Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1996, Síða 117

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1996, Síða 117
honum eða hann býr til eða lagar til með aga og þjálfun. En er það sem býr í honum andi guðs? Það veit enginn. Líklega býr í honum, líkt og í öðrum, arfleifð mannkyns- ins, minnið sem er í líkamsfrumunum, einkum í heilanum. En hvers vegna brýst þetta fram í líki listaverka aðeins hjá örfáum, ekki öllum, ef það á rætur að rekja til arfleifðar mannkynsins? Það veit ég ekki. Hitt þykist ég vita, að leynda minnið líður fram í hugann vegna þess sem kalla mætti klifandi nið. Sumir segja að hann sé trúarþörfin. Það veit ég ekki. En hvað sem niðurinn kann að vera beinist hann fráleitt að ákveðnum guði með krafti bæna eða að vissu pólitísku valdi, þó hægt sé að beygja og nota hann í lofgerðir. Kannski er hæfileikinn til að iðka listir þörf veiðimanns, listamaður veiðir óljósar hugmyndir og banar þeim í verkum sínum. Hver listamaður hlýtur að kannast við hvernig hann eltir hugmyndir. Ýmist leynt eða ljóst reynir hann að hremma og færa þær í viðunandi búning en háðan tíðaranda og breyt- ingum. Umbrot í listum og búningar þeirra eru háð tíma og fagurfræðilegu viðhorfi hverju sinni, en hugmyndirnar og innihaldið eru nokkurn veginn stöðugt eins, stíllinn breytist og hvort tveggja er á vissan hátt í feluleik við fegurðarskynið, til þess að hægt verði að skynja hugmynd og innihald á hverjum tíma með sérstökum hætti eða í viðeigandi stíl. Sömu viðfangsefni skjóta endalaust upp kollinum úr djúpi tíma og kennda, eru færð í listaverk um stund og þykja fögur eða ljót, en sökkva síðan aftur í djúpið með einkennilegum og órannsökuðum hætti. Þess vegna er kannski ekki fegurð eða ljótleiki sömu atriða það sem gerir okkur sífellt reiðubúin til að taka við þeim eins og einhverju nýju heldur feluleikur formanna. Formin endurnýjast ekki fyrir opnum tjöldum heldur í ósýnileik- anum, og viðfangsefnin eru þar síendurtekin. Svo kannski eru þau sígild á sama hátt og líkamsformin sem við gerum bærileg með því að breyta um klæðnað. Nakinn maður yrði óþolandi til lengdar. Fötin voru fundin upp til þess að hægt væri að ímynda sér líkamann undir þeim. f þessu efni getum við, góðu heilli, skipt um skoðun og breytt um smekk, annars væri lífið og heimurinn óbærileg kvöl. Okkur yrði umhverfið leitt ef það breytti aldrei um svip eða birtu, lit og stíl. En þannig er heimur okkar að verða vitsmunalegur og einlitur, einhæfúr og samræmdur, þótt við freist- umst til að líta fram hjá þróun hans og viðurkennum ekki að sökum hugmynda okkar um jöfnuð viljum við að allt verði eins, en okkur hrýs jafnframt hugur við afleiðingunum. Við viljum ekki að hugmyndunum verði að ósk sinni, hvorki tilfinninga- né fagurfræðilega séð. Með því móti mætti auganu hvarvetna nákvæmlega það sama. Kvöl mannsins í samtímanum stafar ekki af ótta í venjulegum skilningi, heldur af því að vélræna minnið hefur náð völdum í næstum öllu sem varðar TMM 1996:3 115
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.