Tímarit Máls og menningar - 01.03.1993, Blaðsíða 17
Sölvi Sveinsson
F
Allt veit eg, Oðinn
Hugleiðingar um Völuspá og túlkun hennar
Hér er á ferð yfirlitsgrein um Völuspá, þar sem fjallað er um varðveislu hennar,
samhengi og merkingu.auk þess sem rætt er ítarlega um túlkun einstakra vísna.
Höfundur styðst við margvíslegar heimildir, svo sem orðsifjafræði og trúar-
bragðasögu.
Voluspá er einstök meðal heimilda um nor-
ræn trúarbrögð að fornu, langt kvæði og
fjallar um sköpun heims, upphaf manna, en
þó sýnu mest um goðin sjálf, hvemig þau
koma reglu á veröldina, átök þeirra við
jötna og hvemig þau valda því síðan með
breytni sinni, að heimur ferst og mestallt líf
slokknar, jörðin sekkur í sæ, en rís síðan úr
hafi iðjagræn og fögur, líf og regla sigra á
nýjan leik, hvað svo sem framtíð ber í
skauti. Það er grundvallaratriði í norrænum
trúarbrögðum, að heimsendir er hluti af
sjálfri sköpuninni, kosmólógíunni. Að því
leyti er ásatrúin einstök meðal evrópskra
trúarbragða.1
VÖluspá er stórbrotið kvæði. Það er ekki
til í upprunalegri mynd, því að grundvallar-
hugsun kvæðisins varðveittist um aldir í
munnlegri geymd, hver kynslóð hafði
kvæðið í sinni gerð; trú, menning og lífs-
viðhorf að öðm leyti mótuðu það. Beztu
handrit VÖluspár eru Konungsbók eddu-
kvæða, skráð á seinni hluta 13. aldar, og
Hauksbók, sem skrifuð var á fyrri hluta 14.
aldar; þær eru að mestu með sömu erindi,
en talsverður orðalagsmunur á einstökum
vísum. VÖluspá Hauksbókar er einni vísu
lengri. Báðar þessar uppskriftir eru skráðar
af kristnum mönnum þegar forn átrúnaður
átti í vök að verjast. Augljóst virðist, að
eitthvað hefur glatazt frá því kvæðið var
lifandi hluti orðlistar landsmanna. Snorri
tilfærir á fjórða tug erinda úr Völuspá í
Eddu sinni, og standa þau nær Hauksbók en
Konungsbók. Kristileg áhrif eru sterkari í
Hauksbók; m.a. er kaflinn um ragnarök
2
lengri og ítarlegri.
Kvæðið er reist á goðsögnum, sumum
eldgömlum, og eru þær náskyldar sambæri-
legum sögnum í ýmsum indóevrópskum
trúarbrögðum. Að því leyti er kvæðið túlk-
un á fomum goðsögnum í bland við áhrif
nýrra trúarbragða og utanaðkomandi
menningar af öðm tagi. Búningur kvæðis-
ins er listrænn og felldur frjálslega í skorður
fomyrðislags, eldfoms bragarháttar, sem
TMM 1993:1
7