Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1969, Síða 98

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1969, Síða 98
Timarit Máls og menningar líkarasdauðann. 011 bókin er rökstuðning- ur við þessa staðhæfingu. Höfundur tekur fram, að engin heimspeki geti leyst gát- una um framhaldslíf einstaklingsins, til þess þurfi reynsluþekkingu. Eigi að síð- ur tekst hann á hendur þann mikla vanda að færa með aðferðum heimspekinnar sönnur á, að líkur séu fyrir því, að ein- staklingurinn lifi eftir líkamsdauðann. Rökstuðningur hans er óbeinn. Hann held- ur því fram, að það sé undirstöðunauð- syn að gera ráð fyrir framhaldslífi, með öðru móti verði ekki lifað. Hann segir undir lok bókarinnar: „Til þess að geta haldið áfram að lifa, hljótum vér að gera ráð fyrir framhaldslífi. í þeim skilningi verSur lífsnauSsyn aS röknauSsyn". (Let- urbr. höf.). Þessi samtenging á lífsnauð- syn og röknauðsyn er nýstárleg í heim- speki og munu óefað skiptar skoðanir um réttmæti hennar. Hvað sem því líð- ur, er hún allrar athygli verð. Áður liafði höfundur sýnt fram á í sambandi við spurninguna um tilvist hlutveruleikans með rökum, sem erfitt er að vefengja, að frumforsenda allrar rökhugsunar er um leið forsenda fyrir tilvist mannsins sem hugsandi veru, þannig að lífsnauðsyn og röknauðsyn verða eitt og hið sama. Nú heldur hann því fram, að forsenda allra mannlegra verðmæta sé varanleiki ein- staklingstilvistarinnar, þannig að viður- kenning mannlegra verðmæta sé í sjálfri verunni dulin viðurkenning á varanleik einstaklingsins í tilverunni með einhverj- um hætti. Eftir þessa bók gat naumast hjá því far- ið, að Brynjólfur legði fyrr eða síðar til atlögu við hið eilífa vandamál um sam- hand hlutveru og sjálfsveru — efnis og anda. Hann hefur snúizt gegn skilgrein- ingu díalektískrar efnishyggju á þessu undirstöðuatriði og vill óefað gera nánari grein fyrir afstöðu sinni. Áður en hann ræðst í það verk, ritar hann þó þriðju bók sína, Vitund og verund, sem er fjórar ritgerðir um mismunandi efni. En einnig í þeirri hók, einkum í ritgerðinni Um feg- urð, má sjá þess merki, að hugur hans beinist æ meir að hinu torræða vandamáli um hlutveru og sjálfsveru. Fjónim árum seinna (1965) kom svo út fjórða bókin, Á mörkum mannlegrar þekkingar, sem er ekki aðeins langstærsta samfellda verkið fram að þessu, heldur og mesta átakið. Á mörkum mannlegrar þekkingar fjall- ar um raungildi efnisheimsins og þó eink- um samhand vitundarinnar við hann. Þetta vandamál er jafngamalt heimspekinni. Höf- undur rekur skoðanir heimspekinga frá mismunandi tímum á þessu efni. Fulltrúi fonialdarinnar þar er Platon. Þá er gerð ítarleg grein fyrir skoðunum hinna sígildu þýzku heimspekinga Kants og Ifegels, og úr hópi heimspekinga 20. aldarinnar er val- inn brezki höfundurinn Whitehead. Auk eiginlegra heimspekinga er gerð grein fyrir skoðunum þriggja þýzkra náttúruvís- indamanna á 19. öld, og hefst hókin reynd- ar á því. Jafnframt gerir höfundur sínar athugasemdir og setur fram sínar eigin skoðanir. Sérstakur kafli er um skilgreiningu dfa- lektískrar efnishyggju á sambandi efnis og anda, ])á sem áður er á minnzt. Höfundur bendir á, að samkvæmt skilgreiningunni, að andinn sé eiginleiki efnisins á háþróuðu skipulagsstigi, þá sé hugtakið efni einnig látið taka til hins andlega. Eiginleiki hlut- ar sé sömu veru og hluturinn sjálfur, enda er hluturinn ekkert án eiginleika sinna. Þá er vikið að þeirri skilgreiningu Leníns, að efnið sé allt það, sem hafi hlutverulega tilvist óháða vitundinni. Þessi skilgreining sé, segir höfundur, ekki samrýmanleg kennisetningu díalektískrar efnishyggju um, að hið andlega sé eigind efnisins, nema með því að leggja tvenns konar 88
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.