Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1993, Blaðsíða 111

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1993, Blaðsíða 111
eins konar holdgervingur reynslu fyrri tíma. Þessi tímahugsun Þorsteins er stundum sett fram með afar nærtækri líkingu af fljóti, sem streymir fram í sífellu og geymir allan tíma. Sem fyrr fjallar Þorsteinn hér talsvert um andstæður þeirra verðmæta sem eru sígild og hafin yfir stund og staði og svo hinna hverfulu sem litlu skipta en margir sólunda þó ævi sinni í kapphlaupi eða glímu við. Hér er líka sleginn kunnuglegur tónn úr höfundarverki Þorsteins þegar hann bendir á furður lífsins í fyrirbærum sem okkur þykja kannski orðin hversdagsleg: Gamalt vað. Og sorg merlar líkast sólperlu á brotinu. Ánni bregður á bugðu. Og fleira fáheyrt og undarlegt. Það ber líka að minna á að brýning er ekki horfin úr skáldskap Þorsteins. I ýmsum ljóðum hér má lesa, að þrátt fyrir mótbyr og okkur kunni að vaxa í augum sá háski og svartnætti sem veg- ferðin framundan virðist geyma, þá sé mikil- vægt að ganga geiglaus áfram. Missa aldrei trúna. Hver veit nema við göngum „til móts við hetjur og söngva“ eins og segir í „Vorvísu". Þorsteinn biýnir þannig fyrir mönnum kjark, að lífið sé of dýrmætt og þess vegna megi menn allra síst missa móðinn. Halda áfram „völtum skrefum" gegnum þann „óminnisvef* sem „nomir slöngva“ á okkur. Mikilvægi þessa sýn- ist vera meginefni annars hluta og má í því efni vísa til titilljóðsins sem rætt hefur verið að framan. Þá eru einnig áberandi í öðmm hluta Ijóð sem hafa manninn sjálfan að meginvið- fangsefni. Þar er lögð áhersla á uppmnaleika og samkvæmni og látin í ljós von um að maðurinn brjótist út úr því „virki, hlöðnu úr heift og sorta“, sem hann hefur búið um sig í og eigi sér von um líf utan „skotheldra skjólgarða". Frelsi hugarins í þriðja hluta koma svo fram ýmsar stemmning- ar þar sem m.a. er fjallað um töfra þessa lífs, það sem skáldið telur mikilvægt að leggja rækt við. Mér virðist að í þessari bók leggi Þorsteinn kannski mest upp úr frelsi hugarins, að í krafti andans geti hann hugsað hvað sem honum sýn- ist og farið hvert sem er. Það frelsi verði aldrei frá manni tekið. Það vekur hins vegar athygli að þetta tengist ekki beint skáldskapnum sjálfum í jafn miklum mæli og í íyrri ljóðabókum, t.d. í Vatns götur og blóðs, þar sem mörg ljóð ijalla um ljóðlistina sjálfa, hlutverk hennar og tilgang og þá í samhengi við þetta frelsi. í þessari bók er frelsi andans víðtækara, ef svo má að orði komast, ekki bara bundið við skáldskapinn. Og jafnvel reynast töfrar hversdagsins og stað- reyndir manni og ljóði yfirsterkari, eins og segir í ljóðinu „Skúm“: Ég verð aldrei vitrari en þetta ljóð. En dordingull spann hér í dag þráð af þeirri eilífð sem var til áður en orðið. Þó eru hér nokkur ljóð sem hafa beinlínis skáld- skapinn sjálfan að viðfangsefni og eitt þeirra er „Sólin heim“, þar sem augljóslega er vísað til listaskáldsins góða. Áður hafa ýmis skáld vitn- að um áhrif hans á skáldskap sinn; frá seinni tíð er kannski minnisstæðast ljóð Snorra Hjartar- sonar sem endar á margræðri hendingu um hinstu fótatökin: „Heyri þau heyri þau óma / í hugar míns djúpi sem fyr / á langferðum lífs míns og brags“. Með niðurlagi sínu tjáir Þor- steinn svipaða hugsun í meitlaðri mynd: Sólin heim! Ég horfi nýr undir hönd grasadrengs. Hér hafa einungis verið nefnd fáein stílleg og TMM 1993:1 101
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.