Gerðir kirkjuþings - 2004, Page 59
Biskupsstofu sér áfram um efnisgerð, hönnun/ nýsköpun og endurskoðun námsskeiða svo
og þjálfun ffæðara.
Heildarstefna kirkjunnar- fræðslustefna
Að lokum skulu hér nefnd helstu verkefni sem koma til framkvæmda í fræðslustefnu
þegar tekið er mið af stefnu og starfsáherslum Þjóðkirkjunnar 2004-2010:
2004- 2005 Samfélag í trú og gleði
o Gerð heildstæðrar námsskrár
o Gerð árangursmats (lágmarksþjónusta - samræmd starfsmannaþjálfun)
o Námskeið fyrir hópastarf
o Leiðtogaþjálfun - námsefnisgerð
o Lífsleikni fyrir framhaldsskóla
o Gerð áætlunar um sjálfboðastarf
2005- 2006 Heimilið
o Samskipti við foreldra
o Átaksverkefni “Elskaðu bamið þitt -vemdaðu bemskuna”
o Námsefnisgerð og námskeið fyrir foreldra skímarbama
o Námskeið fyrir foreldramorgna (hugmyndafræði/námsskrá)
o Hjónanámskeið
o Umræðuefni fyrir verðandi brúðhjón
o Námskeið fyrir verðandi brúðhjón (út frá gátlista/um athöfhina)
o Námskeið fyrir “lengra komna”
o Samræða við skólasamfélagið um samstarf kirkju og skóla
o Fræðsluefni bamastarfs endurskoðað
o Leiðtogaþjálfun í bama- og æskulýðsstarfi
2006- 2007 Þjónustan
o Heimsóknarþjónusta við aldraða - átak
o Sérstök áhersla á kristniboð og hjálparstarf í barna- og fermingarstarfi
2007- 2008 Samstarfið
o Samstarf sókna, svo og prófastsdæmi/ffæðslusvæði og starf í kirkjumiðstöðvum
tekið til sérstakrar skoðunar
o Samstarf sókna við skóla
2008- 2009 Skipulag Þjóðkirkjunnar
o Endurskoðun skipulags fræðslustefnunnar
Um 5. kafla. Gildistaka
Ekki þykir nauðsynlegt að fræðslustefnan fari í frekari umræðu í kirkjunni, enda hefur
hún verið víða til umfjöllunar og úrvinnslu. Hins vegar eru ýmsar nýjungar í henni svo
eðlilegt þykir að hafa eitthvert svigrúm til undirbúnings áður en hún taki að fullu gildi.
Gildistími verði því 1. júlí 2005. Með því móti gæti vetrarstarfið, þegar fræðslustarf
kirkjunnar er hvað mest og öflugast, veturinn 2005-2006 einkennst af þessari nýju
fræðslustefnu Þjóðkirkjunnar. Höfuðatriðið er að samstaða náist innan kirkjunnar allrar
um þessa stefnu svo kirkjan styrkist enn frekar í markvissri fræðslu er nái til allra
sóknarbama, ffá vöggu til grafar, þeim til styrktar og blessunar.
57