Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Page 137

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Page 137
Örn Ólafsson Kommúnistar og borgaralegir höfundar I TMM 3.h. 2000 skrifar Árni Bergmann svar til þeirra sem sakað hafa kommúnista um að ofsækja „borgaralega rithöfunda“. Flestu er ég sammála í grein Árna, en þó vil ég gera fáeinar athugasemdir. Leitt er að Árni skuli ekki hafa tímasetningar á því sem hann segir um afstöðu róttæklinga til Davíðs Stefánssonar, t.d. Án þeirra mást öll sérkenni út. Ástæðan er sú, að frá stofnun Kommúnistaflokks íslands 1930 og fram á mitt ár 1934 var flokkurinn beygður undir einangrunarstefnu Alþjóðasam- bands kommúnista. Samkvæmt henni voru sósíaldemókratar höfuðstoð auðvaldsins og kommúnistum því bannað allt samstarf við samtök þeirra. Á þeim tíma voru Alþýðuflokkurinn og ASf eitt, svo þetta skapaði veruleg vandamál. Kratar reyndu fyrir sitt leyti að einangra kommúnista, og er talið að þessi sundrung hafi komið Hitler til valda í Þýskalandi. Á menningarsvið- inu gilti samskonar einangrunarstefna hjá kommúnistum út árið 1935; að borgaraleg menning væri úr sér gengin, gjörspillt og ónothæf fyrir stéttvísan verkalýð. f staðinn væri nú kominn tími nýrrar bókmenntastefhu, sósíalreal- ismans, sem í senn afhjúpaði galla auðvaldsskipulagsins og sýndi verkalýðn- um fyrirmyndarhetjur í byltingarbaráttunni gegn því. Vegna þessa hömuð- ust róttæklingar almennt gegn Davíð Stefánssyni á fyrri hluta 4. áratugarins (það rek ég í bók minni Rauðu pennarnir, 1990, bls. 90 o.áfr.). Hann var eink- um gagnrýndur fyrir að sýna alþýðufólki meðaumkun í stað þess að hvetja það til stéttarbaráttu. Almennar vinsældir ljóða þessa skálds gerðu þau sér- lega hættuleg, og því var talið einkar mikilvægt að berjast gegn því. Þetta við- horf er reyndar alveg andstætt frumkvöðlum marxismans, Marx, Engels, Lenín og Trotskí, m.a., sem töldu að verkalýðurinn yrði að tileinka sér þá menningu sem drottnaði í umhverfi hans - jafnframt því að átta sig gagnrýn- um huga á þeim stéttarsjónarmiðum sem einkenndu einstök listaverk - ekki að forðast verkin vegna þeirra sjónarmiða. Um miðjan 4. áratuginn sneri Stalín við blaðinu, og boðaði kommúnist- um samstarf við hvern sem var gegn fasisma. Ársritið Rauðirpennar var ný- útkomið fyrsta sinni, þrungið kenningunni um úrkynjun borgaralegrar TMM 2000:4 malogmenning.is 135
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.