Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Page 137

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Page 137
beygingakerfi málsins. Það hefur að mestu leyti haldist óbreytt síðan ritöld hófst á Islandi, - og er þetta eitt atriðið sem gerir það að verkum að hægt er að segja að málið á 13. öld og á 20. öld sé „hliðstætt“, - en þó hafa orðið nokkrar breytingar, einkum á vissum og af- mörkuðum sviðum, - t.d. gæti mið- mynd sagna og viðtengingarháttur þvælst fyrir fréttamanni sem væri að hafa viðtal við Gissur eftir Flugumýrar- brennu. Nú eru þeir sem gefa út fornar bókmenntir með „nútímastafsetningu“ sammála um að hrófla yfirleitt ekki við gömlum beygingarmyndum og orð- myndum, og er þetta hárrétt afstaða, því með því að gera slíkt væri í rauninni verið að fara inn á þá fáránlegu braut að „þýða“ fornritin. En segja má að þessar breytingar á einstökum atriðum beyg- ingakerfisins séu í sjálfu sér róttækasti munurinn á ritmáli 13. aldar og 20. ald- ar, og haldi menn í fornar beygingar- endingar í útgáfum, er það nokkuð mótsagnakennt að vera síðan að amast við smáatriðum í stafsetningu og gera þau að einhverju meginmáli. En þetta er reyndar ekki allt og sumt. Því má nefni- lega halda fram með góðum rökum, að ýmis þau atriði fornmálsins sem menn eigna venjulega „samræmdri stafsetn- ingu fornri“ tilheyri í raun og veru beygingakerfinu. Þannig er t.d. „-r“ í enda orða meira en einfalt stafsetningar- atriði: það er beygingarending sem hef- ur breyst síðan á 13. öld, og nokkuð svipað má jafnvel segja um þann grein- armun sem gerður er á „9“ og „0“. Ef menn halda í orðmyndir eins og „eg kallaða“, er engin ástæða til að færa „maðr“ til nútímahorfs. Allt þetta vita útgefendur Svarts á hvítu mjög vel og einnig það, að „sam- ræmd stafsetning forn“ er eða ætti að Umsagnir um bœkur vera auðlæsileg flestum íslendingum. Þeir halda líka til haga fornum beyg- inga- og orðmyndum (nema í miðmynd og og viðtengingarhætti) og hika ekki við að hafa tvímyndir í textanum (t.d. gjafar - gjafir í fleirt.), ef handritin sýna að málið var á reiki. Þá fer að veikjast grundvöllurinn fyrir þeirri kenningu að „nútímastafsetning" skilji milli feigs og ófeigs, og þegar annað þrýtur verja út- gefendur notkun hennar með því að ís- lenskir lesendur séu „vanafastir“: „þess vegna vilja þeir hafa ritháttinn á bók- menntum sínum sem næst því sem þeir lærðu í Gagni og gamni eða öðru og yngra stafrófskveri". Svo vitna þeir í títtnefnd orð Jóns Helgasonar um að Is- lendingar hafi frá upphafi haft þann rit- hátt á fornsögum sem þeim var tamast- ur á hverjum tíma, og ekki þekkt neina „samræmda stafsetningu" fyrr en hún var búin til á 19. öld. En þetta er í sann- leika heldur skondin röksemdafærsla. Ritarar skinnbóka létu sér ekki nægja að yngja upp stafsetninguna ef því var að skipta, heldur áttu þeir það líka til að yngja upp málfar og stíl, og ýmis konar gagnrýni, sem við 20. aldar menn birt- um í sérstökum tímaritum, settu þeir nú bara beint inn í textann. Utgefendur vorra tíma aðhyllast önnur viðhorf, þeir leitast ekki við að breyta textum í sam- ræmi við stundlegan smekk og fella jafnvel burtu ýmis glæsileg dæmi um allt að því marxísk bókmenntafræði á fyrri öldum eins og „skækjusonurinn“ eða „og fari bannsettur“, sem hér og þar hefur verið hnýtt aftan við mannanöfn eða setningarhluta. Þess í stað fara þeir í elstu handrit ti! að finna þar sem upp- haflegastan texta, þó svo að hann kunni að koma vanaföstum lesendum Gagns og gamans undarlega fyrir sjónir. Ef þetta gildir um málfar, stíl og orðmynd- 127
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.