Ægir - 01.07.2016, Page 106
106
Meðal þeirra sem taka þátt í sjávar-útvegssýningunni í Laugardals-höll dagana 28.-30. september er
íslenskt dótturfyrirtæki Multivac sam-
steypunnar sem hefur verið með leiðandi
stöðu í sölu pökkunarvéla fyrir matvæli í
heiminum. Multivac er alþjóðlegt fyrirtæki
með aðalstöðvar í Þýskalandi og 74 dóttur-
félög víða um heim.
Multivac hóf starfsemi dótturfyrirtækis
á Íslandi árið 2008 en fyrir þann tíma
höfðu umboðsaðilar haft milligöngu um
sölu á Multivac búnaði hér á landi. Magnús
Sigurðsson, framkvæmdastjóri Multivac
Ísland segir pökkunarbúnaðinn frá Multi-
vac lengi hafa þjónað fyrirtækjum í græn-
metis- og kjötpökkun en nú sé verið að
leggja aukna áherslu á fiskvinnsluna enda
telji menn mikil sóknarfæri þar.
Að sögn Magnúsar henta Multivac vél-
arnar mjög vel til pökkunar á fiski hvort
sem hann er ferskur eða frosinn. Með
pökkun fisksins í neytendapakkningar sé
hægt að auka geymsluþol og hækka sölu-
verð. „Við höfum verið að hvetja menn til
að vinna fiskinn meira hér heima og skila
honum frá sér til erlendra kaupenda í
neytendapakkningum,“ segir Magnús.
Hann segist verða var við vaxandi áhuga
sjávarútvegsfyrirtækja og nú þegar eru
nokkur þeirra komin með Multivac pökk-
unarvélar í framleiðslulínur hjá sér.
Skinnpökkun
Á sjávarútvegssýningunni í Laugardals-
höll mun Multivac aðallega sýna búnað til
vacumpökkunar. Annars vegar hefð-
bundna vacumpökkun en hins vegar
vandaðri útgáfu, svo-
kallaða skinnpökkun
þar sem örþunn filman
leggst mjög þétt að vör-
unni og ver hana betur
fyrir hvers konar
hnjaski. Bjarni Benediktsson, sölumaður
hjá Multitec segir íslenska neytendur
þekkja skinnpökkun því hún hafi verið
talsvert notuð við pökkun á kjötvörum og
áleggi hér á landi. Bjarni segir Multivac
bjóða upp á keðjupökkun á vörum sem
hentar neytendum vel því þá er hægt að
matreiða einn og einn skammt án þess að
rjúfa pakkninguna að öðru leyti. Hann
segir Multivac einnig bjóða upp á lausnir
til að merkja vöruna, ýmist með miðum
sem festast við filmuna eða með blek-
sprautuprentun beint á filmuna.
Þjónustan mikilvæg
Magnús segir mikla erlenda samkeppni í
sölu pökkunarbúnaðar hér á landi. Þótt
mikið sé framleitt af fiskverkunarvélum á
Íslandi þá sé engin pökkunarvél framleidd
hér. „Í okkar huga skiptir höfuðmáli að
geta tryggt góða þjónustu við vélarnar sem
við seljum. Þess vegna erum við með við-
gerðarteymi sem getur brugðist fljótt við ef
eitthvað ber út af. Þegar unnið er með
ferskt hráefni er ekki hægt að bíða í marga
daga eftir að viðgerðaflokkurinn komi er-
lendis frá. Það er hreinlega ekki í boði,“
segir Magnús Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Multivac Ísland.
Multivac pökkunarlausnir
auka verðmæti vörunnar
Magnús Sigurðsson, framkvæmdastjóri Multivac Ísland og Bjarni Benediktsson sölu-
maður við eina af pökkunarvélum Multivac.
Multivac pökkunarvélar sem hluti af framleiðslulínu í fiskverkun.
multivac.com
Keðjupökkun er mjög
hentug fyrir neytendur
því þá er hægt að mat-
reiða einn skammt án
þess að rjúfa pakkning-
una að öðru leyti.