Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1984, Page 49

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1984, Page 49
Steve Canyon hann er þekktur sem flugmaður. Þessi mynd staðfestir tilfinningu sem maður hefur fengið við þær fyrri að við séum stödd í skrifstofuháhýsi í miðri stórborg, þar sem mikilvægt fólk er á ferðinni. Sjötti mynd.ra.mmi. Nú sjáum við framan í Steve Canyon. Andlitið er karlmannlegt og frítt, andlitsdrættir skarpir og bera vitni um reynslu og snerpu: þróttmikill og þroskaður hlýtur maðurinn að vera. Svipurinn minnir á þekkta Hollywoodleikara allt frá van Johnson til Cary Grant. Okkur líst vissulega vel á andiit Steves vegna þess þróttar sem andlitsdrættir hans láta í ljós, en það hangir miklu meira á spýtunni: andlitsdrættirnir eru tákn, eins konar rúnir sem vísa á heila röð af manngerðum, fyrirmyndum, karlmennskuímyndum, en allt er þetta hluti af rúnastafrófi sem lesendur kunna. Einfaldar útlínur flatanna tjá dýpri merkingu með hefðbundnu táknkerfi. I stuttu máli sagt: Steve hefur einkenni helgimyndar sem hægt er að rannsaka út frá sérstakri táknfræði þar sem hver dýrlingur hefur sína sérstöku fylgihluti og einkenni eins og ákveðna gerð af skeggi eða geisla- baug. Steve opnar nú dyrnar að skrifstofunni sinni; neðst á rúðunni sjáum við nafn hans, svo að þetta er hans skrifstofa. Aletrunin á hurðinni eykur enn á spennandi óvissu um verksvið fyrirtækisins. Höfundur leikur sér að því að vísa til viðskiptaorðsins „Limited“ í heiti fyrir tækisins: „Horizons Unlimited", „Sjóndeildarhringur ótakmarkaður“. Hvað skyldi vera á seyði: útflutningur, fornleifagröftur, geimferðir, flugrekstur, sakamálarannsóknir, smygl, kaup og sala á kjarnorkuleyndarmálum? Næstu teikningar leiða í ljós að líklegra er að hér sé um að ræða fyrirtæki sem tekur að sér sérhæfð og áhættusöm verkefni af ýmsu tagi. Inni á skrifstofunni situr einkaritarinn og tilkynnir einhverjum í símann að Steve sé kominn. Hún er líka skýrt afmörkuð manngerð í samræmi við smekk fimmta áratugarins. Frá henni stafar hæfilegri blöndu af suðurevrópskum og austurlenskum einkennum (sem vísa þannig til þeirra tveggja styrjaldarsvæða sem lögðu eftirstríðsárun- 6 7 8 399
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.