Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Page 151

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Page 151
RITDÓMAR fullgerir þá íronisku vídd sem hvarvetna er á sveimi í textanum. Þó söguefiiið sé í rauninni grafalvarlegt og varði líf og ör- lög íslensku þjóðarinnar nær höfundur- inn að fjalla um samtímaveruleikann með þeim hætti að lesandinn skemmtir sér ágætlega um leið og hann skilur ýmsa hluta samfélagsins í óvæntu samhengi. Gunnlaugur Ástgeirsson Byggingarlist á bók Birgit Abrecht, Arkitektúr á íslandi — leiðarvísir, Mál og menning/DVA 2000,324 bls. Leiðsögn um íslenska byggingarlist, Arkitektafélag íslands 2000,207bls. Eftir mikla fátækt í útgáfu handbóka um íslenska byggingalist koma nú allt í einu út tvær bækur, báðar mjög metnaðar- fullar og vandaðar, áhugamönnum um íslenska byggingalist til ómældrar ánægju. Bók Arkitektafélagsins er í all- háu broti, liðlega 24 sentimetra, eða ná- kvæmlega eins og Tímarit Máls og menningar. Leiðarvísir Abrecht er fjór- um sentimetrum lægri. Breidd beggja er þó áþekk. Bók Arkitektafélagsins er fjórt- án sentimetrar, en leiðarvísirinn er þrett- án, ef gormarnir á kilinum eru taldir með. Báðar eru bækurnar veglega mynd- skreyttar með litmyndum af hverri bygg- ingu. Þá er báðum skipt milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðar- innar þannig að byggingar í Reykjavík og nágrenni eru í fyrri hluta bókanna en síðan er haldið réttsælis umhverfis land- ið. 1 fljótu bragði mætti því ætla að bæk- urnar væru nauðalíkar og kepptust um athygli sama markhóps. Þegar betur er gáð er þó allstór munur á þessum tveim ritum. Bók Arkitektafé- lagsins er einungis á íslensku meðan Leiðarvísir Abrecht er á þremur tungu- málum, íslensku, ensku og þýsku. Það er því greinilegt að sú fyrrnefnda er öðru fremur ætluð íslenskum áhugamönnum meðan hin er jafnframt hugsuð sem handbók fýrir erlenda ferðalanga, enda er Birgit Abrecht sjálf í þeim hópi. 1 inngangi sínum segir Abrecht að á mörgum ferðum sínum um ísland hafi hún saknað þess að hafa ekki saman komnar í einni bók allar þær byggingar sem vöktu áhuga hennar og töldust markverðar, annað hvort sökum sögu- legs mikilvægis eða vegna sérstæðrar húsagerðar. Auk þess að einskorða valið við hálft annað hundrað bygginga hugs- aði Abrecht sér brotið á bókinni svo hún færi vel í vasa ferðamannsins. Af öllum þeim fjölda manna sem hún segir hafa aðstoðað sig, og tíundaðir eru undir inn- gangi hennar telur hún sérstaklega Pétur H. Ármannsson hjá Byggingarlistardeild Listasaftis Reykjavíkur og kollega hans, arkitektana Einar Pálsson og Jurgen Eberhardt. Sá síðastnefndi vann teikn- ingarnar í bókinni. Eftir örstutt spjall Péturs um nokkur helstu sérkenni íslenskrar byggingalistar í aldanna rás kemur allítarlegt yfirlit yfir sögu íslensks arkitektúrs, á einum tuttugu blaðsíðum, þar sem saga torfbæjarins er rakin með mörgum skýringamyndum, þróun stein- og timburhúsa, og að end- ingu er fjallað um nútímann, tilkomu skipulags í Reykjavík, notkun steinsteypu og stefnur í byggingalist á 20. öldinni. Þessi kafli er athyglisverður fýrir hve miklum ffóðleik er komið fýrir í tiltölu- lega stuttu máli, án þess að óreiðan nái tökum á ffásögninni eða að lesandanum sé íþyngt með alltof mörgum nöfhum. Effir þetta yfirlit yfir sögu íslenskrar húsagerðar gerir Birgit Abrecht grein fýrir skipulagi ritsins og notagildi. Með dæmum á öllum þrem tungum sýnir hún hvernig bókin er uppbyggð, og hvernig má nota hana á vettvangi til að fletta upp á ákveðinni byggingu sem verður á vegi ferðalangsins. í kjölfarið TMM 2000:4 malogmenning.is 149
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.