Gerðir kirkjuþings - 2004, Side 83
12. mál. Þingsályktun um viðmið um málsmeðferð á tillögum um skipan sókna,
prestakalla og prófastsdæma
Flutt af Kirkjuráði
Frsm. Dalla Þórðardóttir
Alyktun
Réttarhe im ildir
Samkvæmt 19. gr. þjóðkirkjulaga nr. 78/1997 skal biskupafundur gera tillögur um skipan
sókna, prestakalla og prófastsdæma til kirkjuþings, sbr. 50. gr. laganna.
Samkvæmt 3. gr. starfsreglna um skipan sókna, prestakalla og prófastsdæma nr. 731/1998
getur hver þjóðkirkjuþegn gert tillögu um breytingu á skipan sókna, prestakalla og
prófastsdæma. Tillögur um breytingar á skipan sókna og prestakalla skulu fá umsögn á
aðalsafnaðarfundum viðkomandi sókna og því næst bomar upp á héraðsfondi, sem sendir
þær biskupafundi. Hann býr málið til Kirkjuþings. Tillögur um breytingar á skipan
prófastsdæma skulu fá umsögn á viðkomandi héraðsfundum og því næst sendar
biskupafundi, sem býr málið til Kirkjuþings.
Samkvæmt 4. gr. starfsreglna um biskupafund nr. 819/2000 undirbýr biskupafundur mál
er varða breytingar á skipan sókna, prestakalla og prófastsdæma í hendur kirkjuþings.
Biskupafundur gerir tillögur um þau efni á grundvelli gildandi laga og starfsreglna og
stefnumörkunar Kirkjuþings ef árleg endurskoðun skipulags þykir gefa tilefni til. Þá
undirbýr biskupafundur auk þess tillögur um þessi efni sem kunna að berast frá
héraðsfundum í hendur Kirkjuþings og Qallar jafnframt um aðrar tillögur sem kunna að
berast.
Samkvæmt því er að ofan greinir er ljóst að tillaga um skipulagsbreytingar þarf að fá
umijöllun þriggja kirkjulegra aðila hið minnsta til að unnt sé að leggja hana fram á
Kirkjuþingi. Nokkur munur er á því hvort um tillögu að sóknarskipan er að ræða,
prestakallaskipan eða prófastsdæmaskipan.
Eftirfarandi umljöllun varðar fyrst og fremst málsmeðferð er varðar prestakallaskipan
enda yfírleitt mest um þær fjallað á Kirkjuþingi. Hér er fyrst og fremst átt við tillögur sem
fela í sér sameiningu prestakalla en síður tillögu um stofnun nýrra. Einnig er vikið að
tillögum um breytta sóknarskipan og prófastsdæmaskipan.
Almenn málsmeðferð vegna breytinga á skipan sókna, prestakalla ogprófastsdcema
Tillögu getur hver þjóðkirkjuþegn eða stofnun Þjóðkirkjunnar gert. Hún þarf að fara í
eftirfarandi ferli:
1. Aðalsafnaðarfundur
Tillögu skal bera upp á aðalsafnaðarfundum hlutaðeigandi sókna og þeim gefinn
kostur á að veita umsögn. Ekki er skylt að bera upp tillögu um breytingu á skipan
prófastsdæma þar.
2. Héraðsfundur
Tillögu skal bera upp á héraðsfundi ásamt umsögnum aðalsafnaðarfunda.
Héraðsfundur mælir með henni eða gegn og sendir áfram til biskupafundar.
81