börn
sín og barnabörn í skuldir þyki sér sárara en tárum taki. Hún kveðst
Lára V. Júlíusdóttir hæstaréttarlögmaður og lektor við Háskóla Íslands tók nýlega við
sem formaður bankaráðs Seðlabankans. Hún hefur jafnframt verið skipuð umsjónaraðili
Íslenska lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs Eimskipafélags Íslands.
TExTI: maría óLaFsdóttir ● MyNDIR: geir óLaFsson
LÁRA V. JÚLÍUSDÓTTIR, FORMAðUR BANKARÁðS SEðLABANKA
Jákvæð, félagslynd og heilsteypt