Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Page 78

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Page 78
RÚNAR HELGl VIGNISSON * Helgina eftir var gengið til sveitarstjórnarkosninga. í þeim kosningum náðu Þjóðgarðsverðirnir meirihluta, en Gyðjurnar, sem myndað höfðu meirihluta með Bjargvættunum, misstu sinn mann, eða öllu heldur konu. Þegar þær fengu konu kjörna í síðustu kosningum höfðu tveir efstu menn af lista Þjóðgarðsvarðanna borið hana út þar sem hún sat að fagnaði með stöllum sínum. Það varð þeim ekki til framdráttar, Gyðjurnar sökuðu Þjóðgarðsverðina um yfirgang og hófu samstarf með Bjargvættunum. Þannig komust Bjargvættirnir loks til valda í þessu bæjarfélagi, en þó aðeins eitt kjörtímabil. Þegar ég geng á fund hins nýja bæjarráðs situr sá óffíski með stóra hausinn þar: formaður bæjarráðs. Það sem meira er, samflokksmenn hans virðast allir vera með stóran haus, þó að þeir skáki formanninum reyndar ekki, og fyrir vikið er engu líkara en aðrir viðstaddir séu allt að því höfuðsmáir. Ekki minnist ég þess að svona margir hafi verið með stóran haus í mínu ungdæmi. Ég hugsa með mér að nú sé ef til vill lag og reyni að gjóa augunum til formannsins svo lítið ber á. En minn er eins og hengdur upp á þverslaufuna sína. Ég býð þig velkomna á fund hins nýkjörna bæjarráðs. Eins og þú getur ímyndað þér eru áherslur Þjóðgarðsvarðanna allt aðrar en fyrri meirihluta. Hvergi höggstaður á borgaralegu fasinu. Kurteislegur hroki. Hroka- full kurteisi. Við fórum í gegnum starfsemina lið fyrir lið. Þeir héldu sig á mott- unni í þetta sinn, létu sér nægja að ítreka hve erfið fjárhagsstaða bæjar- sjóðs væri og þeim þröngur stakkur skorinn. Ég átti eftir að kynnast því betur. Strax um haustið gerðu fjöllin uppreisn. Þau sperrtu sig hvað þau gátu, eins og þau vildu freista þess að loka sjóndeildarhringnum, sem mér fannst þó nógu íbjúgur fyrir í seinni tíð. Ef til vill voru fjöllin sitt- hvoru megin fjarðarins steinrunnin tröll hvort af sínu kyni, viðþolslaus af þrá eftir margra alda kitlandi gægjur og daður. Skyndi- lega svall þeim móður, brjóstin bifuðust og sendu tröllsleg jarteikn 76 malogmenning.is TMM 2000:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.