Frjáls verslun - 01.09.2006, Page 82
82 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6
Talsmaður Mills sagði þetta ekki klámmyndir
heldur kennsluefni – sannarlega ein aðferð til
að meta svona efni!
Fjölmiðlaumfjöllunin er athugunarefni út
af fyrir sig. Það eru engar ýkjur að McCart-
ney er átrúnaðargoð hér í Englandi – og það
er ögn eins og svona goð megi ekki lúta svo
lágt að eiga sér konu.
Bítlafélaginn John Lennon var á sama
stalli og það var ekkert smávegis sem fjöl-
miðlar hér hötuðust út í Yoko Ono. Henni
var kennt um skilnað Bítlanna og alla aðra
slæmsku þeirra. Linda McCartney var sannar-
lega ekki elskuð af fjölmiðlum hér – Mills
enn síður. Sumir hafa líka rakið þessa afstöðu
til dulbúins kvenhaturs sem sé viðvarandi í
breskum fjölmiðlum.
Þegar Mills komst í sviðsljós McCartneys
var fullt af fólki sem þekkti forsögu hennar
og bar í fjölmiðla bæði sögur og myndefni.
Ekkert af þessu var birt þá því að fjölmiðlarnir
sem þrífast annars á svona efni komust að
þeirri niðurstöðu að það yrði ekki vinsælt hjá
lesendum að þjóðargoðið McCartney yrði
dregið í svaðið með þessum hætti. Sumsé
var þagað... þar til Mills var orðin ein og
óvarin – þá var gamla efnið dregið upp úr
frystinum, hitað upp og borið á borð.
Spurningin er hverjum þetta gagnaðist
– Mills-vængurinn áleit að McCartney hefði
komið efninu áleiðis til að sýna slæmar hliðar
hennar svo hún hefði minna upp úr skiln-
aðarkrafsinu.
Eftir hverju dæma dómstólarnir? Ábyrgir
menn bentu hins vegar á að dómstólar
tækju ekki hið minnsta tillit til frétta –
aðeins fjárhagsstaða McCartneys við upphaf
hjónabandsins og í lok þess skipti máli, auk
lengdar hjónabandsins og hagsmuna tveggja
ára dóttur hjónanna.
Málaferlin í skilnaðarmálinu hefjast
væntanlega í vetur. Nýlegur liður í óvægnum
átökum hjónanna er að allt í einu spratt
úr faxtæki Associated Press fréttastofunnar
málsskjal Mills þar sem margvísleg and-
styggileg hegðun McCartneys er tíunduð
– hann hafi meðal annars átt að hafa lagt á
hana hendur og neytt ólöglegra lyfja.
AP vildi ekki birta þetta – en þá var efn-
inu komið í síðdegisblað sem var ekkert að
tvínóna við birtingu og þetta efni nærði
forsíður í nokkra daga. Það er erfitt að sjá að
svona nokkuð leki nema með vilja Mills sem
neitaði auðvitað að hafa átt nokkurn hlut að
máli. Áður hafði hún sagt að Sir Paul hefði
orðið leiðinlegur og sjálfselskur eftir að þau
giftust.
Það sem enn mun gera fréttaflutning af
væntanlegum málaferlum sérstakan er að
venjulega eru skilnaðarmál rekin fyrir luktum
dyrum. Í tilfelli þeirra hjóna er málabúnaður
annar svo að það stefnir í að málaferlin verði
fyrir opnum tjöldum.
Fréttaflutningurinn kann þó að verða snú-
inn. Árið 1926 voru sett lög um fréttaflutn-
ing af einkamálum eins og skilnaðarmálum.
Ástæðan var að þá höfðu fjölmiðlar um hríð
flutt berorðar fréttir af alls kyns hneykslis-
málum – lögin áttu að vernda almenning
fyrir að þurfa að heyra svo ósiðlega hluti! Þó
fæstir virðist núorðið kjósa slíka vernd eru
lögin enn í gildi. Lögfræðingar fjölmiðlanna
munu því þurfa að leggjast í lagakrókana
þegar þar að kemur.
Ef marka má fjölmiðla bauð Sir Paul
lafðinni 30 milljónir punda í reiðufé (3,9
milljarða króna) – en hún hafnaði því boði. Í
einni blaðagrein var reiknað út að samkvæmt
auðmannalista Sunday Times hefðu eignir
McCartneys aukist um 25 milljónir punda
frá 2005 til 2006, eða úr 800 í 825 milljónir.
Þessar 30 milljónir punda, sem Paul bauð
Mills, næmu því aðeins eignaaukningu hans
á einu ári.
Fjölmiðlar giska á að Heather Mills verði
dæmdar 200 milljónir punda (26 milljarðar
króna). Gangi það eftir munu fleiri en hún
brosa út í annað; nefnilega skatturinn.
Þurfi McCartney að selja eigur sem þessu
nemur, mun skatturinn hagnast um rúmar
32 milljónir punda – eða svipað því sem Sir
Paul bauð Mills.
Sir Paul bauð Heather 30 milljónir punda (3,9 milljarða króna) en fjölmiðlar giska á að henni
verði dæmdar 200 milljónir punda (26 milljarðar króna).
Í haust var sett nýtt met
þegar eiginkonu voru
dæmdar 48 milljónir punda
(6,2 milljarðar króna) í sinn
hlut eftir 29 ára hjónaband
– börnin tvö voru flutt að
heiman.
L U N D Ú N A P I S T I L L S I G R Ú N A R
... UPPLÝST FÓLK
ÞÚ ÁTT STEFNUMÓT VIÐ ...
FRÉTTIR KL. 19.00
Fréttir Sjónvarpsins eru með vinsælasta sjónvarpsefni á Íslandi.
Þau Páll Magnússon, Bogi Ágústsson, Elín Hirst, Jóhanna
Vigdís Hjaltadóttir og Margrét Marteinsdóttir fara fyrir hópi
fréttamanna fréttastofunnar, auk fréttamanna og fréttaritara á
landsbyggðinni og í útlöndum, og færa þér nýjustu fréttir af
fólki og atburðum.
KASTLJÓS KL.19.35
Þitt fólk í Kastljósinu, þau Jóhanna Vilhjálmsdóttir, Helgi
Seljan, Sigmar Guðmundsson, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir,
Þóra Tómasdóttir, Þórhallur Gunnarsson og Eva María
Jónsdóttir fjalla um menningu, listir, íþróttir, stjórnmál og
önnur mál dagsins í nýju og fersku ljósi.