Gripla - 01.01.1995, Blaðsíða 192
190
GRIPLA
gáfu safns hans (1862,1:59-64). Hin er frásögn „aö austan frá Magnúsi
Jónssyni frá Felli“, varðveitt í Lbs. 531 4to. Guðrún Ingólfsdóttir (1983)
hefur rannsakað tengsl þessara lausamálsfrásagna við ólíkar gerðir
kvæðisins og sýnt hvernig sagnaritararnir hafa lagað efnið í hendi sér.
Jón Helgason rannsakaði handrit Kötludraums fyrir útgáfu sína á ís-
lenzkum miðaldakvœðum. Því verki varð aldrei lokið eins og ráðgert
var. Hugmynd Jóns (1953:167, sjá aftar um aldur Kötludraums) um að
sagnakvæði undir ljúflingslagi hafi mótast fyrir siðaskipti hefur trúlega
ráðið þeirri ákvörðun að gefa sagnakvæðin út með miðaldakvæðunum.
Ýmis rök gætu þó mælt með því að halda þeim fremur í félagsskap
sagnadansa í íslenzkum fornkvœðum. Til dæmis eru sagnakvæðin inn-
an um og saman við fornkvæðin í handritum og voru oft nefnd forn-
kvæði, eins og kemur fram í inngangi Jóns Helgasonar (1962:xl) að ís-
lenzkum fornkvœðum þegar hann greinir frá þeim kvæðum sem hann
ætlar ekki að prenta sem fornkvæði, það eru meðal annars: „Episke
digte i eddaversemál, allittererende (skpnt allitterationen ofte er for-
styrret), optegnede efter mundtlig tradition, foreligger i talrige hánd-
skrifter med varierende tekstformer. Betegnedes tidligere, ligesom
folkeviserne, som fornkvæði.“
Það sem hér er sagt um gerðir Kötludraums byggist á stafréttum
uppskriftum úr fórum Jóns Helgasonar á tólf handritum, sem Jonna
Louis-Jensen í Árnasafni í Kaupmannahöfn hefur veitt mér góðfúslegt
leyfi til að nota. Sjálfur hef ég fært stafsetningu til nútímahorfs í tilvitn-
unum til kvæðisins.
Elstu handrit frá síðari hluta 17. aldar
í handritunum tólf sem Jón Helgason hefur skrifað upp eru tvær meg-
ingerðir Kötludraums. Hann nefnir þá styttri, með um 60 erindum, A
(8 uppskriftir), og þá lengri, með nær 90 erindum, B (4 uppskriftir). í
umfjöllun minni um kvæðið hef ég skipt v4-kvæðunum eftir lengd í A1
(lengri, 6 uppskriftir) og A2 (styttri, 2 uppskriftir). Upplýsingar Jóns
um aldur og uppruna handritanna má draga saman í töflu á bls. 191.
Elsta varðveitta uppskrift Kötludraums er í Kvœðabók séra Gissurar
Sveinssonar (AM 147 8vo) sem var skrifuð árið 1665. Þá eru fimm önn-
ur handrit (2B og 3A) frá seinni hluta 17. aldar. Einnig er vitað um
eldri, glataða uppskrift kvæðisins sem var í helgikvæðahandritinu AM
622 4to. Það handrit skrifaði Gísli Jónsson, síðar biskup í Skálholti, fyr-