Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1981, Blaðsíða 111
MULAÞING
109
II.
Upphaf kennaraferils
Sumario 1927 vakti skólanefnd Eiðahrepps máls á því við mig, hvort ég
væri fáanlegur að takast á hendur barnakennslu í sveitinni næsta vetur.
Eftir nokkra umhugsun tók ég þessu tilboði.
Þegar á leið sumarið leituðu á hugann efasemdir um að ég væri
þessum vanda vaxinn, vantaði flest sem þyrfti til að taka að mér slíkt
trúnaðarstarf. En þá varð ekki aftur snúið. A það varð að reyna, hvernig
til mundi takast þegar á hólminn kæmi.
Skóli átti að hefjast um miðjan október, og stóðst sú áætlun. Var
miðað við sex mánaða kennslu um veturinn.
Þá sátu í nefndinni Olöf Guðmundsdóttir, Hjartarstöðum, Björn
Sveinsson, Eyvindará og Guðgeir Jóhannsson, kennari á Eiðum, for-
maður. Ásmundur Guðmundsson, skólastjóri á Eiðum mun hafa átt
einhvern þátt í þessum gerðum skólanefndar.
Menntun mín var ekki á marga fiska og reynsla engin. Sést því
að allir aðilar tóku nokkra áhættu, svo ekki sé meira sagt. Ég hafði að
vísu lokið prófi við Alþýðuskólann á Eiðum vorið 1926 með góðum
vitnisburði. Sá skóli var ágæt menntastofnun og hafði á að skipa liði
úrvals kennara.
Farskóli var í Eiðahreppi um þessar mundir, og reyndar í flestum
sveitum hérlendis. Skólanefndin hafði tryggt húsnæði fyrir skólann á
Eyvindará fyrsta mánuð kennslutímans og aðra nauðsynlega aðstöðu
fyrir kennara og börn.
Eyvindará var með innstu bæjum í Eiðahreppi, en nú tilheyrir jörðin
Egilsstaðahreppi, sem þá var ekki kominn til sögunnar. Húsbóndinn á
Eyvindará, Björn Sveinsson, stundaði þennan vetur nám í Eiðaskóla,
kornungur maður. Systir bans, Guðný, var húsráðandi og höfðu þau
vetrarmann.
A Eyvindará voru húsakynni í gömlum stíl, baðstofa, tvö hólf, vistleg
herbergi, eldhús undir palli og svefnherbergi. Kennslustofan var í
baðstofunni, innra herberginu. Þar var ágætt næði.
Kennarinn var mættur daginn áður. Börnin voru 8, á ýmsum aldri, og
gengu flest að heiman og heim.
Mér þótti fagurt um að litast á Eyvindará þennan haustdag. Kyrrviðri
var og hlýindi, sólskin, bjart til allra átta, víður fjallahringur og
sérkennilegur. — Ef til vill lofaði haustblíðan góðu um starfsemi
komandi vetrar. Ég mun hafa kallað á börnin í fyrstu kennslustund