Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Blaðsíða 91
HEIMSFRIÐARIiREYFINGIN
281
þeim er liggja að Eystrasalti. menn úr öllum stéttum og með mismun-
andi stjórnmálaskoðanir, tóku á leigu pólska skemmtiferðaskipið ,,Ba-
tory“, lögðu upp í 16 daga ferðalag og heimsóttu hin ýmsu Eystrasalts-
lönd. Þátttakendur voru 800. í Stokkhólmi hafði sænska Friðarnefndin
kvöldboð fyrir það fólk sem til náðist og verið hafði þátttakendur í þess-
um friðarleiðangri. Var okkur íslendingunum boðið að sitja þetta hóf.
Þar var sýnd kvikmynd af ferðalaginu, sem að sögn var mjög ánægju-
legt. Margir tóku til máls og lýstu ánægju sinni yfir ferðinni.
í blaði, sem komið hefur út um þetta ferðalag, segir:
Friðarleiðangurinn var ekki hugsaður sem skemmtiferð eingöngu.
Hann var yfirlýsing um það, að fólk vildi og gæti aukið og eflt sam-
skipti sín á milli á friðsamlegan hátt, þótt á milli bæri í stjórnmálum.
Þannig urðu hinir 800 þátttakendur lifandi táknmynd friðarvilja milj-
óna manna, sem eru búsettir kringum Eystrasalt, og sýndu, að þjóðirnar
sem liggja að Eystrasalti, geta myndað stórkostleg friðarsamtök til for-
dæmis alþjóðaþróun í þeim efnum.
LEIÐRÉTTING
í 1. hefti þessa árs er leiðrétting á villu í síðustu línu kvæðisins „Linditréð" eftir
Wilhelm Miiller, sem birtist í 2.—3. hefti ársins 1953, 202.—203. bls. En í leiðrétt-
inguna hefur því miður slæðzt ný villa. Ljóðlínan er í rauninni rétt þannig:
Þar hugró jyndir þú!