Frjáls verslun - 01.02.2009, Blaðsíða 52
52 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9
Í flokknum Dagblaðsauglýsingar voru tilnefndar:
Sjómannadagurinn (Landsbankinn), framleiðandi Gott fólk,
19. júní (Landsbankinn), framleiðandi Gott fólk, Kona forsæt-
isráðherra (Háskólinn í Reykjavík), framleiðandi Hvíta húsið, Til
hamingju strákar (Mjólkursamsalan), framleiðandi Hvíta húsið,
og Þetta helst í 95 ár (Árvakur/Morgunblaðið), framleiðandi
Fíton.
„Hugmyndin að auglýsingunum var að nálgast vel þekktar
ljósmyndir frá sögulegum atriðum er tengjast sjómanna-
stéttinni. Í þessu tilfelli er frægt atvik úr Þorskastríðinu end-
urskapað þegar varðskipið Ægir veitir breska togaranum
Everton eftirför 26. maí 1973. Hilmir Snær Guðnason er þar í
hlutverki Guðmundar skipherra Kjærnested. Um leið vildum
við vekja athygli á sterkum tengslum Landsbankans við alla
landsmenn,“ segir Gary M. Wake, hönnunarstjóri hjá Góðu
fólki, en þaðan kom verðlaunaauglýsingin Sjómannadagurinn.
Þegar Gary er spurður hvort öðruvísi sé að vinna auglýs-
ingar sem gilda aðeins í einn dag segir hann að eitt meg-
inatriðið hljóti að vera að hún sé tilbúin á réttum tíma svo
stundum þarf að hafa hraðar hendur: „Við höfðum góðan
tíma sem gaf okkur, um leið og við unnum auglýsinguna,
tækifæri til að hugleiða hvað er mikilvægt fyrir Landsbankann.
Með auglýsingunni er ekki verið að selja neitt heldur aðeins
verið að vekja athygli á einum sérstökum degi og að
Landsbankinn ber virðingu fyrir sjómönnum.“
Viðbrögðin við auglýsingunni voru mjög jákvæð að sögn
Garys: „Undirbúningsvinnan var mikil og þar komu margir
til hjálpar, bæði okkar fólk og sagnfræðingur sem pass-
aði upp á að allt væri rétt og Landhelgisgæslan sem veitti
okkur allan þann stuðning sem við báðum um. Má nefna að á
myndinni, sem Ari Magg tók, er Hilmir Snær með kíkinn sem
Guðmundur Kjærnested notaði í þorskastríðinu.“
Dagblaðsauglýsingar
Kíkir sem notaður
var í þorskastríðinu
ÍMARK
verðlaunin
Gott fólk
Gary M. Wake, hönnunarstjóri ásamt Mörtu Þórðardóttur,
sem starfaði sem tengill í auglýsingaherferðinni.