Frjáls verslun - 01.09.2006, Blaðsíða 23
FORSÍÐUGREIN
Öflugt rannsókna- og þróunarstarf
„Fyrirtækið leggur mikla áherslu á rannsóknar- og þróunarstarf.
Undanfarin ár höfum við varið miklum fjármunum til þessarar
vinnu og öðlast verðmæta þekkingu á lífríki Bláa Lónsins. Rann-
sóknir okkar hafa leitt í ljós að í lóninu eru yfir 200 tegundir
örvera og langflestar hafa áður verið óþekktar. Á þessu ári höfum
við t.d. unnið mikilvægt rannsóknastarf í samvinnu við þýska vís-
indamenn á sviði húðfræða um áhrif hráefna okkar á heilbrigða
húð. Einn þekktasti vísindamaður heims á sviði öldrunar húð-
arinnar, próf. Krutmann, sem veitir rannsóknastöð í Düsseldorf
forstöðu, stjórnaði þessum rannsóknum, en rannsóknirnar voru
styrktar af Tækniþróunarsjóði. Auk þess að vinna með okkur
starfar hann með mörgum þekktustu húðvöruframleiðendum í
heimi. Niðurstöður rannsóknanna komu bæði honum og okkur á
óvart. Hann gaf sér því tíma til að koma hingað til lands og kynna
niðurstöðurnar á fundi með innlendum og erlendum fjölmiðlum
sem haldinn var nú í október,“ bætir Grímur við.
Rannsóknirnar sýndu að kísillinn styrkir varnarkerfi húðarinnar
og eykur hæfni hennar til að mæta óæskilegu áreiti og vinnur gegn
öldrun húðarinnar. Þráðþörungur örvar nýmyndun kollagens í húð
og kúluþörungur dregur úr niðurbroti kollagens, en kollagen er eitt
meginbyggingarefni húðarinnar. Þessi efni og lífverur eru einstök fyrir
Bláa Lónið.
Húðvörur með virkni
„Ekki eru nema rúm 10 ár síðan fyrstu Blue Lagoon húðvörurnar
voru settar á markað, en þær voru þróaðar til að mæta þörfum fólks
sem stundaði psoriasismeðferð Bláa Lónsins. Stöðug vöruþróun hefur
átt sér stað og fyrirtækið hefur lagt metnað í að vinna með færustu sér-
fræðingum í þessu sviði. Í dag eru fáanlegar hátt í 30 vörutegundir og
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6 23
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, við lækningalindina sem tekin var í notkun í júní 2005.