Gerðir kirkjuþings - 2004, Blaðsíða 81
7. gr.
Afl atkvæða ræður úrslitum mála á leikmannastefnu. Hver fulltrúi á leikmannastefnu sem
nefndur er í 4. gr. fer með eitt atkvæði á leikmannastefnu.
8. gr.
Fulltrúar leikmannastefnu kjósa leikmannaráð úr hópi leikmanna skv. 4. gr. til ijögurra
ára. Leikmannaráð er skipað þremur mönnum og jafnmörgum til vara og skulu þeir skipta
með sér verkum. Leikmannastefna getur samþykkt að auka fjölda fulltrúa í
leikmannaráði. Enn fremur er heimilt að kveða á í samþykktum leikmannastefnu, sbr. 9.
gr. að kjósa skuli hluta leikmannaráðs á tveggja ára ffesti. Leikmannaráð sér um
undirbúning og ffamkvæmd leikmannastefnu í samráði við Biskup Islands og er í
fyrirsvari fyrir leikmannastefnu milli stefna. Þá annast leikmannaráð um framkvæmd
þeirra mála sem leikmannastefna vísar til ráðsins. Kosning til leikmannaráðs, nefnda og
annarra trúnaðarstarfa á vegum leikmannastefnu skal vera skrifleg og leynileg. Heimilt er
leikmannastefnu að kjósa þriggja manna uppstillingamefnd er gerir tillögu um þá sem
kjósa skal. Skal kveðið nánar á um störf uppstillingamefndar og val til hennar í
samþykktum leikmannastefnu, sbr. 9. gr.
9. gr.
Leikmannastefna setur á grundvelli þessara starfsreglna, samþykktir um fjármál,
kosningar, stjóm, skipulag og viðfangsefni leikmannastefnu og leikmannaráðs, svo og
þingsköp stefnunnar. Þeir aðilar sem eiga fulltrúa á leikmannastefhu, bera ferðakostnað af
þátttöku hans.
10. gr.
Starfsreglur þessar, sem settar eru skv. heimild í 58. og 59. gr. laga um stöðu, stjóm og
starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, öðlast gildi 1. janúar árið 2005. Jafnframt falla
brott frá sama tíma starfsreglur um leikmannastefnu nr. 822/1999.
Ákvæði til bráðabirgða
Þrátt fyrir ákvæði 4. gr. skal kjósa fúlltrúa prófastsdæma á leikmannastefnu til tveggja ára
á héraðsfundum 2005 samkvæmt ákvæðum starfsreglna þessara og sitja þeir fyrst
leikmannastefnu 2006. Héraðsnefndir tilnefna viðbótarfulltrúa til setu á leikmannastefnu
árið 2005 í prófastsdæmum þar sem fleiri en einn fulltrúi situr leikmannastefnu. Þrátt
fyrir ákvæði 8. gr. skal kosið til leikmannaráðs á leikmannastefnu árið 2005. Kosið skal
aftur til leikmannaráðs árið 2007.
79