Gerðir kirkjuþings - 2004, Page 93
19. raál. Tillaga til þingsályktunar um sölu á prestssetrum og hluta af prestssetrum
Flutt af Prestssetrasjóði
Frsm. Bjami Kr. Grímsson
Kirkjuþing 2004 samþykkir sölu á eftirfarandi prestssetrum og hluta af prestssetrum:
1. Prestssetursjörðin Ames á Ströndum í Ameshreppi, Húnavatnsprófastsdæmi.
2. Prestssetursjörðin Ásar í Skaftártungu, Skaftafellsprófastsdæmi.
3. Prestssetursjörðin Bergþórshvoll í Vestur-Landeyjum, Rangárvallaprófastsdæmi.
4. Prestssetursjörðin Desjamýri í Borgarfirði Eystri, Múlaprófastsdæmi.
5. Prestssetursjörðin Prestbakki við Hrútaíjörð, Húnavatnsprófastsdæmi.
6. Prestssetursjörðin Vatnsfjörður, Isafjarðarprófastsdæmi.
7. Prestssetursjörðin Hraungerði í Ámesprófastsdæmi.
8. Land úr prestssetursjörðinni að Hofi í Vopnafirði.
Um er að ræða landspildu þá sem látin var frá prestssetrinu Hofi á árinu 1954 til
nýbýlisins Deildarfells (Deildarlækjar). Nánar tiltekið er um að ræða ca. 94 ha.
landspildu.
9. Land úr prestssetursjörðinni að Hofí í Vopnafirði.
Um er að ræða landspildu sem núverandi sóknarprestur hefur ræktað upp og reist
lítið hús á. Nánar tiltekið er um að ræða ca. 8 ha. landspildu.
Eldri samþykktir standi óbreyttar.
Nefndarálit
um þingsályktun um sölu á prestssetmm og hluta af prestssetrum
Löggjafamefnd hefúr fjallað um málið og álítur með hliðsjón af því að enn standa fyrir
dyrum viðræður um prestssetursjarðir við íslensk stjómvöld að réttast sé að bíða með alla
sölu.
Ennfremur álítur nefndin að jarðir séu góð langtímafjárfesting fyrir kirkjuna og því sé
íhaldssemi í sölu slíkra eigna hagkvæm.
Um einstaka liði vill nefndin beina eftirfarandi til stjómar Prestssetrasjóðs:
• Uppi em hugmyndir um að nýta prestssetrið á Prestbakka undir kirkjulega
starfsemi og er eðlilegt að gefa þeim hugmyndum tækifæri til að verða að
vemleika.
• Lögbundið er að prestssetursjörðin Hraungerði skulu vera prestssetur fyrir
Hraungerðisprestakall og því er ekki um að ræða að ætla sér að selja jörðina.
• Að leigja lönd prestssetursjarða undir sumarbústaði kemur til greina að
uppfylltum almennum skilyrðum, enda leggi það ekki skyldur á Prestssetrasjóð. I
máli 9. töluliðar er því lagt til að stjóm Prestssetrasjóðs gangi til samninga um
skammtímaleigu á landi undir sumarhús.
Að öðru leyti vísast til þess sem hér að ofan segir um væntanlega samninga um
prestssetursjarðir.
91