Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1993, Qupperneq 63

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1993, Qupperneq 63
leika lausum hala, hafa sloppið úr sérhveij- um texta eða eru ótækar þar og fara sínu fram með skrumskælingum á sjálfum sér höfundinum til sárrar þrautar. Hinn áður frjósami hugur er þess vegna kominn á stig vafasamrar andvöku í stað þess að geta notið kyrrðar við lok ævistarfsins og fá að lifa ánægður og viss í ljúfum vökudraumi ,,ævikvöldsins“ við raup og heillaóskir. Hugarflugið er orðið að óráði og kvöl. Höf- undurinn grípur þá oft til þess örþrifaráðs að segjast hafa hætt skáldskap. Hann gerir það í þeirri von að hann verði annaðhvort klappaður upp af lesendum sínum eða andagiftin geri það óumbeðin, svo hann geti sent frá sér nokkrar bækur í viðbót, eða hann hafnar textanum, segir skilið við skáldskapinn fyrir fullt og allt og hverfur minnislaus inn í örugga þögnina, til þess að endurheimta svefn og hugarró sumra fávita. Hann á það lika til að verða fífldjarfur á ný gagnvart textanum og þá ákveður hann að láta allt flakka, því vegna fyrri meistara- verka verði honum allt fyrirgefið. Við skulum nú ganga að efninu í réttri röð án þess að fara út í smáatriði þess, taka fyrst til íhugunar þann texta sem byrjandinn fæst við, ungur maður sem er rekinn af ffum- krafti út á haf hugmynda og orða fremur en hann hafi ákveðið eða skipulagt sjóferð sína að ákveðnu marki í sérstökum tilgangi að frægðarströnd eða í örugga höfn. Með því að í starfi skáldsagnahöfundar er ekkert algilt, og sérhver maður þekkir sjálf- an sig best, er hagkvæmast að líta stöku sinnum í eigin barm í þessu efni, enda er ég orðinn það gamall að ég hef orðið að ganga í gegnum flestar áður nefndar þrautir með ótta minn við textann, án þess að hafa lent í Paradís meðal sífellt sammála engla. Það er kannski vegna þess að um mig væri hægt að segja á svipaðan hátt og Dante sagði: All’alta fantasía qui manco possa; ma gia volgeva il mio disio de ’I velle, sí come rota ch’ igualmente e mossa, l’amor che move il sole e 1’ altre stelle. (Lok Paradísar í La divina commedia eftir Dante; útgáfa Rizzoli 1949 og hljómar þannig í lauslegri þýðingu: Háleita hugarflugið brást/en löngun mín og óskin snérust/líkt og hjólið sem snýst allt jafnt/vegna ástarinnar sem hreyfir sólina og aðrar stjömur.) Hið óttalega óttaleysi Enginn ungur höfundur sem ræðst í það að skrifa skáldsögu í fyrsta sinn er hræddur við auða síðu. Miklu heldur er hann alltof djarfur og útbíar hana með orðum. Þessi ljúfi, æskuglaði orðaflaumur reynist venju- lega vera ótækur þegar á reynir í listrænum texta. Um leið hefst fyrsti ótti höfundarins við of mörg orð og mikla dirfsku, frelsið andspænis auðum síðum; tóm þeirra heftir hann. Þannig hefst ferill hans, ekki við að skrifa heldur hitt — að strika út með kvöl það sem honum lá mest og ljúfast á hjarta, var næst því og yndislegt sem tilfinning og tjáning en ótækt sem skáldskapur. Kvöl hans er samt þyngri á öðru sviði, sú mikla kvöl að langa að vita og spyrja sig: Hvaðan kemur textinn og innihald hans? Höfundurinn strikar ekki aðeins út, end- urbætir og dregur úr ofgnótt orðanna, lagar annmarka á stíl og leiðréttir eftir bestu getu mál- og pennaglöp sem hafa borist inn í textann, því villumar vilja verða jafnmiklar og ímyndunaraflið er ratvíst og fer vand- lega eftir sínum eigin brautum, heldur TMM 1993:1 53
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.