Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1993, Blaðsíða 69

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1993, Blaðsíða 69
ef hann vinnur að staðaldri og um árabil að iðn sinni ræður hann stöðugt betur við tæknilegu hliðina á henni. Hann fær svo- nefnt verksvit og verður öruggari með sig í sama mæli og velgengni hans vex, einkum ef hún er mælanleg í fé eða áþreifanleg í vinsældum sem hafa góð áhrif á sölu bóka hans. Útgefandinn skánar líka í skapinu; hann hefur aldrei áhuga á höfundi nema í honum felist hagnaðarvon eða tölfræðilegt gildi. Það kemur í ljós að hann hefur „veðj- að“ á réttan hest á ritvellinum. En þrátt fyrir dulda ánægju, læðist jafnvel að þeim sem iðkar skáldskap vegna innri þarfar og illsku tilverunnar, grunur um að verk hans verði með aukinni hæfni að tómri leikni, inni- haldið rými og ytri gerð verkanna færist að hefðunum og því sem hefur hlotið viður- kenningu í merkingunni góð list. Þessa sama gætir hjá hörðustu formbyltingar- mönnum, þeir óttast ekkert fremur en að texti þeirra verði að þægilega tilgangslaus- um og liprum breytingum vegna aukins árangurs hvað varðar tækni og vinnubrögð. í öllu sem maðurinn gerir felst andstæða þess og þannig drepur góð kunnátta þá list- rænu í lokin. Ég hef aldrei orðið fyrir þeirri reynslu að ég hafi haft á tilfinningunni að ég sé búinn að ná tökum á skáldsögunni. Ég veit ekki einu sinni hvað skáldsagan er, svo ég hef líklega ekki getað náð tökum á því sem er óljóst eða kannski ekki til. Vegna þeirrar nokkum veginn ákveðnu skoðunar að ekk- ert sé til í sinni endanlegu mynd eða formi eða geti fengið það, hef ég fremur fikað mig eftir vegum óvissunnar en vissunnar. Þó hef ég gert mér ljóst að viðhorf mitt til textans eða málmagnsins í skáldsögunni hefur breyst. Þegar ég fór að fínna í hinni viðsjár- verðu laug skáldskaparins að ekki varð aft- ur snúið að bakkanum á mínu sundi og ég tók því sem örlögunum að ég mundi aldrei komast upp úr henni á ný heldur hlyti ég að dmkkna fyrr eða síðar í óljósum vötnum hennar, þá breyttist viðhorf mitt til orðanna sem flæðis. Ég hafði tekið þá stefnu næst- um í upphafi að láta persónumar vera á sveimi í orðum á svipaðan hátt og þær sveima um í lífinu í hillingum hinnar skipu- lögðu óreiðu. Sérhver maður týnist í lífmu og öllu sem því fylgir og þannig vildi ég að líf persónanna væri líka í skáldsögunni. Líkt og líkaminn er lífið óskapnaður en regla um leið og maðurinn er innan hvors tveggja. Þetta kallaði ég að láta persónumar týnast óttalaust í textann. En þegar ég fékk óvænt tækifæri úl að ,,endurskoða“ eitt af þeim verkum sem ég hafði skrifað í þessum dúr, þá duldist mér ekki að viðhorf mitt hafði breyst: Ég skar textann niður, til þess að lyfta persónunum frá honum, hefja þær upp úr flæðinu svo þær fengju breiðari út- línur í teikningunni og yrðu fyrir bragðið ljósari við lestur svo ekki þyrfti að leita að þeim eins vandlega í bakgrunninum og áður hafði verið. Það er að segja: undirvitund verksins minnkaði, yfirborðið varð meira við svonefnda meitlun setninganna; teikn- ingin varð ákveðnari, litameðferðin minni. Að iðka skáldskap á liúu málsvæði gæti haft óskorað frelsi í för með sér ef litið er á smæð og takmörk sem eðlilegar aðstæður — höfundurinn þarf ekki að hugsa um ytri aðstæður, takmörkin þar em óhagganleg, hann getur gefið sig allan að innri aðstæð- um listarinnar — en einnig hefur það sína galla og þeir em fleiri en kostimir. Hvað mér viðvíkur hefur óttinn við textann aldrei verið á þann veg að mér sárnaði að úr því skáldskapur minn væri ekki innan hefða og rikjandi smekks mundi ég ekki hljóta það TMM 1993:1 59
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.