Frjáls verslun - 01.09.2006, Page 90
KVIKMYNDIR
TEXTI: HILMAR
KARLSSON
R
idley Scott og yngri bróðir hans, Tony Scott, eru í hópi þekkt-
ustu kvikmyndaleikstjóra og hafa myndir þeirra notið mikilla
vinsælda. Þó að staðreyndin sé að Tony hafi ávallt staðið þrepi
neðar í virðingarstiganum þá á hann að baki jafnvinsælar
myndir og bróðir hans þó að ekki séu þær í sama gæðaflokki og það
besta frá Ridley. Þeir bræður hafa lengi verið samstarfsmenn og eiga
fleiri en eitt kvikmyndafyrirtæki saman. Samstarf
þeirra hefur falist í að framleiða kvikmyndir og sú
síðasta var Tristan + Isolde, sem Kevin Reynolds
leikstýrði. Þá verður frumsýnd á næsta ári kvik-
mynd sem þeir framleiða og heitir því langa nafni
The Assassination of Jesse James by the Coward Robert
Ford og skartar Brad Pitt í aðalhlutverki.
Ridley og Tony hafa aldrei verið í samkeppni fyrr
en nú að þeir leikstýra hvor sinni kvikmynd sem
frumsýndar eru um sama leyti. Munu þeir keppa
um hylli fólks þar sem báðar fá mikla markaðssetn-
ingu og verða sýndar í þúsundum kvikmyndahúsa í
Bandaríkjunum. Ridley varð fyrri til en mynd hans A Good Year var
frumsýnd 10. nóvember (í Englandi var hún frumsýnd um síðustu
mánaðamót) og Déjà vu, sem Tony Scott leikstýrir, er frumsýnd 22.
nóvember. Ridley hefur því forskotið, en ef mynd hans gengur illa
græðir sjálfsagt litli bróðir á því.
VÍNRÆKT OG TÍMAFLAKK
Ólíkar kvikmyndir A Good Year er rómantískt drama sem fjallar um
enskan bankamann sem hefur ekki gengið vel í fjárfestingum og er
að brenna allar brýr að baki sér þegar hann erfir lítinn vínbúgarð
eftir frænda sinn í Provence í Frakklandi, en þar hafði hann búið sem
barn. Hann er varla búinn að koma sér fyrir þegar ung bandarísk
stúlka birtist og segist vera dóttir frændans og vill fá að vita eitthvað
um föður sinn og búgarðinn. Hún er ekki beint að
segja að hún sé rétti erfinginn en ef það sannast að
hún sé dóttirin þá er bankamaðurinn á hálum ís sem
eigandi búgarðsins.
Russell Crove fer með hlutverk bankamannsins
og er þetta í annað sinn sem hann og Ridley Scott
leiða saman hesta sína, en Crove lék skylmingarþræl-
inn Maximus í Gladiator og fékk óskarsverðlaun
fyrir. Crove og Scott eru alls ekki hættir samstarfinu
þar sem Crove leikur annað aðalhlutverkið í Amer-
ican Gangsters sem Ridley Scott er að leikstýra um
þessar mundir. Fjallar hún um krimma í Harlem
sem í upphafi áttunda áratugarins smygla heróíni frá Vietnam í
líkkistum fallinna hermanna.
Mótleikari Crove í American Gangsters er Denzel Washington, en
hann er aðalleikarinn í Déjà vu. Sú kvikmynd er mjög ólík A Good
Year að flestu leyti. Tony Scott er enn einu sinni í samstarfi við fram-
BRÆÐURNIR RIDLEY OG TONY SCOTT MEÐ NÝJAR MYNDIR Í NÓVEMBER
Russell Crove leikur
í A Good Year
misheppnaðan
bankamann sem
erfir vínbúgarð í
Frakklandi.
90 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6
Russell Crove erfir
vínekrubúgarð í
A Good Year og
Denzel Washington
fer til fortíðar til
að koma í veg fyrir
hryðjuverk í Déjà vu