Gerðir kirkjuþings - 2004, Page 74
Starfshópurinn telur að eldri k>Tislóðir hafí mikið ffam að færa til ungu kynslóðanna og
að það gefí einnig þeim sem einangrast hafa, misst mikið og fjarlægst heimilin að fá ungu
kynslóðina í heimsókn. Ekki síður má vanmeta það gróskumikla starf sem ungt fólk
sinnir og kynna það fyrir þeim eldri.
Einn þáttur í fermingarundirbúningi ætti að vera að kynslóðimar tali saman.
C. Trúfræðsla og nærhópar
Starfshópurinn leggur til að trúfræðsla meðal aldraðra og trúariðkun verði efld. Einnig
annað fræðslustarf sem varðar öldrun og þær breytingar, líffræðilegar, tilfínningalegar og
félagslegar, sem því fylgir að eldast. Vísar starfshópurinn þar til fræðsludeildar
kirkjunnar og Leikmannaskóla kirkjunnar að útbúa og bjóða söfhuðum upp á námskeið
sem sérstaklega eru sniðin að þörfum þeirra eldri.
Þá leggur starfshópurinn til að efht verði til biblíuleshópa aldraðra. Markmið slíkra
hópa er að lesa valda texta úr Biblíunni, leggja stuttlega út ffá þeim og hafa síðan frjálsar
umræður sem tengjast efninu. Slíkir leshópar hafa víða starfað undanfama áratugi svo hér
er ekki um neina nýjung að ræða. Hins vegar þykir starfshópnum rétt að takmarka
þátttakendur við aldraða t.d. í félagsmiðstöðum, elliheimilum og dvalarstofnunum til að
þátttakendur fái meira næði en hverfi ekki í skuggann af öðrum og framhleypnari
einstaklingum. Mjög gjaman mætti í slíkum leshópum taka fyrir guðspjall þess
sunnudags sem í hönd fer og undirbúa þannig þátttakendur að skilja boðunina.
Út ffá slíkum hópum eða jafnvel stofna sjálfstæða hópa má koma á fót nærhópum til að
taka fyrir erfiða lífsreynslu og vinna saman úr henni. Margt eldra fólk ber í brjósti ógróin
tilfínningaleg sár sem það hefur ekki haft tækifæri til að vinna úr. Traustur nærhópur
getur veitt aðstoð og skilning til að hlýða á erfíðar reynslusögur, miðlað sameiginlegri
reynslu milli félaganna og þannig komið út sem sálusorgunarhópur.
Nærgætinn og skilningsríkur einstaklingur þarf að stýra slíku starfí og hópurinn má ekki
vera stór. Mikil áhersla er á trúnað og traust. Biblíulestur og bæn eru nauðsynlegir þættir í
starfí hópsins og sérstaklega bænir sem leggja áherslu á fyrirgefhingu og sáttargjörð.
Niðurlag
Starfshópurinn leggur hér með fram framangreindar hugmyndir ásamt tilvísunum í efni
sem fyrir hendi er. Ákveðið var að láta fylgja með tillögunum hugmyndir um ffamkvæmd
þeirra. Skoða ber þær hugmyndir sem slíkar en ekki sem endanleg form. Hver og einn
verður að fmna þær aðferðir og útfærslu sem hentar best á hverjum stað. En fyrst og
fremst vill starfshópurinn skila tillögum sem við teljum raunhæfar, praktískar og
tiltölulega einfaldar í framkvæmd. Markmiðið með þeim öllum er að efla starf kirkjunnar
meðal aldraðra sóknarbarna. Eins og í öðru kirkjulegu starfí er rík áhersla lögð á að
sérhvert verkefni og starf sé þátttakendum til trúarlegrar uppbyggingar og leiði til
aukinnar þátttöku í helgihaldi kirkjunnar.
Með það að leiðarljósi leggjum við þessar hugmyndir fram til Kirkjuþings 2004 til ffekari
umræðu og ákvörðunar.
72