Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2006, Page 30

Frjáls verslun - 01.09.2006, Page 30
30 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6 D A G B Ó K I N 24. október Bankarnir 1.200 milljarða virði Greint var frá því að markaðsverð bankanna þriggja, Kaupþings banka, Landsbankans og Glitnis, væri komið yfir 1.200 milljarða króna sem er nálægt árlegri landsframleiðslu Íslendinga. Kaupþing banki, stærsta fyrir- tækið í Kauphöllinni, er að markaðsvirði um 580 millj- arðar, Glitnir í kringum 335 milljarðar og Landsbankinn um 300 milljarðar. 25. október Jakob Sigurðsson til Kára Jakob Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Alfesca, hefur verið ráðinn fram- kvæmda- stjóri við- skiptasviðs Íslenskrar erfða- greiningar. Hann er því kominn til Kára, eins og einhver orðaði það. Jakob er með BS-gráðu í efnafræði frá Háskóla Íslands og MBA-gráðu frá Kellogg School of Management við Northwestern University í Illinois í Bandaríkjunum. Hann hefur undanfarin tvö ár starfað sem forstjóri Alfesca, áður SÍF. 26. október Samson með yfir 30% í Straumi-Burðarási Tilkynnt var þennan dag að Samson Global Holdings hefði keypt 16,74% hlut í Straumi- Burðarási Fjárfestingabanka af Fjárfestingafélaginu Gretti. Gengi bréfanna í viðskiptunum var 17,3. Með þessum kaupum fór hlutur Samson Global Holdings yfir 30% í Straumi- Burðarási. Samson Global Holdings er félag í eigu Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar, sem er stjórnarformaður Straums- Burðaráss. 23. október ENRON-STJÓRI FÉKK 24 ÁRA DÓM Jeffrey Skilling, fyrrum for- stjóri Enron, hlaut 24 ára fangelsisdóm fyrir bókhalds- og innherjasvik í Houston í Texas í Bandaríkjunum. Skilling var í maí sl. fundinn sekur um aðild að umfangs- miklum bókhaldssvikum, sem leiddu til gjaldþrots Enron árið 2001. Kenneth Lay, stofnandi Enron og fyrrum stjórn- arformaður fyrirtækisins, var sömuleiðis fundinn sekur um sömu brot í réttarhöldum í málinu í maí, en hann lést í júlí síðastliðnum áður en hann gat áfrýjað dóminum. Skilling var m.a. fund- inn sekur um að falsa afkomutölur Enron á þann veg að þær sýndu hagnað þegar í raun var um að ræða taprekstur. Þegar Enron var lýst gjaldþrota árið 2001 námu skuldir fyr- irtækisins 31,8 milljörðum Bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 2.200 milljarða íslenskra króna. Jeffrey Skilling, fyrrum forstjóri Enron. 19. október KONUR UM 22% STJÓRNARMANNA Hagstofan sagði frá því að frá árinu 1999 til 2005 hefði hlut- fall kvenna, sem sitja í stjórnum fyrirtækja, haldist nánast óbreytt á tímabilinu – eða í kringum 22%. Á sama tímabili hefði hins vegar fyrirtækjum með konur sem fram- kvæmdastjóra fjölgað úr 15,4% í 18,2%. Flestar konur eru framkvæmdastjórar í fyrirtækjum sem eru með innan við 10 starfsmenn og starfa við verslun og þjónustu. Flestar konur eru framkvæmdastjórar í fyrirtækjum sem eru með innan við 10 starfsmenn og starfa við verslun og þjónustu. Brynja Halldórsdóttir. Situr í stjórn Kaupþings banka. Þórdís J. Sigurðardóttir. Stjórnaformaður Dagsbrúnar. Guðbjörg Matthíasdóttir. Í stjórn Lands- bankans, TM og Ísfélagsins. Edda Sverrisdóttir, kaupmaður í Flex. Jakob Sigurðsson.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.