Frjáls verslun - 01.09.2006, Page 57
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6 57
Blue Lagoon gjafakort
Upplýsingar í síma 420 8832 eða á bluelagoon@bluelagoon.is.
Bláa lónið Húðvörur Spa meðferðir Veitingar Gisting
Blue Lagoon gjafakortin eru skemmtilegur kostur fyrir þá sem vilja koma viðskiptavinum
og starfsmönnum á óvart með orkumikilli og óvenjulegri gjöf. Handhafi gjafakortsins getur
notað það í Bláa lóninu, fyrir gistingu í heilsulind, í verslun, í spa meðferðir og nudd
og á veitingastaðnum í Bláa lóninu.
hverju ári á því tímabili. Stefna Eyris er í raun og veru
nokkuð einföld. Við fáumst við tvær tegundir fjárfest-
inga – áhrifafjárfestingar eða „active ownership“, eins
og þetta kallast á ensku, og svo kaupum við og seljum
verðbréf.
Það er munur á því hvernig við nálgumst kaup á
iðnaðarfyrirtækjum og fjármálafyrirtækjum að því leyti
að við höfum eingöngu áhuga á iðnaðarfyrirtækjum
sem hafa burði til að taka forystu á heimsmarkaði. Þá
meina ég ekki fyrirtæki sem eru í leiðandi stöðu nú
þegar, heldur vaxandi og spennandi fyrirtæki sem við
teljum að geti tekið fram úr samkeppninni. Fyrirtæki
eins og Össur og Marel eru klæðskerasniðin fyrir þessa
stefnu þar sem þau eru tæknilega fremst og geta með
tímanum orðið leiðandi á sínum markaði. Hvað fjár-
málafyrirtæki varðar viljum við að þau komist í leiðandi
stöðu á sínu starfssvæði.
Almennt séð viljum við eiga hlut í fáum fyrirtækjum
í einu. Við beitum svokallaðari fókus-fjárfestingastefnu
sem þýðir að við fylgjumst náið með um fjörutíu
félögum á hverjum tíma en eigum yfirleitt ekki verð-
bréf nema í fjórðungi þeirra. Það sem kannski skilur
okkur aðeins frá öðrum er sú staðreynd að við setjum
okkur ekki föst tímamörk fyrir fjárfestingar. Okkar
fjárfestingarammi er ótímabundinn. Það þýðir að við
erum ekki að fara inn í fyrirtæki til að snúa öllu við
Starfsmenn Marels-
samstæðunnar eru
núna um 2.080 talsins
í nokkrum löndum.
Á R N I O D D U R Í E Y R I
Starfsmenn Marels samstæðunnar