Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Qupperneq 152

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Qupperneq 152
RITDÓMAR fylgir síða með landakorti yfir landshlut- ana og hvar þá er að finna í bókinni. Að endingu fylgir þróunarsaga Reykjavíkur á nokkrum blaðsíðum, prýdd litlum grafískum kortum sem lýsa þróun byggðarinnar á Seltjarnarnesinu frá því Ingólfur Arnarson kom þangað fyrst og settist þar að, þar til nú að Nesið dugar ekki lengur undir allan fjöldann sem býr í Reykjavík og byggðin er farin að flæða um holt og hæðir, víkur og voga. I bókarlok eru orðskýringar eða glósur yfir þau fræðiheiti og stefnur sem fyrir koma í ritinu, auk heimildaskrár, mynda- skrár, staðanafnaskrár, mannanafnaskrár og byggingaskrár. Þessi upptalning sýnir vel hve mjög er vandað til allra þátta Leið- arvísisins um arkitektúr á íslandi. Ekkert virðist til sparað til að gera bókina sem gagnlegasta fyrir lesendur. Islensk þýðing Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur er lipur og læsileg og sama máli gegnir um enska þýðingu önnu Yates. Hvað varðar bók Arkitektafélagsins þá er inngangur Dennis Jóhannessonar og Málffíðar Kristjánsdóttur, „Ágrip ís- lenskrar byggingarsögu", ágætt og lipurt yfirlit yfir þróun íslenskrar húsagerðar. Hann er að visu almennari en „Islensk byggingarlistasaga“ í Leiðarvísi Birgit Abrecht og skortir þar með ákveðnar upp- lýsingar sem gjarnan hefðu mátt koma fram í jafnviðamikilli úttekt. Þannigsakn- ar lesandinn óhjákvæmilega skýringa- mynda þótt ritgerðin sé vissulega prýdd mjög vel völdum smámyndum af íslenskri byggingalist ffá elstu tíð til okkar daga. Höfundar ágripsins í bók Arkitektafé- lagsins láta hjá líða að geta mætra manna á borð við Guðlaug Sveinsson prófast, en árið 1791 birtust eftir hann tillögur að nýrri gerð bæja í Riti Lærdómslistafélags- ins og áttu þær drjúgan þátt í samræm- ingu útlits og húsaskipunar sunnlenskra bæja á 19. öld. Skúli Magnússon er heldur ekki nefndur fýrr en í ágripi Nikulásar Úlfars Mássonar að byggðarþróun Reykjavíkur, en Skúli var sennilega fýrst- ur manna til að varpa fram þeirri hug- mynd að reist yrðu steinhús á íslandi og var það ekki bundið við Reykjavík og ná- grenni eins og dæmin um Hóladóm- kirkju og Landakirkju í Vestmannaeyjum sanna. Þá hefði að ósekju mátt geta Helga Helgasonar smiðs og tónlistarmanns en hann átti heiðurinn af þeim klassíska stíl sem nýlega birtist okkur í sinni fegurstu mynd í Kvennaskóla Þóru Melsteð í Thorvaldsensstræti 2. Hússins er getið í ágripinu án þess að höfúndurinn sé nefndur. Það kemur þó ekki að sök fýrir ritið því þessarar nýupp- gerðu perlu og höfundar hennar eru gerð verðug skil í sjálfri umfjölluninni um einstakar byggingar. Þáttur Nikulásar Úlfars Mássonar „Ágrip byggðarþróunar í Reykjavík" er prýðilegur og gefur bók Arkitektafélags- ins þann þunga sem hæfir jafnvandaðri úttekt á íslenskri húsagerðarlist og borg- arskipulagi. Kortin og myndirnar sem fýlgja rit- gerðinni og ítarlegir textarnir undir þeim auka enn frekar ágæti yfirlitsins. Þá eru skrárnar affast í bók Arkitektafélags- ins bæði vandaðar og vel skipulagðar. Reyndar má segja að ritið sé öðru fremur helgað höfuðborgarsvæðinu og næsta nágrenni. Á Stór-Reykjavíkursvæðinu er fjallað um 173 byggingar á móti 58 bygg- ingum annars staðar á landinu. Til sam- anburðar skiptist bók Abrecht nánast til helminga hvað varðar umfjöllun um höfuðborgarsvæðið og landsbyggðina. En hvernig skyldi svo hafa tekist til með lungann úr bókunum, sjálft yfirlitið yfir byggingarnar? Á meðan bók Abrecht hefur að geyma umfjöllun um 150 bygg- ingar eru þær 232 í bók Arkitektafélags- ins. Þá er töluverður munur á myndefninu og uppsetningu þess. Guð- mundur Ingólfsson ljósmyndari var 150 malogmenning.is TMM 2000:4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.