Frjáls verslun - 01.02.2009, Side 62
62 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9
Helgi Magnússon, nýendurkjörinn formaður Samtaka iðnaðarins,
hóf ræðu sína með því að segja að stundum hefði verið deilt um
hvort athyglin hafi beinst um of að hagvextinum, hvort við hefðum
blindast af efnishyggju og hagvaxtarþrá á kostnað annarra mikilvægra
gilda. Hyggist Íslendingar hefja ferð sína upp úr öldudalnum, verði
það ekki gert án öflugrar verðmætasköpunar í atvinnulífinu.
„Við vinnum ekki til baka töpuð lífskjör, fyrra atvinnustig og
laskað atvinnulíf nema með því að nýta ÖLL þau tækifæri sem völ er
á í íslensku atvinnulífi.“ Hann sagði að við hefðum ekki efni á að láta
skynsamleg og raunhæf tækifæri fram hjá okkur fara, né efni á stjórn-
málaöflum eða stjórnsýslustofnunum sem tefðu framvindu hagvaxt-
arskapandi atvinnuuppbyggingar. Við þyrftum einungis kraftmikla
og markvissa uppbyggingu.
Viðfangsefnið væri EKKI, að mati Helga, að skapa hið NÝJA
ÍSLAND heldur að finna GAMLA ÍSLAND og endurreisa þau
gildi sem reynst hefðu mætavel um langan tíma og skapa nýtt á
þeim grunni. „Íslendingar hafa orðið fyrir áföllum, sjálfsmyndin er
sködduð ... Það er engin ástæða til uppgjafar. Það er engin ástæða til
sjálfsvorkunnar. Við þurfum að finna hvar við stöndum og hvert við
stefnum.“ Allt of margir festa sig við fortíðarvanda, líta ekki fram á
veginn, reyna að finna sökudólga. „Þeir gera þjóðinni ekkert gagn.
Hefndarþorsti mun ekki leiða til farsældar.“
Helgi Magnússon, formaður Si:
Finnum Gamla Ísland
enn sem komið er liggja fyrir hjá Hagstofu Íslands mjög ófullkomnar tölur
um hlut iðnaðarins í landsframleiðslu árið 2008. yfirleitt eru ekki komnar
tölur sem mark er á takandi fyrir nýliðið ár fyrr en að hausti árið eftir.
Samkvæmt upplýsingum í gögnum Hagstofu Íslands bendir þó allt til þess
að hlutur iðnaðarins verði svipaður árið 2008 og hann var árið 2007, en
þá var hann 24,3%.
Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands fyrir árið 2008 eru
11,6% flokkuð undir iðnað, miðað við tölur frá því í byrjun mars. Samtök iðn-
aðarins telja þó til iðnaðar mannvirkjagerð, stóriðju, hátækniiðnað og annan
iðnað og á árinu 2007 varð niðurstaðan úr þessum flokkum hjá Si 24,3%
af landsframleiðslu. Við þau 11,6% sem Hagstofan flokkar undir iðnað í
bráðabirgðatölum sínum má því bæta bráðabirgðatölum um byggingastarf-
semi og mannvirkjagerð, 10,6%. Samanlagt gera þessar tölur 22,25%. en
þá vantar enn nokkuð upp á svo allt sé talið með sem er í tölum Si. Þær
prósentur munu koma, samkvæmt upplýsingum Si, úr þjónustuhlutanum
en vissir hlutar iðnaðar eru meðtaldir í þeim flokki, svo sem ljósmyndun,
snyrting og hlutar af upplýsingatækni svo nokkuð sé nefnt. Vægi iðnaðar-
ins hefur verið stöðugt í kringum fjórðung af landsframleiðslu í mörg ár, að
því er segir í gögnum Si: „Mestur vöxtur hefur verið í mannvirkjagerð, en
allar líkur eru á að sú grein dragist nokkuð saman á næstu misserum. Hins
vegar standi vonir til að aðrar greinar iðnaðar geti sótt í sig veðrið.“
landsframleiðsla árið 2008 nam 1.465 milljöðrum króna og jókst raun-
gildi framleiðslunnar um 0,3% frá árinu á undan. Vöxturinn frá 2006 til
2007 nam aftur á móti 5,5%.
Hlutur iðnaðar í landsframleiðslu
svipaður 2008 og 2007
Helgi Magnússon, nýendurkjörinn formaður samtaka iðnaðarins.
iðnþing 2009
Landsframleiðsa og skipting
verðmætasköpunar 2007
Annar
iðnaður 8,0%
Hátækniiðnaður 3,9%,Stóriðja 2,0%
Mannvirkjagerð 10,4%
Hlutfall iðnaðar af landsframleiðslunni árið 2007 var 24,3%.
Verslun, hótel
veitingahúsa-
rekstur 11,5%
Fræðslu-
starfsemi 4,9%
Samgöngur
og flutningar
5,7%
Fjármála
þjónusta
og tryggingar
9,1%
Fasteigna-
viðskipti ýmis
sérhæfð
þjónusta 14,3%
Opinber
stjórnsýsla 5,5%
land-
búnaður
1,4%
Önnur samfélags-
þjónusta 3,3%
Heilbrigðis-
og félags-
þjónusta 9,1%
Veitu-
starfsemi
4,3%