Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1993, Side 67

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1993, Side 67
um sjálfum og hvað hann væri að gera. Það var alltaf eitthvað merkilegt. Betra reyndist mér samt við iðkun skáld- skaparins að nota á einhvem hátt lifandi persónur. Þótt ég kynni að láta þær koma fram í texta undir öðm nafni en í veruleik- anum notaði ég þær í „réttri“ mynd í hug- anum á meðan samning efnisins var á frumstigi, í þeirri trú að enginn kæmist að þeim þar og sæi að t.d. kona sem hét Jóna í sögu væri kannski í huga mér hún Gunna í næsta húsi. Sagan fjallaði ekki um hina raunverulegu Gunnu og lífshlaup hennar, heldur var hún fremur viðhorf en lýsing á lífinu, ímynduð, skálduð saga, uppspuni frá mér sem var háður hugmyndum mínum eða lífsviðhorfi. Vinnuaðferðin er samt dæmi um verksvit þess sem er átthagabundinn, þótt hann reyni að frelsa sig af þúfunni og færa hugann yfir á víðari svið. Best var og happasælast að nota í hugan- um persónur sem vom mér nákomnar og helst að einhverju leyti kærar. Efnið fjallaði ekki á neinn hátt um verk þeirra, en þær létu þægilega að stjóm í tilfærslunni á þeirri krókóttu leið sem ég leiddi þær um sögu- þráðinn eða samhengið, vegna þess að hug- ur minn var orðinn vanur þeim vegna hugsunar um þær í veruleikanum. Mér fannst síðan vera auðvelt að segja skilið við þær á mörkum hugmyndar og pappírs. Á því andartaki glötuðu þær persónuleika sín- um samkvæmt gangi mála í höfðinu á mér og tóku við innihaldi frá hugsun minni og söguefnið var fært á önnur nöfn en þeirra. Einhverra hluta vegna varð ein af frænk- um mínum fyrir valinu sem reyndist vera gædd þeim töframætti að hún gat gegnt jafnt hlutverki karls og konu við skáld- sagnagerðina, þótt hún gegndi aðeins hlut- verki móður í veruleikanum. Efni skáld- skaparins sem hún tók að sér í hugmynda- heimi mínum átti að sjálfsögðu ekkert skylt við hana, engu að síður óttaðist ég að ef hún gleptist til þess óraunsæis að lesa bókina mundi hún sjálf skína þar sem rétt spegil- mynd á móti henni vegna einhvers töfra- máttar, að hún sæi sig í gegnum uppspunna nafnið og þannig liti hún sína réttu mynd sem ég hefði rekist á við blindan uppspuna minn og kæmist að dulmálinu. Til allrar hamingju fór aldrei svo illa, ekki aðeins vegna þess að hinni ágætu konu hefði aldrei dottið í hug að lesa stafkrók eftir mig, held- ur líka fyrir sakir þess þægilega galdurs líknseminnar í gerð mannsins, að maður getur staðið við hlið einhvers og spunnið með sjálfum sér um hann fáránlegustu sög- ur án þess að hann gruni eða hafi hugmynd um efnið. Slíkrar hræðslu óvissunnar við umhverf- ið og efnisval í texta gætir aðeins á fyrsta skeiði höfundarferilsins. Síðan færir skáld- sagnahöfundurinn sig upp á skaftið, hann fær öryggi eða lætur sér fátt um finnast hvað umhverfið tautar og raular, þó er lík- legast að honum takist að rekast á eigin heima í höfðinu, þá reimleika eða vofur hugsunarinnar sem virðast vera að miklu leyti óháðar umhverfi hans og eru fæddar af sjálfum sér. Skáldsagan verður hans eig- in mynd, mynd af innra landslagi sem hefur verið fært í búning persóna í bók með fólki, fjöllum, vötnum og himni. Ótti umhverfisins við textann Höfundur fær aldrei að vita með vissu hvemig umhverfið óttast skáldskap hans. Ef verk hans skipta verulegu máli hvað varðar stíl og innihald og möguleika til að TMM 1993:1 57
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.