Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Blaðsíða 70
260
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Gleymdi hann að koma sjálfur? stundi Ásbjörn upp og kyssti hana
á kinnina. Hvað var hann að gera?
Hann var að skrúfa saman einhverja vél, sem hann hafði rifið í sund-
ur um daginn.
Það er von, að þú gefist upp á svona piltum, segir hann. Hún þagnar
og segir svo:
Ásbjörn, ég er búin að sjá það, að þú ert mér að skapi. Þú ert mátu-
lega gáfaður, mátulega hár, og mátulega vinnusamur fyrir mig. Já, og
þú ert mátulega laglegur og allt það.
Kysstu mig, segir hann.
Nei, ekki núna, svona, ekki. Ég þarf að vakna snemma í fyrramálið.
En ég ætla að koma yfir til þín og sjá herbergið þitt og vera hjá þér
langt fram á nótt.
Ég þarf líka að vakna snemma, segir hann, tekur yfirhöfn sína, kveð-
ur liana og fer.
Eitt kvöld, nokkrum dögum síðar, fer Jóna í heimsókn til Ásbjarnar.
Ásbjörn hefur búið sig undir komu hennar með gosdrykkjum, súkku-
laði og sígarettum. Hún bankar hjá honum. Hann opnar og hjálpar
henni úr kápunni. Hún litast um í herberginu og tekur sér loks sæti á
kollinum undir þakglugganum. Ásbjörn gengur um gólf, mjög hugsi,
þar til hann segir:
Jóna, ég hef lengi ætlað að segja þér af mér og hverrar ættar ég er.
Eg er sannur Norðurlandabúi. Sko, móðir mín var dönsk í aðra ættina
og faðir minn einnig. En afi minn var Norðmaður og hinn afi minn
Svíi. Veiztu það, að ég er tuttugu og fimm prósent íslendingur og .. .
Æ, góði Ásbjörn, ég hef bara ekki nokkurn áhuga á ættfræði. Segðu
mér heldur, hvort þú hefur ekki verið trúlofaður?
Nei, aldrei, segir Ásbjörn samvizkusamlega.
Jæja, ekki það.
Veiztu, Jóna, að sólin hérna á íslandi kemur upp í austri, en sezt í
norðri? Ég hef verið að veita því athygli núna í sumar.
Þú ert sennilega mjög athugull maður. en talaðu um þetta við ein-
hvern veðurfræðing. Segirðu annars satt, hefurðu aldrei þekkt neina
stúlku ?
Nei, aldrei. Viltu appelsín?
Já, takk.