Frjáls verslun - 01.02.2009, Blaðsíða 48
48 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9
f r é t t a s k ý r i n G : t E k i s t á u m t a l
eftirlitsins og ákvæði samkeppnislaga með því að hafa komist að
samkomulagi um að Tal ætti að beina sjónum sínum að yngri mark-
hópum og stunda ekki samkeppni gagnvart Vodafone.
Þá telur Samkeppniseftirlitið að sennilegt sé að tiltekin ákvæði í
sýndarnetssamningi Tals og Vodafone um aðgang Tals að farsímaneti
Vodafone séu til að tryggja hagsmuni Vodafone og Teymis, sem sé
andstætt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins.
Samkeppniseftirlitið telur líklegt að fulltrúar Teymis hafi beitt sér
gegn samkeppnislegu sjálfstæði Tals og því sé nauðsynlegt að gera
breytingar á stjórn Tals. Ella sé hætta á því að Teymi og Vodafone geti
veikt Tal varanlega sem keppinaut á markaði.
teymi vísar á bug getgátum um samráð
Árni Pétur Jónsson, forstjóri Teymis, lýsti því yfir að ekki yrði unað
við ákvörðun Samkeppniseftirlitsins og vísaði á bug getgátum um
samráð. Í yfirlýsingu frá stjórn Teymis segir að þvert á móti hafi
félögin átt í harðri samkeppni eins og skoðun á markaðsaðgerðum og
vöruframboði félaganna beri vitni um.
Stjórn Teymis segir einnig í yfirlýsingu að við rannsókn málsins
hafi félagið lagt til við Samkeppniseftirlitið að stjórn Tals yrði að
fullu skipuð óháðum aðilum á meðan rannsókn stæði yfir. Í bráða-
birgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins sé hins vegar kveðið á um að
óháðir aðilar taki við stjórnarsetu fyrir meirihlutaeigendur félagsins
eingöngu, en fulltrúar minnihluta í stjórn geti setið áfram í stjórn
félagsins en slíkt gæti augljóslega leitt til þess að Teymi hefði engin
áhrif á stjórn Tals þrátt fyrir að eiga 51% í fyrirtækinu.
Að mati Teymis var slík ákvörðun óviðunandi og því verði henni
áfrýjað til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Þar sem fulltrúar félags-
ins hafi vikið úr stjórn Tals teljist Teymi ekki lengur hafa yfirráð yfir
félaginu í skilningi reikningsskilastaðla og verði félagið því ekki tekið
með í samstæðuuppgjör Teymis.
aldrei kynnst svona miklum viðskiptasóðaskap
Hilmar Ragnarsson og Þórhallur Örn Guðlaugsson stöldruðu þó
stutt við í stjórn Tals eða rétt tæpa viku. „Aldrei áður höfum við
kynnst eins miklum viðskiptasóðaskap á þeim tíma sem við höfum
tengst viðskiptum, kennslu í viðskiptafræðum og rekstri félaga, sam-
anlögð reynsla sem spannar vel yfir 50 ár,“ segir í bréfi sem þeir sendu
til Samkeppniseftirlitsins og annarra stjórnarmanna í Tali þegar þeir
sögðu sig úr stjórninni.
„Okkur hefur verið bent á að með því að gera það séum við að láta
Teymi komast upp með að bola stjórninni frá. Það er auðvitað undarlegt
að taka þannig til orða, sérstaklega þegar haft er í huga að Teymi er meiri-
hlutaeigandi í félaginu og ætti að vilja veg þess sem mestan. Það virðist
hins vegar fátt benda til þess að svo sé,“ segir ennfremur í bréfinu.
Stjórn Teymis mótmælti í fréttatilkynningu harðlega fullyrðingum
um að félagið hafi staðið óeðlilega að rekstri Tals. „Fullyrðingar um
að Teymi hafi hlutast til um verkefni stjórnar eftir að fulltrúar Sam-
keppniseftirlitsins tóku þar sæti eru stórlega orðum auknar. Einu
afskipti Teymis af stjórnarsetu hinna óháðu stjórnarmanna fólust í
áréttingu félagsins um að lögum væri fylgt í hvívetna,“ að því er fram
kom í tilkynningunni.
Hermann aftur í forstjórastólinn
Aftur dró til tíðinda í deilunni 25. febrúar þegar fjármálaráðuneytið
úrskurðaði að fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra bæri að afmá tilkynningu
um breytingu á framkvæmdastjórn og prókúruhafa Tals frá 12. janúar
sl. þess efnis að Ragnhildur Ágústsdóttir tæki við forstjórastarfinu og
prókúru af Hermanni Jónassyni. Í samræmi við þessa niðurstöðu ráðu-
neytisins var skráningu breytt til fyrra horfs og Ragnhildi í framhald-
inu vikið frá störfum og Hermann skipaður forstjóri á nýjan leik.
Í úrskurði fjármálaráðuneytisins var fallist á kröfu þeirra Jóhanns Óla
og Hermanns um að fyrirtækjaskrá hafi ekki verið heimilt þann 12.
janúar sl. að staðfesta breytingar á stjórn Tals þar sem ákvarðanir um
þær hafi ekki verið teknar með lögmætum hætti, í samræmi við sam-
þykktir félagsins og lög um einkahlutafélög.
Dramatíkinni var þó ekki lokið. Jóhann Óli og Stefán Þórisson,
lögmaður hans, komu í höfuðstöðvar Tals 25. febrúar ásamt Hermanni.
Á meðan Hermann kynnti ákvörðun fjármálaráðuneytisins fyrir starfs-
mönnum Tals segir Ragnhildur að Jóhann Óli og Stefán hafi haldið sér
nauðugri í fundarherbergi í hátt í klukkustund til þess að hún myndi
ekki trufla fundinn. Jóhann Óli hefur neitað þessari ásökun. Ragn-
hildur Ágústsdóttir kærði Jóhann Óla og Stefán til lögreglu fyrir
frelsissviptingu. Lögreglan í Reykjavík hefur málið til meðferðar.
Þórdís segir að með þessu hafi þeir brotið gróflega á Ragnhildi,
sem þeir hafa ítrekað reynt að hrekja úr starfi forstjóra Tals á und-
anförnum vikum, jafnvel þótt hún sem barnshafandi njóti laga-
verndar gegn uppsögn, sagði Þórdís.
Hún segir að úrskurður fjármálaráðuneytisins lúti ekki að lögmæti
brottvikningar Hermanns úr starfi forstjóra eða ráðningar nýs forstjóra í
kjölfarið heldur formreglum hlutafélagalaga. „Teymi lítur svo á að allar
ákvarðanir sem Hermann tekur sem sjálfskipaður forstjóri Tals séu ólög-
mætar þar til dómstóll hefur úrskurðað í málinu,“ segir Þórdís.
málið ekki til lykta leitt nema frammi fyrir dómstólum
Teymi gerði loks sátt við Samkeppniseftirlitið sem fól í sér að kosnir
yrðu tveir óháðir einstaklingar í stjórn Tals, sem hefðu ekki hagsmuna-
tengsl við Teymi. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá 27. febrúar, þar
sem fram kemur að Teymi hafi fallist á óháða stjórnarmenn, kemur
jafnframt fram að Teymi hafi fallist á að félaginu sé óheimilt að beita
atkvæðavægi sínu eða eignarhlut í Tali til þess að hafa áhrif á störf
stjórnar Tals.
Stjórn Teymis lýsti því jafnframt yfir í kjölfarið að það mundi ekki
grípa til neinna ráðstafana sem raskað gætu samkeppnislegu sjálfstæði
Tals.
Á hluthafafundi Tals 2. mars var skipuð ný stjórn Tals. Í henni sitja
Jóhann Óli Guðmundsson, Jón Steinar Guðjónsson, Arnþór Halldórs-
son og Telma Halldórsdóttir.
Arnþór Halldórsson og Telma Halldórsdóttir voru tilnefnd af hálfu
Teymis til stjórnarsetunnar. Jón Steinar kemur í stað Hermanns sem
ákvað að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Arnþór er
fyrrverandi forstjóri Hive og Jón Steinar starfaði einnig hjá fyrirtækinu
áður en það og Sko sameinuðust og úr varð Tal. Telma starfar sem lög-
fræðingur.
Þessi dramatík endar sem dómsmál.