Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2006, Side 84

Frjáls verslun - 01.07.2006, Side 84
84 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6 K Y N N IN G HAUSTIÐ ER TÍMINN Réttmeti eru tilbúnir réttir sem stungið er í örbylgjuofninn þremur til fimm mínútum áður en bera á þá fram. Réttmeti er nýjung frá Ömmubakstri í Kópavogi sem flestir tengja gjarnan við flatkökur sem voru það fyrsta sem koma á markað frá fyr- irtækinu þegar það hóf starfsemi fyrir 54 árum. Komnir eru á markað fimm Réttmetisréttir en von er á fleiri réttum í haust. Þeir henta ekki aðeins heimilum heldur eru þeir frábær lausn fyrir mötuneyti eða mat- stofur fyrirtækja þar sem fólk vill grípa eitthvað hollt, gott og gómsætt í hádeginu, að sögn Snorra Sigurðssonar, sölu- og markaðsstjóra Ömmubaksturs. Réttmetisréttirnir eru Tígrisrækjur með thai karrýi, ítalskar kjöt- bollur, tandoori kjúklingalundir, arabískur kalkún með kúskús og grænmetisblanda, hentug sem meðlæti með öllum mat. Réttirnir eru í umbúðum með gufuventli en Ömmubakstur er eitt af tíu fyrirtækjum í heiminum sem notar umbúðir með ventli sem þessum. Hann hleypir gufunni úr umbúðunum við 120°C hita svo ekki þarf að stinga göt á þær. Innihaldslýsing og leiðbeiningar „Réttmeti er rétt samansett máltíð fyrir þann sem hugsar um hvað hann setur ofan í sig,“ segir Snorri sem sjálfur er matreiðslumeistari. „Réttirnir vega 450 g en grænmetisblandan 300 g. Nákvæm innihalds- lýsing er á umbúðunum og tilgreint hversu lengi rétturinn þarf að vera í örbylgjuofninum, miðað við styrkleika hans. Hvorki er viðbættur sykur né fita í Réttmetinu og salt er í lágmarki. Við notum engar mjólkuraf- urðir, hnetur né MSG krydd í réttina vegna þess að margir eru með óþol fyrir þessu.“ Hitaeiningafjöld er tilgreindur á umbúðunum svo auðvelt er að velja sér hádegismáltíð við hæfi sé fólk að hugsa um hitaeiningarnar. Snorri bendir á að hentugt geti verið fyrir fyrirtæki sem bjóða starfsmönnum upp á hádegismat að panta Réttmeti einu sinni í viku svo fólk geti síðan valið sér sjálft þann rétt sem það helst óskar sér í hádeginu dag hvern. Á döfinni er að koma með eina 4-5 nýja rétti á markað í haust þannig að allir geti fengið eitthvað við sitt hæfi. Réttmeti fæst í matvöruverslunum en verður einnig í boði fyrir fyrirtæki og jafnvel stofnanir sem vilja gefa starfsmönnum jafnt sem vistmönnum kost á hollum og góðum mat, þar sem þess er gætt að næringarefni haldi sér og ekkert sé notað við framleiðsluna sem getur valdið ofnæmi. Ömmubakstur er löngu þekktur fyrir flatkökur, kleinur, kleinuhringi, skonsur, rúgbrauð, litla snúða og vínarbrauð, laufabrauð og sitthvað fleira. Réttmeti, hent- ugir örbylgjuréttir, er það nýjasta sem kemur á markað frá Ömmubakstri. Ömmubakstur: Réttmeti – hollir og góðir örbylgjuréttir N‡ kynsló› örbylgjurétta fyrir fólk sem hugsar um hollustuna. Réttirnir eru úr fersku hráefni og eldast vi› gufu. fiannig halda fleir upprunalegu næringar- gildi a› langmestu leyti. Prófa›u Réttmeti! Rétt samsett máltí› sem er bæ›i holl og gó›. .enginn vi›bættur sykur.engin vi›bætt fita.salt í lágmarki E N N E M M / S ÍA / N M 2 3 12 4 Snorri með nýju réttina. Nýju réttirnir í framleiðslu. FV.07.06.indd 84 7.9.2006 12:58:09
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.