Gerðir kirkjuþings - 2004, Blaðsíða 50
o Gerð ítarefnis um kristinfræði og trúarbragðafræðú t.d. um kirkjulegar athafnir
o Fræðsla og fyrirlestrar hjá foreldrafélögum, m.a. um áföll og gildismat
o Sjálfstyrking fyrir nemendur í efstu bekkjum grunnskóla
o Lífsleikni fyrir framhaldsskóla þar sem áhersla er á tilvistarspumingar.
IV. Kafli.
Skipulag fræðslumála Þjóðkirkjunnar
a. Heimilið og kirlgan
o Foreldrar og heimili bera ffumábyrgð á uppffæðslu bama sinna, ffæðslu hinna
skírðu. Sóknin styður og hvetur foreldra og heimili við það uppeldi.
o Sóknin er grunneining hins skipulega ffæðslustarfs kirkjunnar. Allar sóknir styðji
foreldra og heimili við uppeldishlutverk sitt.
b. Sóknin-prestakallið
o í sérhverri sókn sé boðið upp á bama-, fermingar- og æskulýðsstarf, svo og
foreldra- og fullorðinsffæðslu.
o Sóknarprestur og aðalsafhaðarfundur hverrar sóknar samþykki áætlun um
fræðslustarf sóknarinnar.
o Sóknir innan sama prestakalls hafi samvinnu sín í milli þar sem fámenni hindrar
þessar fræðsluskyldur sóknarinnar og tryggi þannig að öllum í sókninni standi til
boða sama þjónusta.
c. Hlutverk prófastsdæma
o Starf meðal unglinga er á ábyrgð prófastsdæmis hafi sóknir og prestaköll ekki
bolmagn til þess.
o Prófastsdæmi sinni sérstökum verkefnum í unglingastarfi svo sem lífsleikni í
framhaldsskólum, eftir því sem aðstæður leyfa.
o A vegum prófastsdæmis sé starfrækt fræðsla meðal fullorðinna í samvinnu við
fræðslusvið Biskupsstofu þar sem sókn eða prestakall hafa ekki bolmagn til þess.
o I prófastsdæmum sé boðið upp á starfsmannaþjálfun svo og námskeið fyrir
kennara og annað starfsfólk í fræðslu og uppeldismálum, í samvinnu við
fræðslusvið Biskupsstofu.
d. Frœðslusvæði- fræðslufulltrúar
o Prófastsdæmi geta myndað ffæðslusvæði til að sinna ffæðsluhlutverki sínu.
o Innan hvers prófastsdæmis eða ffæðslusvæðis sé fræðslufulltrúi sem annist
fræðsluna undir umsjón prófasts og í samvinnu við ffæðslusvið Biskupsstofu.
e. Kirkjumiðstöðvar
o Þar sem starfsræktar eru kirkjumiðstöðvar geta þær með samþykki héraðsfúnda og
eða sókna tekið að sér einstaka ffæðsluverkefni svo sem barnastarf á sumrin,
skipuleggja fermingarbarnamót og fræðslu fullorðinna á svæðinu.
o I Skálholti verði hugað að uppbyggingu miðstöðvar fyrir fræðslu og þjálfun
starfsfólks, hagnýtt nám djákna- og guðfræðinema, og símenntun presta og
djákna, allt eins og við verður komið.
/ Frœðslusvið Biskupsstofu- fræðsluþing
o Fræðslusvið Biskupsstofu hefur það hlutverk að fylgja effir fræðslustefnu
Þjóðkirkjunnar í umboði biskups íslands.
o Fræðslusvið Biskupsstofu skiptist í eftirfarandi fimm megin ábyrgðarsvið:
(1) Barnafræðslu - foreldrafræðslu,
(2) Fermingarfræðslu,
(3) Unglingastarf- fræðslu fyrir unglinga og ungt fólk,
48