Frjáls verslun - 01.09.2006, Blaðsíða 89
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6 89
sóknastofnun, fyrir karfa á 1000 metra dýpi. Karfinn er mikilvæg
auðlind og til mikils að vinna að fá um hann upplýsingar og nú
hefur Hafrannsóknastofnunin merkt á þriðja þúsund fiska. Upplýs-
ingarnar, sem tækin nema, berast svo til baka þegar merktur fiskur
veiðist og hægt er að lesa af mælitækinu.“
Olíuiðnaður, ölgerð, niðursuðuverksmiður og kjarnorkuver
Stjörnu-Oddi framleiðir einnig stærri mælitæki sem skilin eru eftir í
ám og vötnum og úti í hafi, allt niður á 10.600 metra dýpi. „Það sem
einkennir þessi mælitæki er að þau eru notuð í erfiðu umhverfi,“ segir
Sigmar og bætir við að tækin fari víðar en í fiskana og í hafið. Bjór-
framleiðandinn Budweiser notar mælitækin til eftirlits við bjórfram-
leiðslu og niðursuðuverksmiðjur nota þau við framleiðslu á dósamat.
Merkin eru þá sett í flöskur eða dósir í upphafi framleiðsluferlisins
og tekin og lesið af þeim í lokin til þess að sjá hvort allt hafi verið
með eðlilegum hætti. Mælitæki Stjörnu-Odda koma víðar við sögu.
Þau eru send niður í kílómetradjúpar, eða jafnvel dýpri, borholur á
Hellisheiðinni, til að meta
aðstæður og nú vinna sér-
fræðingar fyrirtækisins
að þróun tækja sem fara
munu meira inn á iðn-
aðarsviðið þar sem þau
munu geta nýst.
„Heimurinn er okkar
markaður,“ segir Sigmar,
„og Ísland er lítill hluti af
okkar heildarmarkaði. Við
seljum tækin námufyrirtækjum, fyrirtækjum í olíuiðnaði og einnig í
kjarnorkuver þar sem tækin eru notuð til eftirlits með kælivatni. Við-
skiptavinir koma úr mörgum áttum og við vitum ekki einu sinni um
þá alla. Aðalmarkaðssvæðin eru þó í Japan og Bandaríkjunum.“
Nýjar sölur koma að mestu af Netinu
Sölu- og markaðsetningu Stjörnu-Odda er ekki sinnt af stórum hópi
fólks af þeirri einföldu ástæðu að Netið er, og hefur verið, nýtt út í
æsar við þessi verkefni allt frá því árið 1994. „Við höfum gríðarlega
reynslu af því að nota Netið og vel yfir 90% af nýjum sölum verða
til á Netinu. Við fáum jafnvel pantanir frá löndum sem við vissum
varla að væru til. Það er kosturinn við Netið og það er vissulega að
gera fyrir okkur fína hluti.“
Sigmar segir að 80% af virðisaukningu framleiðsluvara Stjörnu-
Odda verði til á Íslandi. Því fylgja bæði kostir og gallar. „Þetta
gerir okkur viðkvæm fyrir gengisbreytingum og hagsveiflum, en við
reynum að stemma stigu við áhrifunum með því að gera betur, hag-
ræða og með því að vera með gott starfsfólk en það er ekki alltaf hægt
að skera niður. Við reynum að bæta okkur, vinna meira og stækka
markaðinn. Hjá Stjörnu-Odda vinna 12 manns og yfirbyggingin er
lítil. Sigmar, sem er rafeindaverkfræðingur frá Álaborgarháskóla, er
framkvæmdastjóri fyrirtækisins og Jóhanna kona hans fjármálastjóri.
Hún grípur inn í störf bónda síns þegar hann þarf að hverfa frá
og hefur einnig umsjón með einni framleiðslulínu fyrirtækisins.
„Við höfum ekki tekið þátt í uppboði á starfsfólki á þessum upp-
sveiflutímum. Ef fólk hefur viljað fara þá höfum við auðvitað hvatt
það til að vera áfram, enda vonum við að það séu ekki bara launin
sem skipti máli. Reyndar held ég að þau skipti miklu meira máli nú
en áður. Við reynum að finna fólk sem vill meira en launin, fólk sem
hefur gaman af vinnunni.“
Öflugasta starfsemin á Íslandi
Árið 2004 var velta Stjörnu-Odda 104 milljónir króna og um 90%
teknanna komu erlendis frá en vörurnar eru seldar til 45 landa.
Gengismálin gerðu mönnum erfitt fyrir á síðasta ári en Sigmar segir
að fyrirtækið hafi verið að styrkja sig á markaðnum og sé nú komið
með nokkuð stöðugt tekjuflæði. „Við höfum uppfyllt að einhverju
leyti væntingar hluthafa og erum að skoða nánar framtíðarmöguleik-
ana, m.a. hvort tækifæri sé til að stækka og þá hvernig en framtíðin
muni skera úr um það.“ Aðspurður hvort fyrirtækið hugsi sér til
hreyfings eins og ýmis hátæknifyrirtæki önnur segir hann að það eigi
eftir að koma í ljós. „Stjörnu-Oddi er íslenskt fyrirtæki og ætlunin er
að hafa sem öflugasta starfsemi í Íslandi en við útilokum ekki að eiga
eftir að gera eitthvað í útlöndum líka.“
Stjörnu-Oddi hlaut
Nýsköpunarverðlaun
Rannís og Útflutningsráðs
í mars sl. Einnig hlaut
fyrirtækið verðlaun á
Sjávarútvegssýningunni sem
haldin var hér á síðasta ári.
Vinnan í Stjörnu-Odda er fíngerð og smágerð.
H Á T Æ K N I B Ú N A Ð U R