Gerðir kirkjuþings - 2004, Side 58

Gerðir kirkjuþings - 2004, Side 58
öfugt eins og hefur viljað brenna við. Eðlilegt er að stutt sé fjárhagslega við starf kirkjumiðstöðva en á hinn bóginn þarf einnig að samræma Qármögnun kirkjumiðstöðva og fræðslufulitrúa um land allt. Skálholt hefur hér nokkra sérstöðu. Staðurinn og skólinn hefur það hlutverk m.a. að sinna fræðslumálum Þjóðkirkjunnar samkvæmt lögum. A hinn bóginn virðist eðlilegt að í Skálholti verði miðstöð fyrir fræðslu og þjálfun starfsfólks, hagnýtt nám djákna- og guðfræðinema, eins og kostur er, og símenntun presta og djákna, enda býr skólinn að aldalangri hefð í þeim efnum og öll aðstaða er fyrir hendi. Aðrar kirkjumiðstöðvar geta komið að því starfi effir því sem henta þykir. Stefna skal að því að innan hvers prófastsdæmis eða fræðslusvæðis sé starfandi fræðslufulltrúi sem annist fræðsluna undir umsjá prófasts og í samstarfi við fræðslusvið. Gera verður ráð fyrir til að byrja með að þjónandi prestar eða annað starfsfólk Þjóðkirkjunnar hafí hlutverk fræðslufulltrúa. Starfandi héraðsprestar hafa að nokkru levti sinnt þessu starfi og verði ffæðslan hluti af þeirra starfi áffam. Núverandi fyrirkomulag á störfum fræðslufulltrúa/fræðslusvæða skal einfaldað og fært til samræmis við ofangreint þannig að öll prófastsdæmi, a.m.k. í dreifbýli, sitji við sama borð. Fræðslusvið Biskupsstofu — Leikniannaskólinn Eitt af meginverkefnum Leikmannaskólans frá stofnun hans hefur verið fullorðinsfræðsla. Verkefnið var hluti af fræðsludeild Biskupsstofu en þróaðist í sjálfstæða átt með starfsreglum sem enn eru í gildi. Hér er lagt til að rekstur fræðslusviðs Biskupsstofu og Leikmannaskólans sameinist á ný til einföldunar á framkvæmd verkefna. Nafni Leikmannskólans verði haldið á fullorðinsfræðslunni þar sem henta þykir því nafnið hefur áunnið sér traust. Tilnefnt skal áfram í fagráð fullorðinsfræðslunnar með sambærilegum hætti við það sem gert hefur verið í stjórn Leikmannaskólans. Fimm helstu verkþættir fræðslusviðs Biskupsstofu verða skv. fræðslustefnunni: o Barnafræðsla - foreldrafræðsla o Fermingarfræðsla o Unglingastarf- fræðsla fyrir unglinga og ungt fólk o Fræðsla fullorðinna (Leikmannaskólinn) o Starfsmannaþjálfun kirkjunnar Sú skipting tekur mið af fræðslustarfi sóknanna um land allt og þeim skyldum sem sóknum eru lagðar á herðar. Eðlilegt þykir að fræðslusviðið hafi á sínum snærum fagaðila sem hafa umsjón með hverjum þætti fyrir sig. Þá er og getið um nýmæli að efna skuli til fræðsluþings á Qögurra ára fresti. Þannig fæst umræða á landsvísu um málefni kirkjufræðslunnar allrar og gæti það þing orðið mikilvægur vettvangur umræðna og endurmats á fræðslustarfmu. Það ætti jafnframt að auðvelda Kirkjuþingi að endurmeta fræðslustefliuna þegar þess reynist þörf. Hagkvæmast er að þróun fræðsluefnis og umsjón námskeiða sé á hendi fræðslusviðs Biskupsstofu. Einstök prófastsdæmi/svæði geta haft frumkvæði að þróun efnis. Aukin hagræðing er fólgin í því að slíkt sé unnið með heildina í huga. Fræðslusviðið hefur einkum haft í huga á næstunni tvenns konar fræðsluefni og námskeið sem skuli þróuð, þ.e. fræðsluefni sem er tilbúið beint til notkunar og tiltölulega auðvelt fyrir alla að nýta og námskeið sem krefjast ákveðinnar færni hjá þeim sem stjórna. Fræðslusvið 56
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.