Gerðir kirkjuþings - 2004, Page 68
Kirkjutónlistin er þjónn orðsins. Þess vegna er mikilvægt að textar séu yfirleitt á íslensku
og hæfi umhverfi og athöfn helgidómsins.
Námskeið, fræðsla og tónlistarefni
Biskupsstofa, fræðslusvið, Leikmannaskólinn, eru hvött til þess að standa fyrir
námskeiðum um sálma og í sálmasöng fyrir yngri og eldri og vinna upp kennsluefhi og
námskeiðsgögn til útgáfu. Kirkjuhúsið hafi jafnan á boðstólum kirkjutónlistarefni. Jafnan
sé tiltækt leiðbeiningarefni um helgihald og trúariðkun.
Prestar og organistar og annað starfsfólk kirkjunnar stuðli að því að börn og unglingar
læri sálma; jóla, föstu, páskasálma, missiraskiptasálma og sálmatengda sérstökum
athöfnum. Leitað verði samstarfs við skólana í þessu skyni. Bjóða skal til söngstunda í
kirkjum þar sem ungum sem eldri er gefið tækifæri til að syngja saman sálma.
Styðja þarf viðleitni Tónskóla Þjóðkirkjunnar til að koma upp starfsstöðvum skólans í
samvinnu við tónlistarskóla utan Reykjavíkur, þar sem kenndar séu þær greinar námsins
sem sérstakar eru fyrir kirkjutónlistarfólk með sama hætti og nú þegar er vísir að á
Egilsstöðum. Hvetja þarf söfnuði til að styðja efnilegt tónlistarfólk til náms, vilji það
starfa í kirkjunni, enda sé því gert það kleift án þess að þurfa að flytjast búferlum af þeirri
ástæðu einni.
Bregðast skal sérstaklega við vanda þeirra safnaða sem ráða erlenda tónlistarmenn til að
annast kirkjusönginn, með því að bjóða þeim námskeið sem Qalla um trú og siði, lög og
reglur Þjóðkirkjunnar. Hliðstæð námskeið skal einnig bjóða öðru kirkjutónlistarfólki.
Sóknamefndir eru hvattar til að taka mið af menntun og færni tónlistarfólks sem ráðið er
til starfa í kirkjunni og fastráða ekki fólk nema það hafi lokið námskeiði af þessu tagi.
Helgihald safnaðanna á hverjum stað skal vera með þeim hætti sem fellur að
kringumstæðum þeirra. Hvorki skortur á organista né kórsöng má hindra eðlilegt
guðsþjónustulíf. Vægi og umfang tónlistarstarfs safnaðanna skal taka mið af stærð og
fjárhagsumsvifum
þeirra og fari aldrei yfir tiltekinn prósenthluta af tekjum safnaðarins. LFm það mætti setja
viðmiðunarreglur.
Umsjón kirkjutónlistarinnar
Til þess að hafa umsjón með kirkjutónlistinni skipi biskup íslands söngmálastjóra. Hann
skal framfylgja stefnu Þjóðkirkjunnar í kirkjutónlistarmálum (sbr. grein 2 í starfsreglum
um söngmál og tónlistarfræðslu á vegum þjóðkirkjunnar nr. 768/ 2002), vera ráðgefandi
um kirkjutónlistarmál við biskupsembættið, hafa umsjón með tónlistarstarfí safnaðanna
og veita því leiðsögn þegar eftir henni er kallað. Stjóm Tónskólans sé jafnframt fagráð að
baki embættis söngmálastjóra.
Söngmálastjóri heyrir stjórnunarlega beint undir biskup íslands og hefur starfsaðstöðu á
Biskupsstofu. Samhliða embætti söngmálastjóra og undir stjórn hans geti starfað (í
mismunandi stóru hlutastarfi) í sérverkefnum, einstaklingar sem bera ábyrgð á þjálfun og
starfi hinna hefðbundnu kirkjukóra og leiðsögn kórstjóra, þjálfun og starfi barnakóra við
kirkjur og Ieiðsögn kórstjóra, símenntun organista, útgáfu tónlistarefnis og viðhaldi og
nýsköpun sálmaarfsins í samvinnu við sálmabókarnefnd. Söngmálastjóri er ráðgefandi
um orgelkaup og endurgerð og stækkun orgela og starfar í náinni samvinnu við
orgelnefnd. Biskup setur honum erindisbréf.
66