Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2006, Side 42

Frjáls verslun - 01.09.2006, Side 42
42 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6 Þórður Birgir Bogason, forstjóri MEST, er í Nærmynd að þessu sinni. Þórður stefndi um tíma á atvinnumennsku í knattspyrnu en sá draumur varð að engu þegar hann meiddist illa á hné. Örlögin ætl- uðu honum annað hlutskipti í lífinu. Í dag rekur hann fyrirtæki sem veltir 6 milljörðum á ári og er með um 250 manns í vinnu. Mikill vöxtur hefur verið hjá MEST ehf. frá því að fyrirtækið varð til við samein- ingu Merkúrs og Steypustöðvarinnar. Fyrir skömmu sameinaðist MEST byggingavöru- versluninni Súperbygg og hyggur fyrirtækið á enn frekari stækkun á næstunni. Þórður Birgir Bogason, eða Tóti eins og vinir hans kalla hann, er fæddur í Reykjavík 15. júlí 1969. Hann er sonur hjónanna Ólafar Einarsdóttur hárgreiðslumeistara og Boga Þórðarsonar byggingartæknifræðings. Bróðir Þórðar heitir Einar Þór og er læknir. Fyrstu ár ævinnar bjó Þórður ásamt for- eldrum sínum í Langholtshverfinu og var í Ísaksskóla þrjú fyrstu ár skólagöngunnar. ,,Við bjuggum þar þangað til ég varð átta ára en þá fluttum við í Seljahverfið í Breiðholti. Níu ára gamall byrjaði ég í Ölduselsskóla en flutti svo yfir í Seljaskóla ári seinna þegar hann var settur á stofn og lauk grunnskólanámi þar. Ég man vel eftir því hvað mér fannst gaman í Ísaksskóla, eftir kennaranum og skólastjór- anum og sérstaklega hvað mér þótti íþróttasalurinn í kjallaranum stór á sínum tíma. Ég heimsótti skólann fyrir nokkrum árum og kom í salinn en þá er hann ekki nema tuttugu fermetra herbergi.“ Þórður segir að það hafi verið mjög gott og gaman að alast upp í Seljahverfinu. ,,Það var enn verið að byggja upp hverfið og allt í skurðum og grunnum. Við krakkarnir hjóluðum mikið, klifruðum í vinnupöllum og lékum okkur á flekum í grunnum sem höfðu fyllst af vatni. Svæðið var hálfgerð sveit og í sjálfu sér villt.“ Eftir grunnskóla lá leið Þórðar í Mennta- skólann við Sund. Að hans sögn var sá skóli næst því að vera hverfismenntaskóli fyrir krakka í Seljahverfinu. ,,Mér hugnað- ist frekar bekkjakerfið og sótti hann því frekar en Fjölbraut í Breiðholti. Ég er félagslyndur og langaði að vera með sömu krökkum í bekk í stað þess að vera með eigin stundaskrá. Menntaskóla- árin eru miklir umbrota- tímar hjá flestum og sá tími sem maður breytist úr barni í ungan mann. Það var svolítið skrítið að koma úr Breiðholtinu og kynnast fullt af krökkum víðs vegar að úr Reykjavík því Seljahverfið var fremur einangrað á þeim tíma.“ Meiddist á hné Eins og margir strákar hafði Þórður gaman af því að spila knattspyrnu sem krakki. Hann var góður leikmaður og lék um tvítugt með meistaraflokki Vals. Hugurinn stefndi þó lengra og um tíma leit út fyrir að hann yrði atvinnumaður í Þýskalandi. Örlögin ætluðu honum þó annað hlutskipti í lífinu því árið 1993 meiddist hann illa á hné og varð að hætta í boltanum. Þ Ó R Ð U R B I R G I R B O G A S O N Í N Æ R M Y N D TEXTI: VILMUNDUR HANSEN • MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON Þórður Birgir Bogason, forstjóri Mest, er sagður öflugur maður, algerlega ófeiminn og svolítið stríðinn. Undir hans forystu hefur Mest vaxið hratt og nýlega voru Mest og byggingavöruverslunin Súperbygg sameinuð undir merkjum Mest. Ég var búinn að vera með bolta á tánum frá því að ég var barn og stefndi á atvinnumennsku. Það voru því mikil vonbrigði þegar fótunum var kippt undan mér í boltanum. „ÓFEIMINN STRÍÐINN“og

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.