Gerðir kirkjuþings - 2004, Blaðsíða 27
15. mál 2004. Tillaga að þingsályktun um neyðarskipulag kirkjunnar vegna hópslysa
Hópslysanefhd sem Kirkjuráð skipar skilaði Kirkjuráði skýrslu og tillögum á árinu um
neyðarskipulag kirkjunnar vegna hópslysa. I framhaldi af því var ákveðið að flytja
tillögu á Kirkjuþingi þess efnis að þingið samþykki neyðarskipulag kirkjunnar svo sem
það er sett upp í skjalinu. Brýnt er að skipulagið fái stöðu í stjómkerfi kirkjunnar og
samþykkt þess felur í sér að um valdboð Kirkjuþings er að ræða ef á skipulagið reynir.
16. mál 2004. Tillaga að starfsreglum um brottfall starfsreglna um fræðslu fyrir
leikmenn innan kirkjunnar nr. 823/2000
í samræmi við ffamlagða tillögu að stefnu kirkjunnar í ffæðslumálum í 5. máli
Kirkjuþings 2004 leggur Kirkjuráð til afnám hinna sértæku starfsreglna um fræðslu fýrir
leikmenn innan kirkjunnar. Að mati þeirra sem gerst til þekkja er ekki þörf lengur á
sérstökum starfsreglum um ffæðslumálin þar sem stefnan sjálf er sú heimild sem unnið
er eftir. Kirkjuþing grundvallar þannig fræðslustarf Þjóðkirkjunnar í heild til ffambúðar
með samþykkt almennrar stefnu þar um og er því lagt til að starfsreglurnar verði felldar
brott.
17. mál 2004. Tillaga tilþingsályktunar um gjaldalíkan fyrir sóknir
Um þingmannamál er að ræða.
18. mál 2004. Tillaga tilþingsályktunar um stofnun faglegs handleiðsluteymis íslensku
Þjóðkirkjunnar
Um þingmannamál er að ræða.
19. mál 2004. Tillaga tilþingsályktunar um sölu á prestssetrum og hluta af prestssetrum
Um mál er að ræða sem flutt er af Prestssetrasjóði.
V. Stofnanir á vegum Kirkjuráðs
Kirkjuráð minnir á að stofnanir og nefhdir skila skýrslum í Árbók kirkjunnar eins og fýrr
hefur verið greint frá og er vísað þangað til nánari greinargerða um starfsemi þeirra. Sú
umfjöllun sem hér fer á eftir er til fyllingar því eða sérstakrar áréttingar atriðum sem
Kirkjuráð vill vekja athygli Kirkjuþings á. Enn fremur er vikið að atriðum sem
hugsanlega koma ekki ffam í skýrslunum.
Skálholt og Skálholtsskóli
Kirkjuráð hefur venju samkvæmt fjallað um málefni Skálholtsstaðar og haldið árlegan
fund ráðsins í Skálholti þar sem Kirkjuráðsmenn ræða við starfsfólk um málefni
staðarins, kirkju, og skóla. Þá sótti vígslubiskup þá fundi ráðsins þar sem fjallað var um
Skálholt.
Vígslubiskup kynnti Kirkjuráði drög að stefnumótun fyrir Skálholtsstað, sem unnin höfðu
verið að ósk ráðsins. Eru drögin lögð fram sem fylgiskjal með skýrslu þessari. Settar eru
fram hugmyndir um brýnustu verkefnin framundan og um Skálholt sem sögustað,
fræðasetur og helgistað svo og hvernig megi efla hvem þann þátt. Að lokum er að finna
drög að stefnumótun til næstu þriggja ára. Kirkjuráð samþykkti að leita til Runólfs Smára
Steinþórssonar, dósents við HÍ, um að leiða stefnumótunarvinnuna og tók hann verkefnið
að sér. Við gerð og framkvæmd stefnumótunar fyrir Skálholt er sjálfsagt að hafa í huga
að árið 2006 verður minnst 950 ára afmælis stólsins.
25