Frjáls verslun - 01.02.2009, Síða 81
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9 81
iðnaður
Alþingi samþykkti nýverið lög um 100%
endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu á
byggingarstað, bæði íbúðarhúsnæðis og
sumarhúsa. Nýju lögin eru tímabundin ráð-
stöfun og gilda til 1. janúar 2011.
Að sögn Árna Jóhannssonar, forstöðu-
manns mannvirkjasviðs SI, hefur þetta verið
kappsmál Samtaka iðnaðarins:
„Samtökin fagna þessum viðbrögðum
ríkisstjórnarinnar og Alþingis. Nú er tæki-
færi til að nýta sér þessa tímabundnu ráð-
stöfun og ráðast í framkvæmdir.
Sérstök athygli er vakin á því að
lögin ná til nýframkvæmda og viðhalds
sumarbústaða. Þá er nýlunda að allar
fasteignir sveitarfélaga falla undir lögin.“
Nú er rétti tíminn
„Um þessar mundir er einmitt rétti tím-
inn til að ráðast í nýjar framkvæmdir og
huga að endurbótum og viðhaldi. Eig-
endur íbúðarhúsnæðis geta út næsta ár
fengið virðisaukaskatt af vinnu á bygging-
arstað endurgreiddan og nú þarf enginn
að stunda nótulaus viðskipti til að spara
sér aurinn. Góðir iðnaðarmenn í öllum
greinum bjóða fram vinnufúsar hendur
og hugvit. Á liðnum árum hefur nán-
ast verið ógjörningur að fá góða fagmenn
til að sinna nauðsynlegum verkum vegna
stórra og viðamikilla verkefna. Nú eru
aðrir tímar og kjörið tækifæri fyrir íbúða-
eigendur að láta hendur standa fram úr
ermum og laga þakið, endurnýja dren-
lagnir, endurnýja glugga og gler, pússa
parket, yfirfara raflagnir, mála utanhúss
og innan, færa skilveggi, opna rými eða
loka þeim. Ekkert verkefni er of smátt og
ekkert of stórt. Reglur um tímabundna
endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu
gagnast öllum óháð umfangi.
Ég hvet íbúðaeigendur til þess að láta
vaskinn ekki fara í vaskinn heldur fá hann
endurgreiddan!“
Veljum rétt, veljum meistara til verksins
„Ábyrgð meistara í byggingariðngreinum er
lögbundin. Það er því ótvíræð gæðatrygging
fyrir viðskiptavininn að skipta við meistara
og fagmenn sem hafa tilskilin réttindi. Því
vilja Samtök iðnaðarins hvetja fólk til að
skipta aðeins við löggilta meistara með
tilskilin réttindi.“
„Það er því ótvíræð gæða-
trygging fyrir viðskiptavin-
inn að skipta við meistara
og fagmenn sem hafa til-
skilin réttindi.“
Árni Jóhannsson er forstöðumaður mannvirkjasviðs SI.
100% endurgreiðsla
virðisaukaskatts af vinnu
við nýbyggingar og viðhald
saMtöK iÐnaÐaRins